Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 6
Þungarokkararnir flúðu
til Tyrklands og þaðan til
Noregs þar sem þeim var
sleppt gegn tryggingu.
– við Laugalæk
Ekkert hveiti
Ekkert soyja
Enginn sykur
Ekkert MSG
Íslenskt kjöt
Íslensk
framleiðsla
Í dag
er gott
að grilla
– og á morgun og hinn og hinn...
Besta
uppskeran
núna!
www.kronan.is
299 kr.pk.
Nektarínur, 1 kg
ORKUMÁL Orka náttúrunnar réð
framkvæmdastjóra og eiganda
fyrirtækis sem selur hleðslustöðvar
sem ráðgjafa um hleðslustöðvar.
Ólafur Davíð Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Hleðslu ehf., einnig
þekkt sem Hlaða, er skráður sem
eigandi að fimmtán prósentum í
fyrirtækinu.
ON er dótturfyrirtæki Orkuveitu
Reykjavíkur, sem er að stærstum
hluta í eigu Reykjavíkurborgar, sér
um að reka og þjónusta hleðslu-
stöðvar við þjóðvegi landsins
ásamt því að veita ráðgjöf bæði
á sviði hleðslulausna fyrir fyrir-
tæki og fjölbýlishús. Hleðsla ehf.
er seljandi hleðslustöðva og hefur
sett upp stöðvar fyrir fyrirtæki og
býður þjónustu til að rafvæða bíla-
stæði fjölbýlishúsa.
„Það er rétt að ég er framkvæmda-
stjóri Hlöðu og ég vinn sem verktaki
hjá Orku náttúrunnar, sem tækni-
stjóri hleðslustöðva. Ég kem ekk-
ert nálægt nýjum málum, nýjum
uppsetningum eða slíku, nema þá í
tæknilegum hluta að klára þau mál.
Ég kem ekki nálægt innkaupum. Ég
hef heldur aldrei talað um búnað,“
segir Ólafur Davíð.
Vegir Hlaða og ON hafa legið
saman nokkrum sinnum á undan-
förnum vikum. Á fræðslufundi hjá
bílaumboði í maí var auglýst að þar
væru sérfræðingar frá bæði ON og
Hlöðu, á sama fundi undirritaði
Ólafur Davíð samstarfssamning
við umboðið fyrir hönd ON. Ólafur
Davíð var titlaður tæknistjóri hlaða
hjá ON, því var breytt fyrir skömmu
yfir í ráðgjafi í hlöðum á einstakl-
ingsmarkaði.
Keppinautar Hleðslu sem Frétta-
blaðið hefur rætt við segja að það
skjóti mjög skökku við að fram-
kvæmdastjóri og eigandi keppi-
nautar starfi einnig hjá opinberu
fyrirtæki sem veiti ráðgjöf og vinni
við uppbyggingu innviða fyrir raf-
bíla.
Ólafur Davíð segir að hann hafi
aldrei misnotað aðstöðu sína í störf-
um fyrir ON, en hann hefur starfað
þar síðustu þrjá mánuði. Það hafi
verið ON sem leitaði til hans um
að taka að sér þetta starf á meðan
annar starfsmaður væri frá.
Gögn sem Fréttablaðið hefur
undir höndum sýna að Orkuveitan
vissi af þessum hagsmunaárekstri
og að kurr sé meðal annarra fyrir-
tækja vegna málsins.
Ekki náðist í Berglindi Rán Ólafs-
dóttur, framkvæmdastjóra ON, við
vinnslu fréttarinnar.
ON hefur ekki svarað fyrirspurn
Fréttablaðsins um hversu margar
hleðslustöðvar fyrirtækið haf i
keypt af Hleðslu ehf. Upplýsinga-
fulltrúi ON sagði að það gæti tekið
langan tíma að taka upplýsingarnar
saman.
Eigandi Hlöðu ráðinn
sem ráðgjafi hjá ON
Orka náttúrunnar réð framkvæmdastjóra og eiganda fyrirtækis sem selur
hleðslustöðvar sem ráðgjafa og tæknistjóra hleðslustöðva. Ákvörðun var tekin
af ON segir framkvæmdastjórinn. Hann hafi hins vegar aðeins sinnt viðhaldi.
Hleðslustöðvar eru liður í að vera í fararbroddi þegar kemur að orkuskiptum í samgöngum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég kem ekkert
nálægt nýjum
málum, nýjum uppsetning-
um eða slíku, nema þá í
tæknilegum hluta að klára
þau mál. Ég kem ekki nálægt
innkaupum. Ég hef heldur
aldrei talað um búnað.
Ólafur Davíð Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Hlöðu og verktaki ON
ÍRAN Meðlimir þungarokkshljóm-
sveitarinnar Confess frá Íran hafa
verið dæmdir í samtals fjórtán og
hálfs árs fangelsi í heimalandinu
fyrir guðlast, áróður gegn ríkinu,
rekstur ólöglegrar undirheima-
hljómsveitar, viðtöl við bannaðar
útvarpsstöðvar og að spila tónlist
sem er álitin satanísk. Þeir voru
sömuleiðis dæmdir til að þola tugi
svipuhögga. Frá þessu var greint á
fréttasíðunni Metal Injection.
Hljómsveitarmeðlimir voru fyrst
handteknir árið 2015 og sátu í ein-
angrun í þrjá mánuði þar til þeim
var sleppt gegn tryggingu. Í kjölfar-
ið flúðu þeir til Tyrklands og þaðan
til Noregs þar sem þeir fengu hæli.
„Eftir að við gáfum út nýtt lag
og ég rauf þögn mína í Tyrklandi
árið 2018 stigu fram ýmis samtök
sem styðja listamenn. Stuttu síðar
var mér boðið að koma til Noregs
sem pólitískur f lóttamaður. Eftir
að Arash fór fyrir áfrýjunardóm-
stól og komst að því að sækjendur
höfðu breytt játningum okkar og
falsað undirskrift mína bað hann
um hjálp mína,“ sagði Khosravi
sem bætti við að hann hefði í kjöl-
farið hjálpað Ilkhani að komast til
Noregs. – þea
Fjórtán ára dómur fyrir þungarokk
UTANRÍKISMÁL Málflutningur utan-
ríkisráðherra Filippseyja er ekki
svaraverður. Þetta segir Guðlaugur
Þór Þórðarson utanríkisráðherra í
samtali við Fréttablaðið.
Filippsey ing ur inn, Teodoro
Locsin yngri, sagði á Twitter á þriðju-
daginn að ef tillaga, sem Ísland lagði
fram í mannréttindaráði Sameinuðu
þjóðanna fyrir viku, verði samþykkt
myndi það þýða veglega bónusa frá
eiturlyfjabarónum handa aðstand-
endum tillögunnar.
„Þessi fullyrðing er ekki svaraverð
enda virðist hún fyrst og fremst til
marks um slæma samvisku stjórn-
valda á Filippseyjum vegna þessa
máls,“ segir Guðlaugur Þór um málið.
Ítrekað og ítarlega hefur verið
fjallað um herferð stjórnvalda á
Filippseyjum gegn fíkniefnum þar í
landi. Í tillögunni er til þess ætlast að
Filippseyingar „geri allt sem í valdi
þeirra stendur til að fyrirbyggja
aftökur án dóms og laga og manns-
hvörf“. – þea
Ummælin til marks
um slæma samvisku
1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
8
-9
4
6
C
2
3
6
8
-9
3
3
0
2
3
6
8
-9
1
F
4
2
3
6
8
-9
0
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K