Fréttablaðið - 28.06.2019, Page 30

Fréttablaðið - 28.06.2019, Page 30
Við berum öll samfélagslega ábyrgð á að draga úr og sporna við áhrifum loftslagsbreytinga. Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Upphaflega var Kolviður með ræktun á Geitasandi á Rangárvöllum. Það svæði er orðið fullplantað svo Kolviður hóf fyrir tveimur árum að gróðursetja á Úlfljótsvatni að sögn Brynjólfs Jónssonar, framkvæmdastjóra SÍ. BÍS og SÍ keyptu landið saman árið 2012 af Orkuveitunni og eiga það til helminga. Þá gerði Kolviður samning á þessu ári við landeig­ endur á Úlfljótsvatni um ný svæði til skógræktar. Skógurinn verður ræktaður á Úlfljótsvatni og eykur við þar sem þegar er kominn nokkuð grósku­ mikill skógur fyrir tilstilli Skógar­ skáta, sem hófu að planta trjám fyrir nokkrum áratugum. Nú sér SÍ um ræktun skógarins í samstarfi við sjóðinn Kolvið, sem býður fyrirtækjum að kolefnisjafna sig með ræktun á svæðinu. Fleiri kolefnisjafna starfsemi Brynjólfur Jónsson, framkvæmda­ stjóri SÍ, segir að landið sé 1.500 hektarar að stærð og búið sé að semja um 300 hektara tileinkaða Kolviði. „Það eru fjölmörg fyrir­ 300 hektarar fara í kolefnisjöfnun Brynjólfur og Kristinn segja sam- starf skógræktarinnar og skátanna hafa gengið vel í gegnum árin. Við Úlfljótsvatn mun rísa mikill kolefnisjafnandi skógur á áratugunum fram undan. Bandalag ís- lenskra skáta (BÍS) og Skógræktar- félag Íslands (SÍ) gerðu samning við Kolvið til 70 ára um ræktun skógar til kol- efnisjöfnunar. tæki sem nýta sér þeirra þjónustu.“ Sérstaklega hefur þeim fjölgað á síðustu tveimur árum þar sem krafan um sjálf bærni hefur orðið háværari. Fyrirtækið Klappir hefur boðið fyrirtækjum að reikna út kol­ efnisfótspor og hve mikið þyrfti að rækta til að koma til móts við útblástur fyrir hvert fyrirtæki. „Klappir hafa hvatt mörg fyrirtæki til að vinna að þessu máli í sam­ starfi við Kolvið og með því móti hefur vaxið glænýr sproti sem menn hafa trú á.“ Brynjólfur segir að nú þegar hafi Kolviður plantað allt að 300.000 trjám á síðustu tveimur árum. Það tekur samt sinn tíma fyrir skóginn að vaxa en sá tími fer eftir trjá­ tegundinni. Skátarnir með mannræktina „Á meðan þau eru í skógræktinni sjáum við um mannræktina,“ segir Kristinn Ólafsson, framkvæmda­ stjóri BÍS. „Á okkar hluta rekum við tjaldstæði á sumrin, svo erum við með skólabúðir og skátastarf­ semi. Þannig að við erum að nýta landið til útivistar í leik og störf. Það má segja að þetta sé okkar heimavöllur. Við höldum líka skátamót þarna og erum með mikla starfsemi allt árið um kring.“ Kristinn segir að mannlífið muni njóta góðs af því að skógur­ inn vaxi, trjárækt skátanna á fyrri árum hefur þegar borið mikinn og fallegan ávöxt. „Landið er sífellt að verða hentugra til útivistar því skógurinn hlífir okkur fyrir veðrinu og gefur umhverfinu skemmtilegan blæ. Þá bætast við tækifæri til að vera með fjöl­ breytta dagskrá.“ Takast á við náttúruöflin BÍS stendur líka fyrir siglingum og veiðum í Úlfljótsvatninu sjálfu, „þannig að við erum að nýta nátt­ úruna í allri sinni dýrð. Fólk í dag fær kannski minna að kynnast náttúrunni, f lestir alast upp í vernduðu umhverfi malbiks og stéttar. Þarna erum við að leyfa ungu fólki að fara út í náttúruna og læra að takast á við hana. Það er samt alltaf hugað vel að öryggismálum þannig að það er ekki mikil hætta á slysum á svæðinu.“ Skátarnir passa vel upp á það að sögn Kristins. 8 KYNNINGARBLAÐ 2 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RKOLEFNISJÖFNUÐUR Þórunn segir að þeir sem vilja kolefnisjafna með því að auka bindingu kolefnis í jarð­ vegi og gróðri eigi að leggja megin­ áherslu á að fjárfesta í aukinni útbreiðslu innlendra tegunda eins og birkis og víðis. „Það eru gríðarlegir möguleikar til að auka útbreiðslu birkiskóga og víði­ kjarrs hérlendis. Gögn okkar sýna að neðan 600 metra hæðar yfir sjávarmáli eru allt að 15 þúsund ferkílómetrar af röskuðu landi og mikið af því er enn að eyðast og tapa kolefni.“ „Stóraukin útbreiðsla innlendra trjátegunda er mjög öflug leið til að draga úr og aðlagast áhrifum loftslagsbreytinga. Samhliða er það náttúruverndaraðgerð sem felur í sér fjölbreyttan umhverfis­ ávinning, er hlutfallslega ódýr, auðveld í framkvæmd og allir geta tekið þátt,“ segir Þórunn. „Innlendar tegundir eins og birki, gulvíðir og loðvíðir eru aðlagaðar aðstæðum á Íslandi og búa yfir miklum erfðabreytileika sem nauðsynlegt er að vernda. Fjöl­ breytileikinn er því trygging gagn­ vart áföllum eins og náttúruvá af ýmsum toga.“ Kolefnisjöfnun og náttúruvernd Þórunn leggur áherslu á að við eigum að virkja getu náttúrunnar til að græða sig sjálf. „Það er nóg að sá birkifræi eða gróðursetja í 5­10% af f latarmáli þess lands­ svæðis sem á að endurheimta og búa þannig til fræuppsprettur innan þess. Náttúran mun svo sjálf taka við og sjá til þess að með tímanum mun birki og víðir vaxa um allt svæðið. Þetta tekur aðeins örfáa áratugi, eina sem þarf að gera er að friða landið fyrir sauðfjár­ beit. Kostnaður við þessa aðgerð fer eftir ástandi landsins sem á að endurheimta og er á bilinu 40.000­ 200.000 kr. á hektara,“ segir hún. 1.000 ferkílómetra aukning fyrir árið 2030? „Við berum öll samfélagslega ábyrgð á að draga úr og sporna við áhrifum loftslagsbreytinga og endurheimt birkiskóga og víði­ kjarrs er áhrifaríkasta aðgerðin sem við getum beitt hérlendis. Við eigum að taka þetta verkefni saman í fangið og setja okkur metnaðarfullt markmið um að stórauka útbreiðslu birkiskóga og víðikjarrs, helst um 1.000 ferkíló­ metra fyrir árið 2030. Það er vel hægt ef við leggjumst öll á eitt,“ segir Þórunn að lokum. Hjálpum náttúrunni að hjálpa sér sjálfri „Ein mikilvirkasta aðferðin sem við höfum til kolefnisjöfn- unar verndar um leið íslenska náttúru og því mikilvægt að við nýtum okkur hana í sem flestum tilfellum,“ segir Þórunn Pétursdóttir, sviðsstjóri hjá Landgræðslunni. Þórunn Pétursdóttir, sviðsstjóri hjá Landgræðslunni, telur að kolefnis- jöfnun sé verkefni sem allir ættu að taka til sín. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 2 8 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 5 2 -A 4 0 4 2 3 5 2 -A 2 C 8 2 3 5 2 -A 1 8 C 2 3 5 2 -A 0 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.