Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 38
„Lögin verða oftast þannig til að ég byrja við sellóið og útset um leið,“ segir Steinunn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Diskurinn Ljúfa huggun geymir lög og texta eftir Steinunni.
Ljúf huggun og Fugl/Blubl
Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari sendir frá sér
ljóðabók og geisladisk. Heldur í tónleikaferðalag.Steinunn Arnbjörg Stef-ánsdót t ir sellóleik ar i hefur sent frá sér ljóða-bókina Fugl/Blupl, sem er önnur ljóðabók hennar en sú fyrsta, USS, kom út
2016. „Ætli það að yrkja sé ekki til
helminga göfug hvöt og merkileg-
heit. Maður er að kveðja sér hljóðs,
það gera það allir með einhverjum
hætti,“ segir hún.
Spurð hvenær hún hafi byrjað að
yrkja segir hún: „Í gagnfræðaskóla
lásum við Grettis sögu og þar voru
skemmtilegar vísur. Ég hafði pata
af því að einhverjum þætti f lottast
í heimi að geta ort dróttkvæði og fór
að baksa við að yrkja slík kvæði.“
Yrkisefnin í ljóðabókinni eru
mörg: „Ég yrki um sjálfa mig,
Reykjavík, klístraða hluti, sumarið,
Þórberg Þórðarson og f leira.“ Af
hverju yrkir hún um Þórberg? „Þór-
bergur er hluti af lífinu. Ég las Sálm-
inn um blómið þegar ég var tólf ára
og síðan Eddu og fleiri bækur hans.
Þórbergur er fyndinn og mér þykir
vænt um bækur hans.“
Eigin lög og textar
Steinunn sendir ekki einungis frá
sér ljóðabók heldur einnig geisla-
disk. Diskurinn nefnist Ljúfa
huggun og Steinunn er þar hluti af
hljómsveitinni Süsser Trost, sem
flytur lög og texta alfarið eftir hana
sjálfa. Auk Steinunnar eru í hljóm-
sveitinni eiginmaður hennar og
vinur, Mathurin Matharel og Brice
Sailly, sem leika helst á sembal og
selló en Steinunn leikur á gítar og
trommur og sér um sönginn. „Á
disknum eru nokkur ljóð úr Fugl/
Blupl sem ég gerði lög við og syng
og svo eru aðrir textar sem finnast
aðeins á þessum diski. Þetta er held
ég popptónlist. Lögin verða oftast
þannig til að ég byrja við sellóið og
útset um leið.“
Tónleikaferð um landið
Steinunn stefnir á tónleikaferð um
landið í sumar þar sem hún flytur
eigin ljóð og lög auk þess sem hún
flytur Bach-svítur á selló. „Ég var í
Skálholti og mun spila á Akureyri,
Ólafsfirði, Raufarhöfn og Þórshöfn.
Ég elska Eyþing, og líka Skálholt.
Enda ættuð að hálfu úr Eyjafirði
og Norður-Þingeyjarsýslu og skírð
í Skálholti. Þessir staðir eiga mig.
Mér finnst gaman að raða saman
Bach og eigin tónlist, þó það teljist
kannski ekki lítillátt háttalag, Það
er eins og Bach hafi alltaf verið til,
allir eru alltaf að hlusta á hann en
samt finnst mér stundum að tón-
listin sú sé nýkomin utan úr geimn-
um. Kannski er það að hluta til þess
vegna sem ég fór að troða mínum
lögum með. Þau eru búin til nokk-
urn veginn á jörðinni. Það er líka
þægilegt að eitthvað sé á íslensku
á tónleikunum og að það sé sungið,
mannsröddin er lífeðlisfræðilega
séð einfaldara hljóðfæri en sellóið.“
Steinunn hefur búið í Frakklandi
síðustu ár en flytur nú til Akureyrar
ásamt manni og börnum. „Ég ætla
að mestu að vinna hér heima en
spúsinn skiptir tíma sínum milli
Íslands og Frakklands, verður í eins
konar tónlistarsjómennsku.“
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
MÉR FINNST GAMAN
AÐ RAÐA SAMAN
BACH OG EIGIN TÓNLIST, ÞÓ
ÞAÐ TELJIST KANNSKI EKKI
LÍTILLÁTT HÁTTALAG.
Kvikmynd Elfars Aðalsteins, End
of Sentence, mun opna Alþjóð-
legu kvikmyndahátíðina í Reykja-
vík, RIFF, í ár. Frumsýning verður
26 . september. Kv i k my nd in
skartar virtum og reynslumiklum
Hollywood-leikurum, þeim John
Hawkes, sem tilnefndur hefur
verið til Óskarsverðlauna, og
Logan Lerman, sem hefur leikið
í fjölmörgum stórmyndum þrátt
fyrir ungan aldur. Leikstjóri og
aðalleikari munu verða viðstaddir
frumsýningu myndarinnar og ræða
um gerð hennar að sýningu lokinni.
End of Sentence er vegamynd sem
segir sögu feðga er leggja land undir
fót til að heiðra minningu móður
og eiginkonu, en hennar hinsta
ósk var að ösku hennar yrði dreift í
lítið vatn á æskuslóðunum á Írlandi.
Samband feðganna er vægast sagt
stirt og á vegferð þeirra um landið
kemur margt upp úr kafinu.
End of Sentence var nýlega frum-
sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahá-
tíðinni í Edinborg og fékk í kjölfarið
lofsamlega dóma í virtum erlendum
fagmiðlum. Íslendingar koma að
gerð myndarinnar og þar má nefna
Ólaf Darra Ólafsson, Kristján
Loðm fjörð og Evu Maríu Daníels.
Myndin er framleidd af Sigurjóni
Sighvatssyni, David Collins og Elfari
Aðalsteins.
End of Sentence er fyrsta leik-
stjórnarverkefni Elfars í fullri lengd,
en stuttmynd hans Sailcloth hlaut
verðlaun sem besta íslenska stutt-
myndin á RIFF árið 2011 auk þess
að vinna Edduverðlaunin, sem
stuttmynd ársins 2012, ásamt því
að komast í lokaúrtak BAFTA- og
Óskarsverðlauna það árið.
End of Sentence mun feta í fót-
spor kvikmynda sem hafa í kjölfar
þess að opna RIFF ferðast víða um
heim og notið velgengni.
End of Sentence sýnd á RIFF
END OF SENTENCE VAR
NÝLEGA FRUMSÝND Á ALÞJÓÐ-
LEGU KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í
EDINBORG OG FÉKK Í KJÖLFARIÐ
LOFSAMLEGA DÓMA Í VIRTUM
ERLENDUM FAGMIÐLUM.
1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R26 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
8
-6
C
E
C
2
3
6
8
-6
B
B
0
2
3
6
8
-6
A
7
4
2
3
6
8
-6
9
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K