Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 24
Ég hef aldrei hann-
að áður, þetta var
bara áhugamál.
Smári Stefánsson
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Þetta er glænýtt, við byrjuðum bara í júní og vorum þá með markað á Secret Solstice,“
segir Smári. Hann hannaði fata-
línuna sem eins og stendur er
tvær flíkur, svört velúrskyrta og
motocross-treyja. Eftir sumarið er
svo von á úlpu, f líspeysu og jakka.
„Ég hef aldrei hannað áður, þetta
var bara áhugamál. Ég hélt ég gæti
þetta og prófaði bara,“ segir Smári
um ástæðu þess að hann fór út í
fatahönnun.
„Ég talaði svo við frænda minn,
þar sem hann er mjög myndarleg-
ur og bað hann um að vera módel.
Mig vantaði myndir af einhverjum
í fötunum,“ segir Smári. Frændinn,
Aron Kristinn, ákvað að slá til og
vera með í fatalínunni en hann
hafði verið að mála skó með sér-
stakri leðurmálningu.
„Ég var búinn að vera að fylgja
alls konar fólki á samfélagsmiðlum
sem var að mála skó og mig langaði
að prófa. Svo bara elskaði ég að
gera þetta,“ segir Aron.
Frændurnir voru með bás á
Sectret Solstice þar sem þeir seldu
fötin og skóna. „Fólk gat komið
með eigin skó sem ég málaði eftir
óskum fólks eða ég kom með hug-
mynd fyrir fólkið sjálfur. En svo
var ég líka að selja tilbúna skó. Ég
er mest að mála leðurskó en fólk
var líka að koma með Vans skó til
mín, sem eru úr öðruvísi efni. Þá
þarf að þynna málninguna. Það er
alls konar tækni við það eftir því
hvernig efni þú ert að vinna með,“
segir Aron.
Smári segir að þeir séu að hugsa
um að vera með pop-up búð í
Reykjavík og selja fötin þar. Þeir
eru með bíl sem þeir myndu þá
leggja á mismunandi stöðum og
auglýsa viðburðinn á samfélags-
miðlum. „Þetta er svona hugmynd
en við eigum eftir að skipuleggja
þetta betur,“ segir hann og bætir
við að þeir hafi selt ágætlega af
fötum og skóm á Secret Solstice
þar sem þeir voru staddir með
bílinn.
„Fólk hefur líka verið að hafa
samband við mig eftir Solstice og
biðja mig að mála skó og ég hef
verið að taka inn skó og mála þá. Ef
við setjum upp svona pop-up búð
þá myndi ég vera með málninguna
mína þar og fólk getur mætt með
skóna en ég verð líka með tilbúna
skó.“
Hægt er að skoða fatalínuna á
yeyoclothing.com en vefsíðan er
í vinnslu. Einnig er hægt að fylgja
YEYO á Facebook og Instagram.
Frændur hanna föt og mála skó
Frændurnir Aron Kristinn Antonsson og Smári Stefánsson ferðast með hönnun sína á sérmerktum bíl.
Fatalínan samanstendur af svartri
velúrskyrtu og motocross-treyju.
Vetrarföt eru væntanleg.Aron málar skó með sérstakri leðurmálningu.
Frændurnir Smári
Stefánsson og
Aron Kristinn Ant-
onsson stofnuðu
nýlega fatamerk-
ið YEYO Clothing.
Þeir selja eigin
hönnun. Bæði föt
og skó.
SÖFN Á ÍSLANDI
Laugardaginn 20. júlí gefur Fréttablaðið út sérblaðið Söfn á Íslandi.
Í þessu skemmtilega blaði ætlum við að fræðast um þá fjölbreytilegu
flóru sem Ísland hefur upp á að bjóða í söfnum og sýningum.
Það er sífellt stærri hópur sem hefur áhuga á íslenskri menningu og
sögu og þetta því frábært tækifæri til að kynna ykkar safn og það
sem efst er á baugi hjá ykkur í sumar.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni u aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Ruth Bergsdóttir sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Sími 694 4103 / ruth@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
8
-7
1
D
C
2
3
6
8
-7
0
A
0
2
3
6
8
-6
F
6
4
2
3
6
8
-6
E
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K