Fréttablaðið - 13.07.2019, Blaðsíða 4
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
NÝR RAM 3500
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
NÝTT GLÆSILEGT ÚTLIT. NÝJAR ÚTFÆRSLUR
OG FJÖLMARGAR TÆKNINÝJUNGAR Í BOÐI.
EIGUM TIL Í CREW CAB, BIG HORN, LARAMIE, SPORT OG
LIMITED ÚTFÆRSLUR TIL AFGREIÐSLU STRAX. MEGA
CAB Í LARAMIE OG LIMITED ÚTFÆRSLUM EINNIG.
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 6.987.745 KR. ÁN VSK.
RAM 3500 VERÐ FRÁ: 8.640.000 KR. M/VSK.
ramisland.is
CREW CAB
Au
ka
bú
na
ðu
r á
m
yn
d
35
” d
ek
k
Björgvin Halldórsson
tónlistarmaður
var heiðraður við
upphaf tónlistar-
og bæjarhátíðar-
innar Hjarta
Hafnarfjarðar.
Fékk hann stjörnu
með nafni sínu í
gangstéttina við Bæjarbíó en hann
er einn þekktasti sonur bæjarins.
Guðmundur
Ingi Ásmundsson
forstjóri Landsnets
lýsti grafalvarlegri
stöðu á íslensk-
um raforku-
markaði. Sagði
hann að ef til
þess kæmi þyrfti
að skera niður orku á
álagstímum og taka ákvörðun um
hverjir yrðu fyrir valinu.
Páll Ágúst Ólafsson
lögmaður
hefur haft milli-
göngu um sam-
skipti kaupenda,
skiptastjóra og
íslenskra stjórn-
valda vegna kaupa
á eignum þrotabús
WOW air. Ekki hefur enn þá fengist
upp gefið hverjir kaupendurnir eru
en það ku vera fjársterkir banda-
rískir aðilar með langa reynslu í
f lugrekstri.
Þrjú í fréttum
Stjarna,
orkuskortur
og risaviðskipti
TÖLUR VIKUNNAR 07.07.2019 TIL 13.07.2019
100
sekúndur var tím
inn sem Magnús
Ver hélt 320
kílóa Herkúl
esarhaldi þar
sem hann
mætti sínum
forna fjanda, Bill
Kazmaier.
500
kílómetrar er vegalengdin
sem félagarnir Kristján
Carrasco og Kristinn Birkis
son ganga
þvert yfir
landið.
1800
krónur
þurfa eldri
borgarar að
greiða fyrir
aðgangskort
að söfnum
borgarinnar.
55
laxar hafa veiðst í Norð
urá í Borgarfirði miðað við
557 á sama tíma í fyrra.
114
eru á biðlista
eftir grænum
tunnum í
Reykjavík.
ÍSAFJÖRÐUR „Ég er ekki sáttur við
meðferð Ísafjarðarbæjar á málinu.
Mér finnst eins og þar séu menn að
slá sig til riddara á kostnað þeirra
sem geta ekki tjáð sig,“ segir Kristinn
Arnar Pálsson, bróðir og talsmaður
manns sem var fórnarlamb þjófnað-
ar af hendi fyrrverandi starfsmanns
Ísafjarðarbæjar.
Líkt og Fréttablaðið greindi frá í
síðustu viku var kona á fertugsaldri
dæmd í fimm mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir fjárdrátt í
opinberu starfi. Konan, sem var
forstöðumaður velferðarsviðs Ísa-
fjarðarbæjar, hafði umsjón með
fjármunum skjólstæðinga bæjar-
ins. Hún var dæmd fyrir að draga
sér rúmar 1,3 milljónir króna af
reikningum ellefu skjólstæðinga
bæjarins á tímabilinu 2015 til maí-
mánaðar 2018.
Kristinn Arnar varð persónu-
legur talsmaður bróður síns, sem
getur ekki tjáð sig sökum fötlunar,
snemma árs 2018 og fékk þá aðgang
að einkabanka hans. „Ég fór að
kemba í gegnum þetta og sé alls
konar undarlegar millifærslur,“ segir
Kristinn Arnar. Í maí fékk hann svo
símtal þar sem honum var tjáð hvað
hefði gerst og að konan hefði verið
látin fara sama dag.
Hann óskaði eftir gögnum frá Ísa-
fjarðarbæ, sem eru upphæðirnar
sem forstöðumaðurinn lét per-
sónulega millifæra yfir á sig. Eru það
rúmar 700 þúsund krónur. Sömu
tölur eru í dómi Héraðsdóms Vest-
fjarða yfir konunni.
Þær tölur innihalda ekki tilvik
þar sem millifært er á aðra aðila eða
úttektir í verslunum.
Kristinn Arnar tekur sem dæmi
einn dag þar sem teknar voru út
tæplega 136 þúsund krónur. Sést á
yfirlitinu að einn reikningurinn var
fyrir naglasnyrtingu á höfuðborgar-
svæðinu. „Ég veit að bróðir minn fór
ekki í naglasnyrtingu. En ég hef ekki
fengið neinar nótur og get því ekki
sannað hvað hún hafði mikið af
honum. Það er bærinn sem á að vita
það, þeir eiga að hafa nótur frá þessu
þriggja ára tímabili.“
Samkvæmt upplýsingum frá
Ísafjarðarbæ lagði lögregla hald á
gögnin í október í fyrra og hefur
sveitarfélagið óskað eftir að fá þau
aftur.
„Bókhald einstaklinga sem ekki
var brotið á hefur verið sent í endur-
skoðun hjá endurskoðunarskrif-
stofu. Þegar gögn berast frá lögreglu
mun það bókhald sömuleiðis fara
í endurskoðun,“ segir í svari Ísa-
fjarðarbæjar.
Kristinn Arnar veit ekki hversu
mikið var tekið. „Ég hef ekki fengið
upplýsingar um nákvæmlega hversu
mikið það var en það er augljóst að
það hefur verið gengið töluvert á
peningana hans.“ Kristinn Arnar
tekur fram að allt annað starfsfólk
félagsþjónustu bæjarins hafi reynst
mjög vel. „Núna hefur allt snúist til
betri vegar.“ arib@frettabladid.is
Efast um tölurnar í dómnum
Bróðir fatlaðs manns sem var fórnarlamb þjófnaðar af hendi forstöðumanns hjá Ísafjarðarbæ dregur í
efa að upplýsingarnar sem koma fram í dómi héraðsdóms yfir forstöðumanninum séu réttar.
Málið kom upp vorið 2018. Lögreglan lagði hald á gögn í október og dómur féll síðan í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Núna hefur allt snúist til betri vegar.
Kristinn Arnar Pálsson,
bróðir brotaþola
1 3 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
C
-4
4
B
8
2
3
6
C
-4
3
7
C
2
3
6
C
-4
2
4
0
2
3
6
C
-4
1
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
2
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K