Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.05.2019, Side 4

Víkurfréttir - 09.05.2019, Side 4
Reykjanesbær í samstarfi við Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, stendur fyrir málþingi um frjálsan leik og útiveru barna og fjölskyldna sem er liður í Barnahátíð í Reykjanesbæ sem nú stendur yfir. Aðalfyrirlesari á málþinginu er Griffin Longley, ástralskur fjölmiðlamaður og frumkvöðull í útiveru og frjálsum leik barna. Griffin er stofnandi og framkvæmdastjóri Nature Play í Ástr- alíu. Auk Griffins mun Gunnhildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður fé- lagsmiðstöðvarinnar Fjörheima og 88 hússins, kynna áherslur í starfsemi þeirra. Þinginu lýkur svo með erindi Björns Þórs Jóhannssonar mann- fræðings og viðburðarstjórnanda um mikilvægi leikja og hópeflis með börnum og unglingum en hann hefur unnið að margvíslegum verkefnum þessu tengdu. Fjölbreytt dagskrá um helgina – allir velkomnir! Málþingið fer fram föstudaginn 10. maí frá kl. 13 til 15 í fyrirlestrarsal Keilis að Gænásbraut 910. Málþingið stendur öllum opið og aðgangur er ókeypis. Reykjanesbær mun einnig standa fyrir ævintýragöngu á Þorbjörn fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 11. maí í samstarfi við Gönguhóp Suðurnesja, Björgunarsveitina Suðurnes og Leik- félag Keflavíkur. Gangan leggur af stað frá bílastæðum við Þorbjörn kl. 10:30 og verður full af lífi og fjöri. Gangan er liður í Barnahátíð í Reykjanesbæ. Ævintýraganga fjölskyldunnar á Þorbjörn við Grindavík fer fram á vegum Reykjanesbæjar í samstarfi við Gönguhóp Suðurnesja, Björgunarsveitina Suðurnes og Leikfélag Keflavíkur laugardaginn 11. maí kl. 10:30. Gangan er sett á laggirnar í tengslum við málþingið „Út að leika,“ og Barnahátíð í Reykjanesbæ. Gangan er ætluð allri fjölskyldunni og munu félagar úr Leikfélagi Keflavíkur sjá um að halda uppi góðri stemningu í göngunni. Þá munu félagar úr Björgunarsveitinni Suðurnes fylgja göngufólki alla leið. Fjölskyldur er hvattar til að fjölmenna og taka með sér nesti og góða skapið. Gangan leggur af stað frá bílastæðum við Þorbjörn. Á málþinginu „Út að leika“ sem fram fer deginum áður, föstudaginn 10. maí frá kl. 13-15, í fyrirlestrarsal Keilis að Gænásbraut 910, Ásbrú, verður fjallað um frjálsan leik og útiveru barna og fjölskyldna en um samstarfsverkefni Reykjanesbæjar og Keilis, miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, er að ræða. Meðal fyrirlesara þar verður Griffin Longley, ástralskur fjölmiðla- maður og frumkvöðull í öllu sem við- kemur útiveru og frjálsum leik barna. Griffin er stofnandi og framkvæmda- stjóri Nature Play í Ástralíu. Út að leika! Málþing um frjálsan leik og útiveru barna og fjölskyldna Ævintýraganga fjölskyld- unnar á Barnahátíð Listahátíð barna í veðurblíðu Listahátíð barna stendur nú yfir í Reykjanesbæ en hún var sett með pompi og prakt í fjórtánda sinn sl. fimmtudag. Hátíðin náði ákveðnu hámarki sl. laugardag í veðurblíðu í Reykjanesbæ. Duus Safnahús eru undirlögð af list- sýningum leik-, grunn- og list- námsbrautar framhaldsskólans sem hafa unnið hörðum höndum stóran part úr vetri að verkefnum sínum. Yfirskrift sýninganna í ár er Hreinn heimur – betri heimur og hafa krakkarnir kafað ofan í við- fangsefnið og fræðst um nýtingu, endurvinnslu, grænu tunnuna, plastnotkun og fleiri af þeim brýnu málefnum. Verkefni þeirra var að sjá fyrir sér hreinni heim – betri heim og verður áhugavert að sjá lausnir þeirra settar fram á list- rænan hátt. GOLFSKÓLI GS 2019 FYRIR BÖRN Á ALDRINUM 6 TIL 13 ÁRA NÝLIÐAKENNSLA ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á GS.IS NÝLIÐAGJALD Í GS ER 43.000 KR. BÖRN AÐ FJÓRTÁN ÁRA ALDRI GREIÐA EKKERT UNGLINGAR (15–18 ÁRA) GREIÐA 13.000 KR. Komdu út að leika! Leiran er ei af betri golfvöum landsins 18 holu golfvöur á besta stað Það er gaman í golfi! SIGURPÁLL GEIR SVEINSSON PGA-GOLFKENNARI OG ÞREFALDUR ÍSLANDSMEISTARI ER ÍÞRÓTTASTJÓRI OG GOLFKENNARI GS 4 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 9. maí 2019 // 19. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.