Bæjarblaðið - 25.02.1983, Qupperneq 8

Bæjarblaðið - 25.02.1983, Qupperneq 8
Leikklúbbur N.F.F.A.: Að undanförnu hafa staðið yfir á vegum leiklistarklúbbs Nemenda- félags Fjölbrautaskólans æfingar á leikritinu Klerkar í klípu e. Philip King, undir stjórn Sigurgeirs Scheving. Sigurgeir er frá Vest- mannaeyjum og hefur sett upp fjölda leikrita bæði þar og annars staðar á landinu. M.a. hefur hann tvívegis sett upp verk hér á Skag- anum eins og einhverjir muna sjálfsagt eftir, þ.e. Línu Langsokk og Allir í verkfall. Nú er hann geng- inn til liðs við nemendur í Fjölbraut, og virðist kunna ágætlega við sig. Hann kveðst ánægður með að vera aftur meðal Skagamanna, og hafa mikla ánægju að samstarfinu við skólafólkið, þar sem bæði er um skemmtilegt verkefni að ræða og eins áhugasamtog gottfólk. „Éger ekki í vafa um að þetta verður góð sýning, og er illa svikinn ef þessir krakkar sem eru með mér í þessu eiga ekki eftir að sjást á fjölunum hjá Skagaleikflokknum innan tíðar, og sum þeirra eru reyndar þegar komin þangað. Ég vona bara að skagamenn fjölmenni á sýningar hjá þeim, því að það er örugglega þess virði.“ Þetta hafði Sigurgeir m.a. að segja er hann var tekinn tali á æf- ingu hér um daginn. Leikritið sjálft þarf varla að kynna, það var sýnt við fádæma aðsókn í Austur- bæjarbíó á vegum LR. fyrir nokkr- um árum. Þetta er dæmigerður farsi þar sem hvert óhappið rekur annað uns allt er komið í hnút, en síðan auðvitað leysist í lokin með farsællegum hætti. Það ættu því allir að geta haft nokkra skemmtun af þessu, og við tökum bara undir með Sigurgeir og hvetjum bæjar- búa til að láta sjá sig á sýningum hjá þeim Fjölbrautungum og ýta þannig undir leiklistaráhugann hjá þeim. Frumsýning verður föstudaginn 25. feb. kl. 20.00, og önnur sýning sunnudaginn 27. feb. á sama tíma. Miðasala hefst kl. 18.00 báða dag- ana, og miðaverð er kr. 80 fyrir nemendur skólans, en kr. 100 fyrir aðra. Ðreytingarnar á Víkingi: Ekkert ákveðið ennþá Bœjorblotfid 25. febrúar 1983 Verð kr. 16,- Norræna félagið á Akranesi T rille syngur á kvöldvoku Víkingur með fullfermi af loðnu fyrir tveimur árum Sem kunnugt er stendur nú til að breyta Flaggskipi fiskiskipaflota okkar Akurnesinga, Víkingi AK 100, í kolmunnaveiðiskip. Fyrir nokkru voru opnuð tilboð í breytingar þessar, en hins vegar hefur ekkert verið ákveðið enn hvaða tilboði verður tekið, eða hvenær breytingar hefjast. Nýlega kom hingað á Akranes fulltrúi frá tékkneska sendiráðinu í Reykjavík og með honum Þórir Sigurðsson námsstjóri í mynd og handmennt. Tilgangur ferða þeirra hingað var að veita tveimur börn- um úr Brekkubæjarskóla viður- kenningu fyrir teiknisamkeppni er fram fór meðal skólabarna hér á landi á sl. vetri. Til að grennslast nánar fyrir um tilurð þessarar keppni leitaði bæj- arblaðið til Hjálmars Þorsteinsson- ar er var teiknikennari þessarra barna er samkeppnin fór fram. Hjálmar tjáði okkur að á síðastliðn- um vetri hefði komið boð f rá T ékkó- slóvakíu um að efnt yrði til teikni- samkeppni á þeirra vegum meðal ungra skólabarna í allmörgum löndum í Evrópu. Inntak myndanna Enn mun standa á svari frá yfir- völdum um leyfi til þessara breyt- inga og málið því allt í biðstöðu enn. Eitt af þeim fyrirtækjum sem bauð í breytingar þessar var skipa- smíðastöð Þorgeirs og Ellerts. Til- boð Þ&E var ekki meðal þeirra Verðlaunahafamir Ámi Pétur Reynisson og Jón B. Unnarsson ásamt teiknikennara sínum er keppnin fór fram Hjáimari Þorsteinssyni. lægstu. En þó getur margt breytst varðandi hagkvæmni tilboðanna þegar lokið hefur verið að fara yfir þau, þarsem fjölmargir þættirspila inn í. Við skulum vona að Þ&E verði með í myndinni, en svo stórt verkefni sem þetta hefur veruleg áhrif á atvinnulíf bæjarins, sé það unnið á heimaslóðum. er börnin voru beðin um að teikna átti að vera vinátta og bræðralag milli þjóða. Hugmynd Tékka að þessari samkeppni á sér nokkra sögu að sögn Hjálmars er nær til heims- styrjaldarinnar síðari. Þá gerðist sá atburður að Tékkneskir föður- landsvinir myrtu ríkisstjóra Nasista í landinu Heyrdirch að nafni. í hefndarskyni ákváðu nasistar að útrýma öllum íbúum í litlum bæ í Tékkóslóvakíu er hét Lediche og leggja hann síðan í rúst og afmá af landakortinu. Þetta gerðu nasistar. En nafn þessa litla bæjar lifir enn, en táknar í dag tortímingu og eyð- ingu í hugum þeirra er þekkja til atburða síðari heimsstyrjaldarinn- ar. í minningu um þennan stað og börn hans og í von um að slíkur Miðvikudaginn 2. mars n.k. mun Norræna félagið á Akranesi halda kvöldvöku í Rein, þar sem danska vísnasöngkonan Trille mun skemmtagestum. Danska vísnasöngkonan Trille kom fyrst fram opinberlega árið 1976, og fyrsta platan hennar með eigin lögum og Ijóðum kom út árið 1973. Plötur hennar hafa selst mjög vel, og hefur hún oft fengið „silfur- plötur“ fyrir 25 þúsund seldar plöt- ur. Einnig hafa komið út plötur með vísum fyrir börn, en Trille annaðist þætti fyrir börn í útvarpi og sjón- varpi, sem nutu mikilla vinsælda. Trille er án efa einn af vinsælustu skemmtikröftum í Danmörku í dag. atburður mætti aldrei nokkurs staðar endurtaka sig varð hug- myndin til um að fá börn víðs vegar um Evrópu til að tjá sig með teikn- ingum um vináttu og bræðralag þjóða á milli. Hjálmar sagði okkur einnig að allar myndir barnanna hefðu verið athyglisverðar hver á sinn hátt, þótt viðurkenningarnar féllu aðeins í hlut tveggja þeirra. En Brekkubæj- arskóli fékk einnig viðurkenningu frá Tékkum vegna þess að börnin komu frá þeim skóla. Hjálmar bað okkur að endingu að koma á framfæri þakklæti til Brekkubæjarskóla vegna þess að sér hefði verið boðið til þessarar afhendingar. Það hefði veitt sér mikla ánægju og sérstaklega það að hitta aftur sína fyrri nemendur. Danska söngkonan Trille Trille mun dveljst fimm daga hér á landi, og syngur hún í Norræna húsinu, en auk þess verður hún aðalskemmtikraftur á 60 ára af- mæli félasins „Det danske sel- skab“ í Reykjavík föstudaginn 4. mars. Það er mikill fengur fyrir Nor- ræna félagið á Akransei að fá þessa frábæru vísnasöngkonu í heimsókn, og er ekki að efa að margir Akurnesingar vilja fá að heyra í henni. í för með Trille er bassaleikarinn Hugo Rasmussen, og mun hann aðstoða hana með undirleik. Að lokinni dagskrá söngkon- unnar verður aðalfuncjur Norræna félagsins, en hann mun væntan- lega ekki taka mjög langan tíma ef að líkum lætur. Það skal sérstaklega tekið fram, að skemmtun þessi er ekki ein- skorðuð við félaga Norræna fél- agsins, heldur er öllum heimill að- gangur, meðan húsrúm leyfir. Að- gangseyri verður mjög stillt í hóf, en hann verður 30 kr. fyrir félaga, en 60 kr. fyrir aðra. Þá verðureinn- ig selt kaffi í hléinu. ÞÞ Fengu tékkneska viðurkenningu

x

Bæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.