Víkurfréttir - 09.05.2019, Qupperneq 1
Háhraða internet og hágæða sjónvarp
EKKERT LÍNUGJALD, FRÍR ROUTER
ENGIR AUKAREIKNINGAR
Kapalvæðing • Hafnargata 21 • 421 4688 • kv@kv.is
www.kv.is • www.facebook.com/kapalvaeding
frá 6.890 kr/mán.
„Það var ákveðin blessun að Varnarliðið fór frá Íslandi árið 2006 þegar
málin eru skoðuð eftirá, þó svo að það hafi verið mikið áfall á þeim tíma.
Það er miklu betra og heilbrigðara að lifa á eigin þjónustu og starfsemi en
að þurfa að sækja peninga til Bandaríkjanna. Við erum að standa okkur
vel í ferðaþjónustunni sem á bjarta framtíð fyrir sér á Suðurnesjum og
landinu öllu,“ segir Njarðvíkingurinn Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor
og hagfræðingur í næsta þætti Suður með sjó sem sýndur verður n.k.
Sunnudagskvöld.
Hilmar Þór segir m.a.
frá því í viðtalinu þegar
hann tók þátt í starfi
kostnaðarlækkunar-
nefndar Varnarliðsins
en Halldór Ásgrímsson,
þáverandi utanríkis-
ráðherra, kallaði hann
heim til þeirra starfa
frá Alþjóðabankanum
og Hilmar var formaður
hennar. Hilmar segir að
Bandaríkjamenn hafi verið farnir að
hugsa sér til hreyfings frá Keflavíkur-
flugvelli rúmum áratug áður en þeir
fóru endanlega með manni og mús
árið 2006. Hilmar segir að það hafi
verið stöðug togstreita við Banda-
ríkjamenn þann tíma því það voru
miklir hagsmunir undir
hjá Íslendingum og ekki
síst Suðurnesjamönnum
en mikill fjöldi þeirra vann
á Vellinum.
Hilmar Þór er alinn upp
í Njarðvík og sótti Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja,
þaðan lá leið hans í Há-
skóla Íslands til að nema
hagfræði en á þeim árum
starfaði Hilmar Þór líka
fyrir Kaupfélag Suðurnesja og tengd-
ist starfi Framsóknarflokksins. Var
hann m.a. aðstoðarmaður Halldórs
Ásgrímssonar, utanríkisráðherra, í
fjögur ár. Hann lauk doktorsprófi í
Bandaríkjunum og starfaði hjá Al-
þjóðabankanum í tólf ár og hefur á
ferli sínum síðan unnið fyrir hann í
þremur heimsálfum og tók þá m.a.
þátt í mjög merkilegu uppbyggingar-
starfi í löndum eins og Lettlandi, Mós-
ambik og Víetnam.
Hilmar Þór hefur gefið út þrjár
bækur en sú nýjasta fjallar um við-
brögð Norðurlandanna og Eystra-
saltsríkjanna við kreppunni sem skall
á 2008 og árangur af mismunandi
efnahagsstefnum. „Á Íslandi féll
gengið og bankarnir hrundu. Ef við
skoðum árangur stefnunnar á Íslandi
er hann mun betri. Mikill hagvöxtur,
lítið atvinnuleysi og aukið svigrúm
til útgjalda til velferðarmála“ segir
Hilmar sem hefur verið gestafyrirles-
ari í mörgum af þekktustu háskólum
í heimi en hann starfar nú sem pró-
fessor við Háskólann á Akureyri.
– segir Njarðvíkingurinn Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor og hagfræðingur, sem starfaði m.a. í tólf ár hjá
Alþjóðabankanum. Segir Íslendinga hafa tekið hagfelldari ákvarðanir í bankahruninu 2008 en t.d. Eystrasaltsríkin gerðu.
Blessun að Varnarliðið fór
SUNNUDAGINN 12. MAÍ KL. 20:30
SUÐUR MEÐ SJÓ
Njarðvíkingurinn Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor
og hagfræðingur, sem starfaði m.a. í 12 ár hjá
Alþjóðabankanum, er gestur okkar í Suður með sjó í þessari viku
Hann segir Íslendinga hafa tekið hagfelldari ákvarðandir
í bankahruninu 2008 en t.d. Eystrasaltsríkin gerðu.
Suður með sjó á sunnudagskvöld á Hringbaut.
SUÐUR MEÐ SJÓ
Í HLAÐVARPI VÍKURFRÉTTA
Páll Ketilsson ritstjóri Víkurfrétta ræddi
við forsetahjónin eftir vel heppnaða
heimsókn til Reykjanesbæjar.
Forsetahjónin
í opinberri heim
sókn í Reykjanesbæ
Forseti Íslands, Guðni Th. Jó
hannesson, og eiginkona hans,
Eliza Reid, voru í tveggja daga
opinberri heimsókn í Reykjanesbæ
í síðustu viku. Hjónin fóru víða
um Reykjanesbæ og heimsóttu um
tvo tugi fyrirtækja og stofnana.
Eitt af fyrstu verkum forsetans var
að setja Listahátíð barna sem nú
stendur yfir í Reykjanesbæ. Eftir að
hafa sett hátíðina settust forseta
hjónin á meðal leikskólabarna sem
voru á hátíðinni. Í Víkurfréttum
í dag er myndarleg umfjöllun um
heimsókn forsetans. Suðurnesja
magasín á fimmtudagskvöld á
Hringbraut og vf.is er einnig helgað
heimsókninni en Víkurfréttir
áttu ítarlegt viðtal við Guðna
og Elizu um heimsóknina.
VFmynd: Páll Ketilsson
Xtra franskar
1 kg
Opnunartími Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími Tjarnarbraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
Gildir 9.–15. maí
Opnum snemma
lokum seint
Grill í kvöld?
25%
299
kr/stk
áður
398 kr
25%
1.349
kr/kg
áður
1.798 kr
399
kr/stk
áður
499 kr
20%
Kjötsel Grísagrillsneiðar
Kambsneiðar
MM Hvítlaukssósa
300 ml
fimmtudagur 9. maí 2019 // 19. tbl. // 40. árg.
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2