Fréttablaðið - 02.08.2019, Qupperneq 8
KLAUSTURSMÁLIÐ „Þær skammir
sem ég tek mest mark á í málinu
öllu eru þær sem ég fékk frá móður
minni fyrir átta mánuðum síðan,“
segir Bergþór Ólason, þingmaður
Miðf lokksins, nú þegar álit siða-
nefndar Alþingis liggur fyrir. En
þar voru nokkur ummæli hans og
Gunnars Braga Sveinssonar álitin
brotleg við siðareglur. „Siðanefnd-
arferlið hefur allt verið mjög klúð-
urslegt og þá er ég ekki að draga úr
þeim ummælum mínum sem voru
of glannaleg. En verklag bæði for-
sætisnefndar og siðanefndar hefur
verið þannig að það hefur ekki
aukið virðingu þingsins.“
Bergþór segir að hann hafi haft
það á tilf inningunni að mála-
reksturinn hafi verið settur af stað
til þess að ná fram hefndum gagn-
vart formanninum, Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni, fyrir gamlar og
óuppgerðar skuldir. Engin ummæli
hans hafi hins vegar þótt brjóta
siðareglur.
„Álitið eins og það er orðað kom
mér mjög á óvart,“ segir Bergþór.
„Þarna eru bæði rangfærslur og
rangar niðurstöður dregnar af
ummælum. Sérstaklega þegar
kemur að ummælum mínum um
Albertínu Elíasdóttur og Írisi
Róbertsdóttur. Þetta mál er svo
fjölþætt. Maður verður að geta
brugðist við ákveðnum þáttum þess
á sama tíma og maður er miður sín
yfir öðrum. Hvað varðar gildissvið
reglnanna þá virðist sem staðan sé
sú að þingmenn geti hvergi talað í
einrúmi nema innandyra heima
hjá sér.“
Hvað varðar framtíðina þá telur
Bergþór að málinu sé nú lokið.
Reiknar hann ekki með því að and-
stæðingar í pólitík muni nota álitið
gegn þeim Gunnari. „Ég reikna með
því að Klaustursmálið sé nú leitt í
jörð eftir að bæði persónuverndar-
þættinum og þinglegri meðferð er
lokið. Við sáum hversu lítið Þórhild-
ur Sunna Ævarsdóttir gerði með álit
forsætisnefndar í sínu máli og ég tek
undir margt í þeirri gagnrýni sem
hún setti fram,“ segir Bergþór.
Karlmenn setja hausinn undir sig
Bergþór skilaði athugasemdum til
nefndarinnar og er þar meðal ann-
ars vikið að ummælum um Albert-
ínu. Hefur Bergþór ekki dregið orð
sín til baka né beðist afsökunar á
þeim. Í athugasemdum segir hann:
„Ég er að lýsa því þegar núverandi
þingkona gekk svo nærri mér kyn-
ferðislega að ég var lengi að átta mig
á því hvað hafði gerst.“
Aðspu rðu r seg ist B er gþór
ekki vilja ræða það í þaula hvað
nákvæmlega fór fram á milli hans
og Albertínu. „Ég gerði ekkert meira
með þetta á sínum tíma, heldur fyr-
irgaf og hélt áfram.“ Bergþór ræddi
ekki við Albertínu eftir atvikið
en eftir að Klaustursupptökurnar
voru birtar ræddi hann stuttlega
við hana.
Samtalið berst nú að því hvort
hann upplifi að hann sé ekki tekinn
trúverðugur sem þolandi í ljósi þess
að hann er karlmaður í valdastöðu.
„Ég held að það sé ekki farið að
reyna á það,“ segir hann. „Alveg
fram á síðustu stundu var ég að
vonast til þess að siðanefnd kippti
þessum anga málsins út. Í öðrum
viðtölum hef ég beðist undan því
að þetta yrði rætt. Ég held að karl-
menn almennt séu ekki áhugasamir
um að ræða uppákomur sem þessar.
Menn setja hausinn undir sig og
halda áfram.“
Bergþór segir það ekki rétt að
þeir sem sátu á Klaustri hafi verið
að henda grín að MeToo-umræð-
unni. „Það verður forvitnilegt að sjá
hvernig þeir sem mestar hafa haft
skoðanir á þessum málum takast
á við það þegar karlmaður kemur
fram með sögu sem þessa.“
Hélt sig utan kastljóss fjölmiðla
Þegar Klaustursmálið kom upp
í byrjun desember í fyrra komu
flestir hlutaðeigandi strax fram og
gáfu viðtöl. Bergþór hélt sig hins
vegar alveg frá kastljósi fjölmiðla í
tvo mánuði.
„Það lá fyrir að ég þyrfti að taka
mig í sjálfsskoðun, ef þetta væri sá
innri maður sem ég hefði að geyma.
Ég dvaldi bæði hér heima og í Þýska-
landi þar sem dóttir mín býr. Það
liggur fyrir að ég olli sjálfum mér
og mínum nánustu vonbrigðum,“
segir Bergþór.
Hann segir að afstaða sín til
málsins hafi breyst nokkuð eftir
að hafa lesið handritið af samtal-
inu og séð myndbandsupptökur.
Að þessum hlutum skoðuðum
hafi það blasað við að ekki var
kerfisbundið verið að rakka niður
konur og minnihlutahópa heldur
var verið að ræða pólitíska and-
stæðinga.
„Það verður að skoða þetta
mál í samhengi eins og til dæmis
ummælin um Írisi Róbertsdóttur.
Við sátum þarna lengi og ræddum
stjórnmál og ræddum meðal annars
hver myndi leiða lista Sjálfstæðis-
manna í Suðurkjördæmi í næstu
alþingiskosningum.“
Segir hann að ummælin „minna
hot í ár“ hafi átt við í þeim skilningi
að hún hefði leitt klofningsframboð
og sé komin í meirihlutasamstarf í
Vestmannaeyjum með vinstri-
mönnum. Það blasi því við að hún
sem stjórnmálamaður sé ekki eins
spennandi sem mögulegur oddviti
Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi
fyrir næstu alþingiskosningar og
hún var áður.
„Menn tala með ákveðnum hætti
í pólitík. Til dæmis sagði Hanna
Katrín Friðriksson í útvarpsvið-
tali fyrir skemmstu að eitt megin-
markmið Viðreisnar sé að einangra
Miðf lokkinn. Slík athugasemd
fellur ekki af himnum ofan og innan
þeirra raða hefur væntanlega verið
talað mjög harkalega um okkur.“
Bergþór segist sjá hvað mest
eftir að hafa talað harðneskjulega
um Ingu Sæland, formann Flokks
fólksins. „Ég ræddi við hana strax
í byrjun og hún var svo höfðingleg
að fyrirgefa mér þá. Ég ræddi við
alla nema Írisi, sem ég náði ekki í.
Viðbrögðin voru upp og ofan, enda
gekk mikið á.“
Orkupakkinn ekki smjörklípa
Þegar málið kom upp hrundi Mið-
flokkurinn í könnunum og fréttir
voru f luttar af úrsögnum. Enginn
þungavigtarmaður sagði þó skilið
við flokkinn. Bergþór segir að málið
hafi reynst f lokknum erfitt á fyrstu
vikunum og mánuðunum. Síðan
hafi raðirnar þést og hann fundið
fyrir stuðningi úr baklandinu.
„Menn takast á eins og gengur,“
segir Bergþór þegar talið berst að
núningi innan f lokks, þá sérstak-
lega við Birgi Þórarinsson. „Birgir
talaði með mjög ákveðnum hætti
þarna fyrst á eftir. Hann setti fram
skoðanir sem ég var ekki mjög
ánægður með að sumu leyti. En við
Birgir höfum unnið mjög vel saman
undanfarið.“
Þegar leið á vorið fór að fenna yfir
Klaustursmálið og við tók umræð-
an um þriðja orkupakkann þar sem
Miðflokkurinn var í háværri and-
stöðu. Bergþór hafnar því alfarið að
Flokkurinn hafi notað málið til þess
að eyða umræðunni um Klaustur
eins og sumir hafa haldið fram.
„Það er fráleitt,“ segir Bergþór.
„Það voru tvö sérstaklega stór mál
á síðasta þingi, þriðji orkupakkinn
og afnám frystiskyldu af innfluttu
kjöti, þar sem lá allan tímann fyrir
að Miðf lokkurinn myndi taka
slaginn. Þegar ég kom aftur inn á
þing í lok janúar sagði ég strax að
ég myndi ekki fara í neinn feluleik
heldur sinna þeim málum sem ég
var kosinn fyrir. Klaustursmálið
yrði að fá að hafa sinn gang og var
enginn hvati í öðrum málum.“
Tvískinnungur Samfylkingar
Miðf lokkurinn hefur mælst vel í
könnunum upp á síðkastið og er
nánast á sama stað og hann var
áður en málið kom upp. Hefur fólk
því velt fyrir sér hvaða pólitíska
merkingu málið hafði.
„Ég held að það hafi haft þau áhrif
að fólk hagi orðum sínum skynsam-
legar, að minnsta kosti geri ég það.
Ég held að Klaustursmálið hafi haft
meiri áhrif á okkur sem persónur
heldur en eiginleg pólitísk áhrif.“
Bergþór segist ekki upplifa Mið-
flokkinn sem einangraðan á þingi
og er fullviss um að flokkurinn gæti
unnið með öðrum flokkum í ríkis-
stjórn ef svo bæri undir.
„Eftir að ég kom aftur inn á Alþingi
tók ég eftir að sumir vildu sýna hvað
þeim þætti lítið til mín koma. En
þegar leið á veturinn varð ég ekki var
við ónot að neinu marki,“ segir hann
og er bjartsýnn á að samstarf verði
gott á komandi þingvetri. Þá telur
hann Samfylkingarfólk hafa sýnt
mikinn tvískinnung. „Við sjáum nú
að það eru fjögur ókláruð mál inni
í siðanefnd Samfylkingarinnar og
svo nýlegt mál Ágústs Ólafs. Þetta
er sama fólk og hefur haft hæst í
tengslum við Klaustursmálið.“
Skammir móðurinnar vógu þyngra
Ólíkt öðrum á Klaustri hélt Bergþór Ólason sig alveg til hlés lengi eftir að málið kom upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Álit siðanefndar Alþing-
is kom Bergþóri Ólasyni
á óvart en hann telur
að Klaustursmálinu sé
nú lokið. Bergþór ræðir
meðal annars núning
innanflokks, tvískinn-
ung andstæðinga og
hafnar því að orku-
pakkamálið hafi verið
smjörklípa.
Ég held að Klaust-
ursmálið hafi haft
meiri áhrif á okkur sem
persónur heldur en eiginleg
pólitísk áhrif.
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur@frettabladid.is
Birgir talaði með
mjög ákveðnum
hætti þarna fyrst á eftir.
Hann setti fram skoðanir
sem ég var ekki mjög ánægð-
ur með að sumu leyti. En við
Birgir höfum unnið mjög vel
saman undanfarið.
2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:3
5
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
8
7
-5
8
F
8
2
3
8
7
-5
7
B
C
2
3
8
7
-5
6
8
0
2
3
8
7
-5
5
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
3
2
s
_
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K