Fréttablaðið - 02.08.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.08.2019, Blaðsíða 2
Veður Hæg austlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en þoku- bakkar eða súld við sjávarsíðuna N- og A-til. Líkur á síðdegisskúrum NA-lands. Hiti víða 15 til 22 stig að deginum, hlýjast SV-til. SJÁ SÍÐU 18 Ný brú yfir Eldvatn Sparaðu allt að 50-70%! info@fedaszdental.huHafðu samband: + 36 70 942 9573 www.tannlaeknathjonusta.is Fyrir Eftir Tannlækningar í Ungverjalandi SAMFÉLAGSMÁL Aðgengi fatlaðra að húsnæði sýslumannsembættisins í Vík í Mýrdal hefur enn ekki verið bætt þrátt fyrir að fjögur ár séu frá því að embættið og eigandi hússins, Arion banki, ætluðu að gera bragar- bót á. Arion banki hækkaði leiguna til að geta staðið straum af bættu aðgengi fatlaðra en gerði hins vegar ekkert í málinu. Fréttablaðið sagði frá því í júlí árið 2015 að fólk í hjólastólum kæm- ist ekki til sýslumanns í Vík vegna skorts á aðgengi fyrir fatlaða. Á þeim tíma sagði sýslumaðurinn á Suður- landi að ekki væri til fjármagn til að bæta úr aðgengi. Sýslumannsemb- ættið á staðnum sinnir málefnum hreyfihamlaðra en þar sem skrif- stofan er á annarri hæð í lyftulausu húsi eru aðgengismál í ólestri. Húsnæði embættisins í Vík er leiguhúsnæði en leigusalinn er Arion banki. Fram kemur í svari sýslumannsembættisins til Sjálfs- bjargar að viðauki hafi verið gerður við leigusamning árið 2015 til að gera bragarbót á aðgengismálum. Við það hækkaði leigan. „Efndir urðu engar og varð úr að samningn- um var sagt upp í lok árs 2016, enda dugðu fjárheimildir embættisins á þeim tímapunkti ekki fyrir rekstri þess,“ segir í svari embættisins. „Ég harma það sleifarlag sem bank- inn hefur sýnt í þessu máli. Bankinn er búinn að hafa fjögur ár og ekkert gert. Það sýnir forgangsröðunina í hnotskurn. Hreyfihamlaðir  mega láta sér það nægja að bíða fyrir utan. Svona framkoma er algjörlega óþolandi,“ segir Bergur Þorri Benja- mínsson, formaður Sjálfsbjargar. Arion banki hefur nú ákveðið að taka málið upp aftur og þakkar Sjálfsbjörg fyrir ábendinguna. „Til að bæta aðgengi fatlaðra var ákveðið að setja upp lyftu í húsinu og voru teikningar unnar og lyfta pöntuð. Við hörmum það hins vegar að brestur hefur orðið á eftirfylgni málsins og enn hefur ekki orðið af uppsetningu lyftunnar,“ segir Har- aldur Guðni Eiðsson, upplýsinga- fulltrúi Arion banka. „Á þessum tímapunkti eru ástæður þess mér ekki að fullu kunnar, meðal ann- ars vegna mannabreytinga innan rekstrarsviðs bankans og sumar- fría. Vegna ábendingar frá formanni Sjálfsbjargar hefur þetta mál hins vegar nú verið endurvakið og von- andi verður hægt að bæta úr þessu sem fyrst.“ sveinn@frettabladid.is Hækkuðu leiguna en aðgengi enn ekki bætt Embætti sýslumannsins í Vík getur ekki með góðu móti tekið við fötluðu fólki. Arion banki, sem á húsið, hækkaði leiguverðið svo fara mætti í fram- kvæmdir. Nú að fjórum árum liðnum hefur hins vegar enn ekkert gerst. 31. júlí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 VEÐUR SJÁ SÍÐU 18 Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Lokað 1. 2. og 3. ágúst 11 KWÖflugur gashitari Eldstæði Norðanátt, allt að 10 metrar á sekúndu. Á sunnanverðu landinu verður sólríkt og hitinn gæti farið upp í 16 stig þegar best lætur. Norðan til nær hitinn varla 10 stigum, það verður skýjað og fer að rigna um kvöldið. LÖGREGLUMÁL Öll lögregluum- dæmi, þar sem hátíðarhöld fara fram um verslunarmannahelgina, hyggjast svara fyrirspurnum fjöl- miðla um fjölda kynferðisbrota, að lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu og í Vestmannaeyjum undanskildum. Eins og fram hefur komið eru það nýmæli hjá lögreglunni í Vest- man aeyjum að greina ekki frá þeim fjölda kynferðisbrota sem kemur upp á Þjóðhátíð í Eyjum, stærstu útihátíð verslunarmanna- helgarinnar. Samantekt frétta- vefsins Bleikt segir að sextán nauðganir hafi verið tilkynntar til lögreglu á þjóðhátíð frá árinu 2004. Upplýsingagjöf til fjölmiðla verður með óbreyttum hætti hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu. Fjölmiðlar munu ekki geta hringt með fyrirspurnir um helgina en þess í stað sendir lögreglan frá sér varðstjórapóst þrisvar á sólarhring. „Við upplýsum um þau mál sem koma upp en oftar en ekki þá eru ákveðin mál ekki látin fylgja með sökum eðlis þeirra. Kynferðisbrot eru ein þeirra,“ segir Þórir Ingv- arsson, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Oftar en ekki, þegar þau [kyn- ferðisbrot] koma upp, þá eru þau viðkvæm og það hefur ekki verið talið efni til að setja þau í þess- ar færslur frekar en önnur við- kvæm mál sem lögreglan er að sinna, svo sem mannslát,“ bætir Þórir við. Fréttablaðið hafði samband við lögregluna á Akureyri, þar sem Ein með öllu og Unglingalandsmót UMFÍ fara fram um helgina. Þar feng ust þau svör að lögregl- an svari oft- ast fyrirspurn- um til lögreglu. Það gildi í raun engar reglur um það. Það sama var uppi á teningnum hjá lögreglunni á Vestfjörðum þar sem Mýrarbolt- inn fer fram. Enn verður hægt að fá upplýsingar um fjölda uppkom- inna mála fyrir vestan, af hvaða tagi sem þau eru. Jón Vilhelmsson, yfirlögreglu- þjónn á Austurlandi, segir að engar breytingar verði gerðar á upplýsingagjöf til fjölmiðla. „Ég svara fyrirspurnum fjölmiðla. Við höfum ekki átt í neinum vandræð- um með þetta.“ Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir það óeðlilegt ef upplýsingar um fjölda kynferðis- brota mega ekki koma fram. „Mér finnst óheppilegt að slíkar aðgerð- ir gagnast þeim sem síst skyldi. Þeim sem fremja þessi brot og eins þeim sem vilja halda flekk- lausri ásýnd þessara samkoma.“ snaeros@frettabladid.is Tvö umdæmi segja ekki frá na ðgunum Almennt mun upplýsingagjöf lögreglu til fjölmiðla um skemmtanahald verða með liðlegasta móti um verslunarmannahelgina. Talskona Stígamóta segir það alvar- legt ef ekki má ræða kynferðisbrot. Í Reykjavík mun enginn svara fyrirspurnum. STUÐ Búist er við miklum fjölda á Akureyri þar sem bæði Unglingalandsmót UMFÍ og Ein með öllu fara fram um helgina. Þar mun lögreglan svara fyrirspurnum fjöl- miðla ef kynferðisbrot koma upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR NÁTTÚRUVERND „Viðbrögð Ólafs vekja mikil vonbrigði en til þessa hef ég átt gott samstarf við hann og ráðlagt honum og Þingvalla- nefnd heilt um málefni þjóð- garðsins. Þar byggi ég m.a. á áratugareynslu af rannsóknum í Þingvallavatni, sem enn standa yfir,“ segir Hilmar J. Malmquist, forstöðumaður Náttúruminja- safns Íslands, en Ólafur Örn Har- aldsson þjóðgarðsvörður sagði í Fréttablaðinu í gær að Hilmar færi með rangt mál þegar hann staðhæfði að skólpvatn sytri út í umhverfið úr þróm í þjóðgarð- inum og á vatnasviði Þingvalla- vatns. „Fyrir aðeins rúmri viku fór ég á Þingvöll ásamt fræðimönn- um sem þekkja vel til náttúru svæðisins gagngert til að spá í fráveitu mál. Þar var rætt við tvo starfsmenn Ólafs Arnar um fráveitumál á Hakinu, við þjón- ustumiðstöðina á Leirum og fleiri stöðum. Þær upplýsingar sem starfsmennirnir veittu um ástand mála staðfesta mitt mál og stang- ast á við orð Ólafs Arnar,“ segir Hilmar. Hilmar segir enn fremur að viðbúið sé að á álagstímum, þegar mikill fjöldi heimsækir þjóðgarð- inn, sytri skólpvatn út í umhverf- ið, enda séu langflest kerfin á staðnum sett upp með það í huga, samkvæmt þeim gögnum sem hann hefur undir höndum um fyrir komulag við rotþrær, sytur- lagnir og tæmingu þróa. Hilmar ítrekar þá skoðun sína, sem Ólafur segir vera aulabrand- ara, að á meðan fráveitukerfi í þjóðgarðinum séu ekki afkasta- meiri en gögn bendi til sé eðlilegt að gestir hlífi þjóðgarðinum eftir bestu getu. Nánar má lesa um afstöðu Hilmars í aðsendri grein hans á visir.is. - fbj Segir viðbrögð þjóðgarðsvarðar valda vonbrigðum og skólp berist víst í vatnið: Frásögn starfsmanna ólík Ólafs DEILT UM SKÓLP Upplýsingar starfs- manna Þingvallaþjóðgarðs stangast á við orð yfirmanns þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAG „Þetta er opinber stofnun sem sinnir málefnum hreyfihaml- aðra en hún getur ekki tekið á móti þeim,“ segir Bergur Þorri Benja- mínsson, varaformaður Sjálfsbjarg- ar, Landssambands fatlaðra, um það að útibú Sýslumannsins á Suður- landi í Vík í Mýrdal sé ekki aðgengi- legt hreyfihömluðum. Útibúið er á annarri hæð í lyftulausu húsi. Bergur hefur sett sig í samband við sýslumanninn og Arion banka hf. sem er eigandi hússins, og kraf- ist þess að farið verði í framkvæmd- ir til þess að tryggja aðgengi fyrir hreyfihaml- aða. „Þetta geng- ur ekki svona og ég bíð bara eftir að þingið komi saman í haust og hefst þá handa við að gera eitthvað í málinu,“ segir Bergur. Hann segir einn einstakling í hjólastól búa í Vík í Mýrdal og það séu fleiri sem eigi erfitt með gang. „Það er bara ekki til fjármagn til að bæta úr því,“ segir Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaðurinn á Suð- urlandi, og bætir við að embættið hafi ekki fjármagn til framkvæmda, hvorki í formi hækkaðrar húsaleigu eða beinnar greiðsluþátttöku í fram- kvæmdunum. „Okkur þykir þetta afskaplega leitt. Við þjónustum þó einstaklinga sem ekki komast til okkar á annan hátt, til dæmis fara starfsmenn á heimili viðkomandi,“ segir Anna. - ngy Ekki er aðgengi fyrir hreyfihamlaða í útibúi sýslumannsins í Vík í Mýrdal og ekki er til fjármagn til framkvæmda: Fólk í hjólastól kemst ekki til sýslumannsins BERGUR ÞORRI BENJAMÍNSSON SÝSLUMAÐUR Þess er krafist að farið verði í framkvæmdir við húsnæði útibús sýslumannsins í Vík í Mýrdal. MYND/SIGURÐUR ÍSRAEL Öfgamaður stakk að minnsta kosti sex manns í gleðigöngu hins egin fólks í Jerúsalem í gær. Árásarmaðurinn, Yishai Schlissel, er nýlega sloppinn úr fangelsi en hann réðst með sama hætti á göngufólk árið 2005. Ein kona er lífshættulega slösuð og tveir karlar alvarlega slasaðir eftir árásina. Þúsundir tóku þátt í göngunni í ár en mikil öryggisgæsla var á staðnum. Þrátt fyrir árásina var ákveðið að gangan skyldi halda áfram að upphaflegum áfangastað sínum. - snæ Öfgamaður gekk berserksgang og beitti göngufólk ofbeldi: Gleðiganga í Ísrael fór úrskeiðis ÖNGÞVEITI Lífshættulega slösuð var konan flutt burt á sjúkrabörum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA ÍSRAEL Ísraelsþing samþykkti í gær lög sem heimila læknum að neyða mat ofan í fanga í hungur verkfalli. Samkvæmt lögunum mun þó þurfa leyfi dómara í hverju tilfelli. Lögin eru sett vegna fjölda pal- estínskra fanga sem fara í hungur- verkfall til að mótmæla fangelsun sinni án dóms og laga. Læknasamband Ísraels for- dæmdi löggjöfina í gær og sagði það að neyða mat ofan í einhvern jafngilda pyntingum. Þá hvatti læknasambandið lækna til að taka ekki þátt í athæfinu. Fjörutíu kusu á móti frumvarp- inu en 46 með því. - þea Samþykkja nýja löggjöf: Ísraelar neyða mat í fanga NEYTENDUR Engin salmonella greindist í erlendum alifugla- afurðum í eftirliti Matvæla- stofnunar og Heilbrigðiseftirlits sveitar félaga. Tíðni kampýlóbakter var þá minni en almennt gerist í ali- fuglakjöti erlendis enda afurð- irnar sem hingað koma til lands frosnar. Tekin voru 115 sýni af hráu, frosnu erlendu kjöti. Stærsti hluti erlends alifuglakjöts sem flutt er inn hingað til lands kemur frá Þýskalandi og Dan- mörku. - srs Könnuðu innflutt kjöt: Alifuglakjötið bakteríulaust Úrklippa úr frétt Fréttablaðsins frá 31. júlí 2015. Bergur Þorri Benjamínsson. Brúin yfir Eldvatn hjá Ásum í Skaftártungu skemmdist verulega í Skaftárhlaupi árið 2015. Nú stendur yfir vinna við uppbyggingu nýrrar brúar yfir vatnið. Til stendur að vígja brúna í lok sumars. Brúin er með frístandandi stálbogum og tekur sig vel út í landslaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR LANDBÚNAÐUR Samkeppniseftir- litið (SKE) hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort hafin verður formleg athugun á meintu samráði afurða- stöðva í kindakjötsframleiðslu. Í svari við fyrirspurn Frétta- blaðsins segir að eftirlitið hafi móttekið erindi vegna málsins frá Félagi atvinnurekenda (FA), en erindi frá Samtökum verslunar og þjónustu sem boðað hafi verið í fjölmiðlum hafi ekki borist stofn- uninni. „Eftirlitið mun á næstunni taka afstöðu til hvort og þá með hvaða hætti þessi mál verða tekin til formlegrar athugunar,“ segir í svari Samkeppniseftirlitsins. Í erindi sem FA sendi til SKE í síðustu viku er þess farið á leit að eftirlitið hefji rannsókn á hátt- semi afurðastöðva í tengslum við útf lutning á lambakjöti, sem að mati félagsins þjóni þeim tilgangi að stuðla að skorti og verðhækk- unum á vörum. Í gær var tilkynnt um breytta skoðun ráðgjafarnefndar um inn- og útf lutning landbúnaðarvara sem leggst nú gegn því að tollkvótar verði opnaðir fyrir lambahryggi, en hún komst að annarri niðurstöðu í síðustu viku þegar rannsókn hennar leiddi í ljós að það væri ekki nægilegt framboð til staðar. Eftir fyrri niðurstöðu nefndar- innar gerðu afurðastöðvar ráðstaf- anir sín á milli til að laga birgða- stöðuna og ráðherra fól nefndinni í kjölfarið að rannsaka málið að nýju. – aá Athugun vegna kjöts ekki hafin Deilt hefur verið um lambakjöts- skort. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Frá Vík í Mýrdal. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VIÐSKIPTI Icelandair Group tapaði rúmlega 40,8 milljónum Bandaríkja- dala, jafnvirði rúmlega 5 milljarða króna, á öðrum fjórðungi ársins. Tapið eykst á milli ára en á sama tímabili í fyrra nam það 25 milljón- um dala, eða rúmlega 3 milljörðum króna á gengi dagsins í dag. Heildartekjur námu 402,8 millj- ónum dala, jafnvirði 49,8 milljarða króna, og hækkuðu um 1 prósent á milli ára. EBIT var neikvætt um 24,1 milljón dala, lækkar um 4,3 milljónir dala á milli ára. EBIT var jákvætt um 25,9 milljónir dala án þegar áætlaðra áhrifa kyrrsetningar MAX-véla og eykst á milli ára um 45,7 milljónir dala. EBIT spá ársins 2019 án áhrifa MAX-kyrrsetningarinnar er jákvæð um 50-70 milljónir dala. Að teknu til- liti til þegar áætlaðra MAX-áhrifa er EBIT spá ársins neikvæð um 70-90 milljónir dala. Félagið flutti 39 prósent fleiri far- þega til Íslands á öðrum ársfjórðungi en á sama tíma 2018. – þfh Fimm milljarða tap Icelandair 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 3 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 8 7 -5 D E 8 2 3 8 7 -5 C A C 2 3 8 7 -5 B 7 0 2 3 8 7 -5 A 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 3 2 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.