Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.07.2019, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 11.07.2019, Qupperneq 18
Þetta er sterkt fyrir okkur sem samtök að fá landsliðsfyrirliða kvenna þarna inn og sterkt fyrir stelpur að þær sjái að við séum líka að hugsa um þeirra hagsmuni. Þetta með Söru kemur út frá þeirra ósk að við hjálpum landsliðs- stelpunum að semja við KSÍ. Kristinn Björgúlfsson, framkvæmda- stjóri Leikmannasamtaka Íslands HANDBOLTI Íþróttafréttamaður- inn og einn helsti handboltasér- fræðingur landsins, Guðjón Guð- mundsson, er ekki sáttur við Hauk Þrastarson, Teit Örn Atlason, Svein Andra Sveinsson og Arnar Frey Guðmundsson sem gáfu ekki kost á sér til að spila á HM U21 árs liða. „Það er pirrandi þegar ungir leik- menn gefa ekki kost á sér í U21 í handbolta. Man ekki eftir því að þessi staða hafi komið upp á Íslandi. Kannski of góðir í þetta verkefni. Della,“ sagði Gaupi á samskiptafor- ritinu Twitter og bætti sínu merki við. Eina. Haukur og Teitur hafa verið í A-landsliðinu undanfarna mánuði og spiluðu á HM í Dan- mörku og Þýskalandi í janúar. Viktor Gísli H a l l g r í m s s on , s em ei n n ig hefur verið í A-lands- liðinu í síðustu leikjum, flýgur hins vegar með liðinu til Spánar. Liðið er með Þýskalandi, Noregi, Danmörku, Argentínu og Síle í riðli en fjögur efstu liðin fara áfram í 16-liða úrslit. Mótið fer fram á Spáni síðar í júlí. Gaupi segir það dellu hjá leikmönnum að gefa ekki kost á sér Teitur Örn Atlason. Landslið Íslands U21 í handbolta Markverðir: Andri Sigmarsson Scheving, Haukar Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG Aðrir leikmenn: Ásgeir Snær Vignisson, Valur Bjarni Ófeigur Valdimarsson, FH Daníel Örn Griffin, KA Darri Aronsson, Haukar Elliði Snær Viðarsson, ÍBV Gabríel Martinez Róbertsson, ÍBV Hafþór Már Vignisson, ÍR Hannes Grimm, Stjarnan Jakob Martin Ásgeirsson, FH Kristófer Andri Daðason, HK Orri Freyr Þorkelsson, Haukar Sigþór Gunnar Jónsson, KA Sveinn José Rivera, Valur Örn Vésteinsson Östenberg, Amo Handboll Þjálfari: Einar Andri Einarsson Aðstoðarþjálfari: Sigursteinn Arndal Liðsstjóri: Hrannar Guðmundsson Fararstjóri: Stefán Þór Sigtryggsson Sjúkraþjálfari: Stefán Baldvin Stefánsson Man ekki eftir því að þessi staða hafi komið upp á Íslandi. Kannski of góðir í þetta verkefni. Della. Guðjón Guðmundsson Íþróttafréttamaður 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI „Glugginn er opinn og þetta eru klárlega stærstu félaga- skiptin,“ segir Kristinn Björgúlfsson, framkvæmdastjóri Leikmannasam- taka Íslands, léttur í lund en hann fékk heldur betur liðsstyrk í gær þegar landsliðskonurnar Sara Björk Gunnarsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir gengu í stjórnina. Fyrir voru þar Arnar Sveinn Geirs- son, leikmaður Breiðabliks, Hafdís Hinriksdóttir og Grímur Óli Geirs- son. Kristinn segir að þær Sara og Berglind hafi báðar mikinn metnað fyrir hönd leikmanna og vilji taka þátt í því að standa vörð um hags- muni þeirra. Markmið leikmanna- samtakanna er jú að sinna og vekja athygli á málefnum leikmanna og gæta að hagsmunum þeirra. Þeir leikmenn sem eru spilandi eiga, að mati samtakanna, að láta sig málin varða bæði fyrir sig og leik- menn framtíðarinnar til að gera allt umhverfi íþróttanna betra. „Þetta er sterkt fyrir okkur sem samtök að fá landsliðsfyrirliða kvenna þarna inn og sterkt fyrir stelpur að þær sjái að við séum líka að hugsa um þeirra hagsmuni. Þetta með Söru kemur út frá þeirra ósk að við hjálpum landsliðsstelpunum að semja við KSÍ. Berglind hefur fengið þjónustu hjá okkur og veit hvað við gerum og hvað við getum gert og hversu mikilvægt starfið er.“ Berglind var á mála hjá Verona á Ítalíu þar sem atvinnumannsdraum- urinn varð að martröð. Ítalska liðið braut ítrekað á samningi hennar og Örnu Sifjar Ásgrímsdóttur. Launin voru ekki greidd á réttum tíma og fyrstu vikurnar bjuggu þær í lítilli íbúð með fjórum öðrum leikmönnum þar sem þær deildu rúmi. Einn samherji þeirra svaf frammi á gangi. Vandræði voru með hitann í íbúðinni og í þokkabót lak hún. Þjálfarinn vildi ekki að leik menn brostu á æf ingum og þær eyddu hátt í 30-40 þúsund krónum í 3G í símanum því ekkert var netið. Þær voru báðar í f jarnámi á Íslandi sem fer einungis fram á net- inu. Svona mætti lengi telja. Berglind leitaði til Leikmanna- samtaka Íslands sem höfðu sam- band við samtökin á Ítalíu og hjólin fóru að snúast þótt þau snerust hægt. „Ég var í miklu sambandi við Kristin sem hjálpaði okkur mikið úti á Ítalíu. Mér finnst geggjað að vera komin inn í þetta til að aðstoða aðra leikmenn. Núna hefur maður reynslu ef eitthvað kemur upp á hjá þeim,“ segir Berglind og bætir við að hún sé virkilega spennt fyrir væntan- legu hlutverki. K ristinn segir að það sé jákvætt skref að fá leikmenn sem séu að spila til að taka þátt í starf inu. „Þetta er skref í þá átt sem við erum að taka með FIFPro, Alþjóðlegu leikmannasam- tökunum. Þeir vilja að við séum með f leiri leikmenn sem eru að spila í stjórninni. Það er því frábært að fá þær og Arnar Svein.“ Aðspurður hvort samtökin séu með nóg af málum á sinni könnu segir Kristinn að málin hafi þróast í rétta átt frá því hann stofnaði sam- tökin fyrir rúmlega fimm árum. „Það er miklu meira samstarf núna milli okkar og félaganna í landinu. Samstarf á milli okkar og KSÍ er orðið mun betra og við erum farin að vinna meira saman. Það hefur sýnt sig að það var vöntun á þessum samtökum og ef allt gengur upp þá náum við inn í FIFPro sem er mikilvægt, ekki bara fyrir okkur heldur alla leikmenn á Íslandi. Þá höfum við meiri stuðn- ing og meira fjármagn. Við erum enn svolítið í sjálf boðavinnu en við sjáum möguleikann á að ráða starfs- mann og jafnvel vera með skrifstofu þegar við göngum í raðir FIFPro.“ benediktboas@frettabladid.is Fagnar komu landsliðsfyrirliðans Fyrirliði kvennalandsliðsins í knattspyrnu, Sara Björk Gunnarsdóttir, er komin í stjórn Leikmannasamtaka Íslands. Hún og Berglind Björg Gunnarsdóttir eru nýjustu meðlimir stjórnarinnar. Framkvæmdastjóri samtakanna fagnar komu þeirra. Kristinn Björgúlfsson, framkvæmdastjóri Leikmannasamtaka Íslands, horfir björtum augum á framtíð samtakanna. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1 1 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 8 -9 E 4 C 2 3 6 8 -9 D 1 0 2 3 6 8 -9 B D 4 2 3 6 8 -9 A 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.