Víkurfréttir - 09.05.2019, Síða 8
Búðu til
minningar
Rannsóknir hafa sýnt að
tómstundaiðja getur spilað
veigamikið hlutverk í bataferli
og aukið heilsu og vellíðan í
daglegu lífi. Þátttaka í tóm-
stundaiðju og önnur upplyfting
hjá fullorðnum getur ýtt undir
sköpunargáfu og andagift auk
þess að styrkja félagsleg tengsl.
Leirnámskeið - Fjöldskylduminningar
Krabbameinsgreindum og aðstandendum býðst að fara á
leirnámskeið í Reykjanesbæ þeim að kostnaðarlausu. Þetta eru
tveir laugardagar, þann 11. og 18. maí (báðir dagarnir) og
er frá 11-17. Hámarksþátttaka er 7 manns.
Ef þú hefur áhuga þá getur þú hringt í 421-6363 eða
sudurnes@krabb.is og skráð þig. Þetta námskeið er haldið af
Helgu Láru Haraldsdóttur listakonu.
Þá benda rannsóknir einnig til
þess að tómstundaiðja, sem er
innihaldsrík, eflir fólk í að hafa
stjórn á aðstæðum og minn-
kar streitu. Þátttaka í iðju veitir
þannig einstaklingum ábyrgð og
tilfinningu um að skipta
máli auk þess að veita
skemmtun og slökun.
Yfirmaður gæðamála
Royal Iceland hf. leitar að starfsmanni til að sjá um gæðahandbækur
félagsins, HACCP kerfi, vörumerkingar, vörulýsingar ásamt ýmsum
öðrum verkefnum. Starfsmaðurinn þarf að vera í samskiptum við
erlenda kaupendur, innlendar sem erlendar eftirlitsstofnanir, eigið
framleiðslufyrirtæki í Póllandi, en einnig að vera virkur í framleiðslu
félagsins hér heima, sem og að geta gengið í ýmis önnur störf innan
félagsins í afleysingum.
Menntun á sviði matvælaframleiðslu æskileg ásamt reynslu við sam-
bærileg störf. Tungumálakunnátta þarf að vera góð. Hlutastarf kemur
til greina en viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega.
Umsóknir sendist til lbj@royaliceland.is fyrir 15. maí.
Royal Iceland er framleiðandi á hágæða sjávarafurðum fyrir kröfu-
harðan markað í ýmsum hrognaafurðum, skelfiskafurðum og reyktum
afurðum til útflutnings. Félagið er staðsett að Hafnarbakka í Njarðvík.
Vertíðarlok og vertíðarstemning
Nú eru ekki nema fimm dagar í vetrarvertíðarlok árið 2019 sem eru 11.
maí eins og verið hefur ár hvert. Vertíð eða vertíðarstemning er ekki
svipur hjá sjón miðað við hvernig þetta var áður fyrr.
Fyrst ég opna þennan pistil á vertíðinni þá er rétt að nefna það að eitt besta
knattspyrnulið landsins, Reynir Sandgerði, ætlar sér að breyta aðeins útaf
hinum hefðbundna þorrablótsvana
eins og mörg önnur íþróttafélög eru
með, því Reynismenn ætla sér að
halda „vertíðarlok 2019“, ball og með
flottum mat. Fer þetta fram í íþrótta-
húsinu í Sandgerði.
Þetta er nýbreytni og má segja að það
sé langt síðan vertíðarlokaball hafi
verið haldið hérna á Suðurnesjum.
Hægt er að panta miða á midi@
reynir.is. Endilega þrusið ykkur á
miða og skellið ykkur á þetta ball.
Flott dagskrá og veislustjóri er
Hjörvar Hafliða sem vill svo til að
er sonur Hafliða Þórssonar sem var
með útgerð og fiskvinnslu í Sand-
gerði og rak meðal annars loðnuverk-
smiðjuna, þeirri sömu og minnst var
á í pistlinum um páskana.
Aðeins meira um Hafliða en þá vann
ég hjá honum bæði í verksmiðjunni
og var 2. vélstjóri um borð í Þór
Péturssyni GK, sem var togbátur
og heitir í dag Helgi SH.
Já, vertíðin 2019 er að verða búin
og á meðan hún er að klárast þá er
grásleppuvertíðin ennþá í gangi og
núna er enn ein vertíðin að komast í
gang, strandveiðitímabilið. Kannski
ekki hægt að kalla það vertíð, því allir
eru bundnir við 800 kílóa afla á dag
miðað við þorsk. Þó er það þannig
að þeir sem einbeita sér að því að
veiða ufsa mega koma með um 1200
kíló af ufsa í land í einni löndun. Það
er nefnilega þannig að á svæðinu í
kringum Eldey hefur oft verið að
finna ufsa og þó nokkrir bátar hafa
lagt sig í líma við það að veiða ufsa
á handfærin.
Þekktust eru náttúrlega Stjáni og
kona hans, sem réru í mörg ár á
eikarbátnum Skúmi RE frá Sand-
gerði. Samhliða honum var báturinn
Birgir RE líka alltaf á veiðum skammt
frá Skúmi RE en þessi bátar réru ár
eftir ár á færum frá Sandgerði og
voru að mestu að einbeita sér að ufsa.
Ef við færum okkur aðeins nær
nútímanum þá var um tíma einn
bátur sem var hvað mest að eltast
við ufsann á handfærum og gekk
það svo vel eitt árið að Ragnar Al-
freðs GK var aflahæstur allra smá-
báta á landinu í ufsa. T.a.m. landaði
báturinn fiskveiðiárið 2009-2010 alls
140 tonnum af ufsa og í júní árið 2010
var báturinn með 62 tonn í ellefu
róðrum og mest 10,3 tonn í einni
löndun og var mest allt ufsi.
Kvóti bátsins varð enda ansi góður
því að síðasta úthlutun á Ragnari
Alfreðs GK var árið 2015 og var þá
báturinn með um 320 tonna kvóta
en af því var ufsi um 146 tonna
kvóti. Kvótinn var að endingu allur
seldur af bátnum og endaði ufsinn
á Sæla BA frá Tálknafirði og restin
af kvótanum endaði, með viðkomu
á Magnúsi GK, yfir á Kristni SH frá
Ólafsvík.
Já, svona er þetta skemmtilegt
með þennan blessaða kvóta. Við
Suðurnesjamenn höfum misst
alveg óhemju af kvóta nema þeir í
Grindavík, sem hafa styrkt sig undan-
farin ár. Til dæmis í Keflavík þá er
nú ekki mikill kvóti skráður þar og
svo til enginn stór bátur þar skráður
með kvóta. Sem er öfugt við það sem
áður var.
Vísir í Grindavík keypti Óla Gísla GK
og gaf honum nafnið Sævík GK. Það
sem af er maí hefur einmitt Sævík GK
fiskað nokkuð vel og hefur landað 43
tonn í 5 róðrum og er, þegar þetta er
skrifað, aflahæstur smábáta á land-
inu að 15 tonnum og er með nokkra
yfirburði yfir aðra báta í sama flokki.
Kannski að við kíkjum á kvótasögu í
næstu pistlum. Ég get rakið nokkuð
langt aftur í tímann hvert kvóti af
þessum og þessum báti eða togara
hefur farið.
Vil bara ítreka að lokum að allir sem
vettlingi geta valdið og eiga laust
laugardagskvöld 11.maí, skellið ykkur
í Sandgerði á vertíðalokin 2019.
AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
AFLA
FRÉTTIR
Frá fornu fari hefur 11. maí verið lokadagur vetrarvertíðar. Það er því vel við
hæfi að knattspyrnudeild Reynis hefur ákveðið að blása til stórviðburðar
þennan dag þegar vertíð sjómanna lýkur og vertíð knattspyrnumanna
hefst með hækkandi sól.
Viðburðurinn fer fram í íþróttahúsinu
í Sandgerði laugardagskvöldið 11. maí
og búist er við miklum fjölda gesta
enda dagskráin með veglegasta móti.
Girnilegt hlaðborð, grín og glens
Maturinn verður í hæsta gæðaflokki
eins og Magnúsi Þórissyni og hans
fólki á Réttinum er einum lagið. Boðið
verður upp á steikar- og sjávarrétt-
ahlaðborð. Þess má geta að allar fisk-
vinnslur í Sandgerði leggja til hráefnið
í sjávarréttina.
Hjörvar Hafliðason, fjölmiðlamaður,
verður veislustjóri kvöldsins. Hjörvar
er Sandgerðingum að góðu kunnur,
enda sonur Hafliða Þórssonar sem
lengi rak útgerð, fiskimjölsverk-
smiðju og fiskvinnslu í Sandgerði.
Hjörvar á margar góðar minningar
frá æskuárum sínum þar sem hann
sem gutti vann í fiskvinnslu föður
síns við Strandgötuna í Sandgerði.
Ari Eldjárn sér um að kitla hlátur-
taugar gesta af sinni alkunnu snilld.
Gjörningalistahópurinn „Mígðu
í saltan sjó“ sem samanstendur af
hressu ungu fólki úr Sandgerði hefur
sett saman óborganlegan mynd-
bandsannál með því helsta sem gerð-
ist í bæjarlífinu í Sandgerði síðasta
árið eða svo.
Ingó veðurguð leiðir „brekkusöng“
áður en ballið byrjar og má fastlega
búast við því að áherslan verði tals-
verð á klassíska sjóarasöngva.
Kvöldið endar í dansi
Kvöldið endar svo á stórdansleik með
Stuðlabandinu. Það er von knatt-
spyrnudeildarinnar að Suðurnesja-
fólk flykkist á viðburðinn sem nú er
haldinn í fyrsta sinn. Öll nágranna-
byggðalögin á Suðurnesjum halda
árlegt þorrablót og langar deildinni
að fara aðrar leiðir í stað þess að
ryðjast inn á þorrablótsmarkaðinn.
Það verður ekkert til sparað til að hafa
viðburðinn sem eftirminnilegastan og
vonir standa til þess að viðburðurinn
festi sig í sessi og verði haldinn árlega
hér eftir.
Nánari upplýsingar á fésbókinni, Ver-
tíðarlok 2019 og miðasala fer fram á
midi@reynir.is.
„Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn, fast þeir sóttu sjóinn og sækja hann enn“
Saga Akraness
víti til varnaðar
Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfull-
trúi Miðflokksins í Reykjanesbæ,
lagði fram bókun á fundi bæjar-
stjórnar Reykjanesbæjar nýverið
um fyrirhugaða útgáfu sögu Kefla-
víkur. Með bókuninni ítrekar hún
spurningu sína um kostnað við fyrir-
hugaða útgáfu bókarinnar.
„Málið virðist vera þannig vaxið að
hér sé meirihlutinn að fara að ráðast í
verkefni án þess að fyrir liggi kostnað-
aráætlun. Það eru að sjálfsögðu engin
vinnubrögð. Rétt er að geta þess hér
að svona verkefni, kostnaðurinn við
svona bókaútgáfu, hefur tilhneigingu
til að fara fram úr áætlunum. Má þar
nefna útgáfu um sögu Akraness sem
dæmi. Ég vil því ítreka fyrirspurn
mína og ætti meirihlutinn nú að hafa
haft nægan tíma til að vinna svarið,“
segir Margrét í bókuninni.
SUÐUR MEÐ SJÓ
SUNNUDAGINN 12. MAÍ KL. 20:30
Á HRINGBRAUT OG VF.IS
EINNIG MÁ HLUSTA Á ÞÁTTINN
Í HLAÐVARPI VÍKURFRÉTTA
8 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 9. maí 2019 // 19. tbl. // 40. árg.