Fréttablaðið - 02.08.2019, Page 4

Fréttablaðið - 02.08.2019, Page 4
Hversu sammála eða ósammála ertu því að loftslagsbreyting- ar af mannavöldum séu staðreynd? Sjálfstæðisflokkurinn | D Píratar | P n 44,6% n 34,6% n 16,3% n 3,8% n 0,6% n 62,2% n 24,8% n 8,1% n 3,0% n 1,9% n 88,7% n 10% n 0% n 1,3% n 0% n 78,4% n 18,5% n 2,2% n 0,9% n 0% n 84,7% n 13,5% n 1,8% n 0% n 0% n 79,1% n 17,7% n 0,9% n 1,4% n 0,8% n 53,8% n 35% n 9,8% n 0,7% n 0,7% n 27,4% n 29,2% n 18,2% n 10,6% n 14,6% n 23,8% n 41,8% n 6,2% n 25,4% n 2,9% Samfylkingin | S Viðreisn | C Vinstri græn | V Framsóknarflokkurinn | B Miðflokkurinn | M Flokkur fólksins | F Allir n Mjög sammála n Frekar sammála n Hvorki né n Frekar ósammála n Mjög ósammála ✿ Könnun Fréttablaðsins fólks á aldr- inum 18-24 eru mjög sammála. 83% SUMARLEIKUR FRÉTTABLAÐSINS Taktu skemmtilega sumarmynd af þér eða þínum að lesa Fréttablaðið í appinu, á vefnum eða á prenti. Sendu okkur á Facebook eða á sumarleikur@frettabladid.is. 100.000 kr. gjafabréf frá Úrval Útsýn fyrir tvær bestu myndirnar! Leiknum lýkur 12. ágúst Allar nýjustu fréttir og blað dagsins eru fáanleg á www.frettabladid.is 1 „Fyrst þegar ég sá þetta hrökk ég í kút“ Hjólreiðamað- ur hjólaði í veg fyrir bíl í Kópavogi fyrir rúmri viku. Myndband náðist af atvikinu og hefur það vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. 2 Seg ir Lilj u hafa mis not að orð ið of b eld i í pól it ísk um til gang i Gunnar Bragi segir Lilju Alfreðsdóttur misnota hugtakið ofbeldi um háttsemi þingmanna Klausturmálsins í pólitískum til- gangi. 3 Broadway-goðsögn lést í Reykjavík Broadway-leikstjór- inn og framleiðandinn Hal Prince er látinn. Hann lést í Reykjavík. 4 Ekið á heimilis lausan mann: „Ég lifi af í dag“ Ekið var á Geir Júlíus Harrysson, heimilislausan öryrkja, þegar hann var á leiðinni í Sorpu með kerru fulla af flöskum. 5 Félag Bjarna hagnaðist um 1,8 milljarða Sjávarsýn, fjár- festingarfélag Bjarna Ármanns- sonar, hagnaðist um 1,8 milljarða króna í fyrra samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. UMHVERFISMÁL Rúmlega 62 prósent eru mjög sammála því að loftslags- breytingar af mannavöldum séu staðreynd samkvæmt nýrri könnun sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið og fréttablaðið.is. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra bendir á að þegar almenn- ingur hafi nýlega verið spurður um stærstu samfélagslegu áskoranirnar hafi loftslagsmálin verið langefst á blaði. „Þannig að við skynjum alls staðar hvatningu til að grípa til aðgerða. Mér finnst það því í sjálfu sér mjög jákvætt hvað meðvitund fólks er mikil og hvað fólk er upp- lýst um þetta. Um leið held ég að þetta sé mikilvæg áminning fyrir stjórnmálin að standa í stykk- inu hvað þessi mál varðar,“ segir Katrín. Nú sé líka verið að setja aukinn þunga í rannsóknir sem tengjast loftslagsmálum. „Það er lykilatriði að það sem við erum að gera sé að skila raunverulegum árangri,“ segir Katrín. Nánast allir stuðningsmenn Pírata, Vinstri grænna, Samfylk- ingarinnar og Viðreisnar, eða á bilinu 97 til 99 prósent, eru mjög eða frekar sammála því að lofts- lagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd. Tæplega 84 prósent stuðningsmanna Framsóknar- f lokksins og tæp 80 prósent Sjálf- stæðismanna eru því sammála. Efasemdir um loftslagsbreytingar af mannavöldum er nánast ein- Jákvætt hvað fólk er meðvitað og upplýst um loftslagsmálin Mikill meirihluti landsmanna er sammála því að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd. Forsætisráðherra segir þetta áminningu til stjórnmálamanna um að standa í stykkinu. Jákvætt sé hve meðvitað og upplýst fólk er. Það komi heldur ekki á óvart hversu afdráttarlaust unga fólkið sé í málinu. N O R Ð U R L A N D For s va r smen n hvalaskoðunarfélaga í norðan- verðum Eyjafirði hafa ekki lent í teljanlegum vandræðum með að hafa uppi á hval. Freyr Antons- son, hjá Arctic Adventures á Dal- vík, segir að farnar hafi verið 180 ferðir í júlí og hvalur sést í öllum nema fjórum. „Við höfum þurft að sigla aðeins utar þar sem ætið er, það er ekkert óeðlilegt,“ segir Freyr. „Í fyrradag fór ég þrjár ferðir. Um morguninn sá ég einn hnúfubak, um miðjan daginn sá ég fimm og seinnipart- inn einn. Allt á sama blettinum.“ Í gær fjallaði Fréttablaðið um að lítið væri um hval í Eyjafirði en samkvæmt Frey og f leirum virðist vandamálið aðallega bundið við fjörðinn innanverðan. – khg Hvalir í Eyjafirði norðanverðum göngu að finna meðal stuðnings- manna Miðf lokksins og Flokks fólksins. Þannig er rúmur fimmt- ungur Miðf lokksfólks frekar eða mjög ósammála og rúm 28 prósent kjósenda Flokks fólksins. Tæp 57 prósent stuðningsmanna Mið- flokksins eru frekar eða mjög sam- mála og um tveir af hverjum þremur stuðningsmönnum Flokks fólksins. Konur eru heldur sannfærðari um loftslagsbreytingar af manna- völdum en karlar. Þannig eru tvær af hverjum þremur konum mjög sammála því en tæp 58 prósent karla. Rúm sjö prósent karla eru hins vegar ósammála því að lofts- lagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd en einungis tæp þrjú prósent kvenna. Þegar horft er á afstöðu mismun- andi aldurshópa til málsins kemur í ljós að því yngra sem fólk er, því líklegra er það til að vera sam- mála því að loftslagsbreytingar af mannavöldum séu staðreynd. Í aldurshópnum 18-24 ára eru 83 prósent mjög sammála fullyrð- ingunni og rúm tólf prósent frekar sammála. Enginn sem svaraði í þessum aldurshópi sagðist ósam- mála. Katrín segir þetta ekki koma á óvart og bendir á mikla þátttöku í loftslagsverkföllum. „Maður skynj- ar líka mikinn áhuga þegar maður ræðir við ungt fólk. Við erum að sjá hérna kynslóð koma fram sem er miklu meðvitaðri og hefur miklu sterkari skoðanir á þessu en fyrri kynslóðir.“ Í elsta aldurshópnum sem er fólk 65 ára eða eldra er rúmt 41 prósent mjög sammála fullyrðingunni og tæp 30 prósent frekar sammála. Þá reynast tæp 13 prósent ósammála fullyrðingunni. Könnu nin var f ramk væmd 24.- 29. júlí síðastliðinn og var send á tvö þúsund einstaklinga í könn- unarhópi Zenter rannsókna. Svar- hlutfallið var 51 prósent en gögnin voru vigtuð eftir kyni, aldri og búsetu. sighvatur@frettabladid.is DÓMSMÁL Blaðamannafélag Íslands fordæmir fráleita tilraun Seðla- banka Íslands til að þagga niður mál sem tengist launakjörum og hlunnindum sem bankinn veitti þáverandi f ramk væmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans. Seðlabank inn hef u r stef nt Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, fyrir dóm vegna fyrirspurnar hans til bankans um umrædd launakjör og hlunn- indi framkvæmdastjórans. Blaða- mannafélag ið k refst þess að Seðlabankinn láti af þessum fyrir- ætlunum og afhendi gögnin strax. Blaðamannafélagið segir vinnu- brögð bankans bera keim af leynd- arhyggju og kúgunartilburðum sem eigi ekki að viðgangast hjá opin- berum stofnunum. Um sé að ræða mál sem varðar almenning og er það ólíðandi að blaðamenn þurfi að standa í lang- vinnum, dýrum og tímafrekum málarekstri til að fá upplýsingar frá opinberum aðilum. Mál bankans gegn Ara verður þingfest klukkan eitt í dag í Héraðs- dómi Reykjaness. Lögmanni Ara var birt réttarstefna í gær en málið höfðar Seðlabankinn til ógildingar á úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál sem kveðinn var upp 3. júlí síðastliðinn. Í úrskurðinum er kveðið á um skyldu Seðlabankans til að afhenda Ara umbeðin gögn um námssamn- ing bankans við fyrrverandi fram- kvæmdastjóra gjaldeyriseftirlitsins. Með úrskurði fyrr í vikunni féllst héraðsdómur hins vegar á beiðni Seðlabankans um f lýtimeðferð málsins. Búist er við að í þinghaldi í dag verði lögmönnum veittur tveggja vikna frestur til að skila greinar- gerðum. – ilk, aá Vinn u brögð SÍ beri keim af kúg un ar til burð um Blaðamannafélagið fordæmir vinnubrögð Seðlabankans í málinu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI. 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :3 5 F B 0 3 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 8 7 -7 1 A 8 2 3 8 7 -7 0 6 C 2 3 8 7 -6 F 3 0 2 3 8 7 -6 D F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 3 2 s _ 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.