Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 20
LAXDAL
SUMARSALAN
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
skoðið laxdal.is
t
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
NÚ ENN MEIRI
AFSLÁTTUR
40%-70%
GÆÐAFATNAÐUR
SEM ENDIST,
VELKOMIN
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra
Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Hildur Sif segir þennan jakka vera í miklu uppáhaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Spari- og hversdagskjóllinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hildur Sif fékk að prófa rugby-búning fyrir auglýsingu.
Það var auglýst eftir fólki í Áttuna í fyrra og ég ákvað bara að prófa að sækja um.
Ég fór í áheyrnarprufur fyrir
framan dómara og þurfti að
sanna mig og af hverju ég ætti að
komast inn. Svo ég bara sannaði
mig, svona í stuttu máli,“ segir
Hildur um aðdraganda þess að
hún hefur undanfarið ár glatt
fólk á samfélagsmiðlum með
skemmtilegum sketsum og ýmsu
gríni.
„Ég gerði svona gríngaldra-
bragð sem ég sá í Family Guy.
Þeim fannst það bara sjúklega
skemmtilegt svo ég komst áfram í
viðtal og fékk svo vinnuna,“ segir
Hildur.
Hópurinn fór beint í að gera
stuttmynd sem heitir Einn séns
og lag með sama nafni. Eftir
það fylgdu reglulegir sketsar
sem hópurinn birti á samfélags-
miðlum, f leiri lög og ýmiss konar
uppákomur. „Ég hef kynnst frá-
bæru fólki í gegnum þetta og finn
að ég hef mikinn áhuga á sam-
félagsmiðlafjölmiðlun, sem er
ný tegund af fjölmiðlun. Ég ætla
klárlega að halda áfram í fjöl-
miðlageiranum í framtíðinni,“
segir Hildur.
Það heitasta
síðan ristað brauð
Hildur hefur vakið athygli fyrir
f lottan fatastíl en í Áttunni hefur
hún frjálst val um hverju hún
klæðist. „Svo framarlega sem ég
er ekki að auglýsa nein merki,“
útskýrir hún.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
„Tíska hefur alltaf verið skrýtið
fyrirbæri fyrir mér. Þegar ég var
yngri þá vildi ég aldrei klæðast
eins og aðrir, ég vildi aldrei fylgja
straumnum. Þegar ég var svona
13 ára þá mætti ég í skólann í
bleikri peysu og bleikum buxum
og fannst ég það heitasta síðan
ristað brauð,“ segir Hildur
hlæjandi.
Hún segir að hún eigi eina
uppáhaldsf lík sem eru smekk-
buxur. „Mér finnst alltaf svo
gaman að klæðast þeim því ég fæ
svo misjöfn viðbrögð þegar ég er
í þeim. Fólk einhvern veginn býst
ekki við því að ég klæðist þannig
buxum.“
Stefnir á nám í fjölmiðlun
Í mars breyttist Áttan og hætti
að vera fjöllistahópur og varð
Áttan miðlar. „Við fórum að
búa til þætti á Instagram. Við
erum núna að vinna í sumardag-
skránni okkar. Sonja Valdin er
með þátt þar sem hún fer á allar
útihátíðir og Gunnar er með falda
myndavél. Ég var með þátt í vor
þar sem ég leitaði að Instagram-
stjörnu Íslands en er ekki með
þátt eins og er,“ útskýrir Hildur.
„Mig langar að prófa að víkka
hringinn minn aðeins svo í
staðinn fyrir að vera bara á Insta-
gram ætla ég að byrja með mína
eigin þætti á YouTube. Áttan
hefur opnað fyrir mér alls konar
tækifæri. Tengslanetið mitt hefur
líka stækkað og ég er óhræddari
að grípa tækifærin þegar ég sé
þau,“ bætir hún við.
Hildur stefnir á nám í fjölmiðl-
un í Háskólanum á Akureyri í
framtíðinni en þarf fyrst að ljúka
stúdentsprófi svo í haust sest
hún á skólabekk til að klára það.
Það verður spennandi að fylgjast
með Hildi í framtíðinni en hún á
ef laust eftir að láta að sér kveða á
einhverjum miðli.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
1
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
8
-9
9
5
C
2
3
6
8
-9
8
2
0
2
3
6
8
-9
6
E
4
2
3
6
8
-9
5
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K