Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 2
Veður Austlæg átt 3-8 og allvíða skúrir í dag, en áfram bjart veður norð- austan til. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi. SJÁ SÍÐU 22 Á hvítum reitum og svörtum Tveir ferðalangar eigast við á hinu fornfræga útitaf li sem bíður vegfarenda sem eru í stuði fyrir eina bröndótta fyrir framan Pakkhús Hróksins við Geirsgötu. Yfir reitunum 64 eru allir jafnir enda slagorð skákhreyfingarinnar Gens una sumus, Við erum öll eins fjölskylda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Ásetusláttuvélar á frábæru verði Gerir sláttinn auðveldari Kr. 320.000,- með VSK ÞÓR FH Akureyri: Baldursnes 8 603 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is REYKJAVÍK Eldri borgarar þurfa nú að greiða 1.800 krónur inn á söfn Reykjavíkurborgar í stað þess að fara inn frítt. Um mánaðamótin tók gildi ný gjaldskrá á söfnum borgarinnar. Á fundi á Kjarvalsstöðum í gær kynnti Lóa Þórhallsdóttir, starfandi borgarstjóri, nýtt Menningarkort fyrir 67 ára og eldri og möguleikann á því að nota það í snjallsíma.  Breytingin var samþykkt á fundi menningar-, íþrótta og tómstunda- ráðs í júní en frá því að eldri borgarar fengu frían safnaðgang fyrir nokkr- um árum hefur aðsókn þeirra ekki aukist. Fór hún úr 6 þúsund manns árið 2013 í 6.800 manns árið 2018. Á sama tíma hefur erlendum ferða- mönnum yfir 67 ára fjölgað. Með breytingunni eru bundnar vonir við að rekstur safnanna styrk- ist enda þurfi bæði innlendir og erlendir að greiða fyrir aðgang. – ab Eldri borgarar á kynningu um safn-snjallforrit Eldri borgarar mættu á kynningu nýja menningarkortsins á Kjarvals- stöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BÓK ME NNTIR Hópur íslensk ra barna- og ungmennabókahöf- unda sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem það er fordæmt að íslensk stjórnvöld vísi börnum á f lótta og fjölskyldum þeirra á brott frá Íslandi. Í yfirlýsingunni er vísað í Barna- sáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem hefur verið tekinn í íslensk lög og gerir stjórnvöldum skylt að hafa hagsmuni barna alltaf í for- gangi. „Við teljum ekki forsvaranlegt að senda börn á f lótta til Grikklands þar sem aðstæður í hæliskerfinu hafa verið metnar ófullnægjandi og ekkert bíður þeirra nema gatan. Það hlýtur að vera grundvallar- atriði að mál barna á f lótta séu metin á þeirra forsendum,“ segir í tilkynningunni og fylgir listi þeirra rithöfunda sem hafa skrifað undir yfirlýsinguna. – pk Rithöfundar standa með flóttabörnum Fleyri myndir eru á +Plús síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er eingöngu í Fréttablaðs-appinu eða í PDF-útgáfu blaðsins sem er aðgengileg á frettabladid.is. +PLÚS SAMFÉLAG „Við myndum auðvitað vilja vera með okkar aðstöðu í þessu húsi og teljum okkur eiga meira til- kall til þess en lögmenn enda húsið byggt yfir okkur, svona þannig lagað,“ segir Guðmundur Ingi Þór- oddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, um Hegningarhúsið við Skóla- vörðustíg. Unnið er að viðhaldi húss- ins eins og Fréttablaðið greindi frá í vor en ekki liggur fyrir hvaða starf- semi verður í því til framtíðar. „Þegar ég lýsti áhuga félagsins á að fá aðstöðu fyrir fanga og fyrrverandi fanga í húsinu, var mér tjáð að húsið væri frátekið fyrir Lögmannafélag- ið,“ segir Guðmundur og segir málið hafa komið til umræðu í kerfinu fyrir stuttu þar sem var verið að ræða fangelsismál. Afstaða hefur leigt húsnæði fyrir starfsemina í Ártúnshöfða en þar er fyrirhugað að vera með skrifstofuað- stöðu félagsins, móttökumiðstöð fyrir aðstandendur og neyðargisti- úrræði fyrir þá sem lokið hafa afplánun en þurfa tíma til að aðlagast samfélaginu og fóta sig á eigin spýtur. „Það væri frábært fyrir okkar félag að vera meira miðsvæðis og geta boðið skjólstæðingum okkar þjónustu þar sem þeir eru. Og við byggðum þetta hús yfir okkur sjálfir, í sögulegu ljósi allavega og því eigum við auðvitað meira tilkall til þess en nokkur annar þjóðfélagshópur,“ segir Guðmundur. Aðspurður segir hann að félagið myndi alls ekki þurfa allt húsið. „Ég efast  ég ekki um að samskipti okkar við lögmenn yrðu góð á níunni hér eftir sem hingað til,“ segir Guðmundur og vísar til sam- bands verjenda við fanga um árabil í húsinu. „Draumurinn væri sá að þarna yrði ákveðin „regnhlíf“ þar sem margir aðilar sem tengjast fangelsis- málum myndu mynda hóp þar sem unnið væri að betrunarstefnu og úrræðum í fangelsismálum. Ég sé fyrir mér aðkomu Afstöðu, Fang- elsismálastofnunar, Sambands sveitarfélaga, Rauða krossins, Hjálpræðishersins, lögreglunnar, Lögmannafélagsins, Geðhjálpar, Stígamóta og Mannréttindaskrif- stofu Íslands. Þetta held ég að myndi aðstoða okkur við að komast inn í nútímann í fangelsismálum, sátta- miðlunum og skaða minnkunum, þar sem unnið væri með dómþola, aðstandendur og brotaþola,“ segir Guðmundur og leggur áherslu gildi fræðslu og samvinnu. Óvissa hefur ríkt um framtíð hússins síðan starfseminni var hætt þar sumarið 2016. Fréttablaðið hefur áður greint frá því að það kosti 300 milljónir að gera húsið upp að utan. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu er áætlað að kostnaður við að innrétta húsið fyrir nýja starfsemi sé ekki undir einum milljarði króna. Ráðuneytið hefur ekki enn viljað svara því hvers kyns starfsemi það yrði og því óljóst hver muni bera kostnaðinn. Í samtali við Fréttablaðið sagðist Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélagsins, ekki kannast við neitt vilyrði eða nein skilaboð frá stjórnvöldum varðandi húsið. Hún segir félagið hafa sýnt áhuga í tíð fyrri formanns, Reimars Péturs- sonar. „Það hefur ekkert verið rætt um þetta síðastliðið ár, ekki síðan ég kom þarna inn.“ segir Berglind en vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. kristinnhaukur@frettabladid.is Segir Hegningarhúsið frátekið fyrir lögmenn Formaður félags fanga vill fá aðstöðu í hegningarhúsinu en segir það frátekið fyrir Lögmannafélagið. Formaður LMFÍ segist ekki við að hafa fengið vilyrði. Margir hafa augastað á Níunni enda á frábærum stað. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Við byggðum þetta hús sjálfir, í sögu- legu ljósi allavega og því eigum við auðvitað meira tilkall til þess. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 1 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 8 -6 C E C 2 3 6 8 -6 B B 0 2 3 6 8 -6 A 7 4 2 3 6 8 -6 9 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.