Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.05.2019, Qupperneq 12

Víkurfréttir - 09.05.2019, Qupperneq 12
HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Grunnskólakennarar Við Grunnskóla Grindavíkur eru eftirfarandi stöður lausar: Stöður umsjónarkennara á öll skólastig Staða íþróttakennara, textilkennara og dönskukennara. Umsóknarfrestur er til 12. maí en ráðið er í stöðurnar frá 1. ágúst 2019. Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans www.grindavik.is/grunnskolinn. Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, og góðir í mann- legum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi. Skólinn vinnur í anda Uppeldi til ábyrgðar. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420-1200. bk_atvinnuaugl_040315.pdf 1 2.5.2019 14:16:10 K y n n i n g á N P A (notendastýrðri persónulegri aðstoð) Einstök ráðgjöf í samvinnu við Þroskahjálp á Suðurnesjum ætlar að kynna NPA samninga og þjónustu á þeim fyrir alla þá sem vilja. Efni kynningar: • Hvað er NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð)? • Hverjir hafa rétt á NPA? • Hvar og hvernig er hægt að sækja um NPA? • Reynslusögur • Kynning á þjónustu sem Einstök ráðgjöf veitir Kynning fer fram í húsnæði Þroskahjálpar (gengið er inn hjá Dósaseli) að Hrannargötu 6, Reykjanesbæ, miðvikudaginn 15. maí n.k. kl. 20:00–21:00. www.einstokradgjof.is „Okkur langaði að halda styrktarviðburð. Það eru svo mörg ungmenni sem eru komin í mikla neyslu og Stuðlar þurfa aðstoð til að geta hjálpað þessum krökkum,“ segir Urður Unnardóttir en hún ásamt fjórtán öðrum ungmennum í unglingaráði Fjörheima, félagsmiðstöðvarinnar í Reykja- nesbæ, hefur skipulagt styrktarkvöld sem haldið verður í Fjölbrautaskóla Suðurnesja miðvikudaginn 8. maí klukkan 19. Allur ágóði kvöldsins rennur óskertur til stofunarinnar Stuðla en Stuðlar bjóða upp á greiningar- og meðferð- arúrræði fyrir unglinga sem glíma meðal annars við vímuefnavanda og hegðunarörðugleika. Sigga Kling verður veislustjóri á viðburðinum og endar hún kvöldið á partýbingó. Þá mun Sólborg Guðbrandsdóttir fjalla um átak sitt gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi og Sigga Dögg kynfræðingur verður með trúnó. Við- burðurinn er opinn öllum unglingum og fullorðnum og kostar tvö þúsund krónur inn. Hægt verður þó að styrkja Stuðla aukalega á staðnum, hafi fólk áhuga á því. „Okkur langaði til að hjálpa öðrum unglingum. Það er svo gott að vita að maður sé að hjálpa,“ segir Þorbergur Freyr Pálmarsson sem stendur einn- ig að baki styrktarkvöldsins. Kvik- myndin Lof mér að falla, sem sýnd var í fyrra, kom mikilli vitundarvakningu af stað meðal ungmenna og þykir unglingaráðinu mikilvægt að halda umræðunni á lofti. „Það eru miklu fleiri en maður grunar sem eru á vondum stað. Stuðlar þurfa á þessu að halda. Það skiptir miklu máli að við reynum ung að byrja að hafa áhrif á samfélagið. Þetta verður ótrúlega skemmtilegt kvöld,“ bætir Urður við. Bingóspjöld verða seld á staðnum en það verður eingöngu í boði að greiða með reiðufé. Þá verður boðið upp á léttar veitingar en viðburðurinn er í samstarfi við Stapaprent, Sonic og Samkaup. Hægt er að nálgast miða í Gallerí Keflavík að Hafnargötu 32 og við innganginn. Ungmenni á Suðurnesjum styðja Stuðla með styrktarkvöldi: Stuðlar þurfa aðstoð til að geta hjálpað krökkum í mikilli neyslu Á hvaða braut ertu? Fjölgreinabraut. Hver er helsti kostur FS? Súkkulaðibitakaka i mötuneytinu. Hver eru áhugamálin þín? Körfubolti. Hvað hræðistu mest? Egóista. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Almar óli (puma) fyrir kraftlyftingar. Hver er fyndnastur í skólanum? Sverrir þór (svessi lee). Hvað sástu síðast í bíó? Shazam. Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Tyggjó. Hver er helsti gallinn þinn? Skrifa virkilega illa. Hver er helsti kostur þinn? Fáránlega góður að teikna. Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum þínum? Instagram, Snapchat og Youtube. Hverju myndir þú breyta ef þú værir skólameistari FS? Ekki neinu því Kristján er með þetta. Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks? Brosmilt fólk. Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum? Hef enga skoðun á því. Hver er stefnan fyrir framtíðina? Ætla reyna komast í háskóla. Hvað finnst þér best við að búa á Suðurnesjum? Stutt í allt. Hræðist mest FS-INGUR VIKUNNAR egóista! Veigar Páll Alexandersson er 17 ára Njarðvíkingur. Honum finnst súkkulaðibitakaka vera helsti kostur Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Veigar Páll er FS-ingur vikunnar að þessu sinni. ...kennari? Anna Taylor. ...skólafag? Stærðfræði. ...sjónvarpsþættir? Fresh prince of belair. ...kvikmynd? Incredibles. ...hljómsveit? One direction. ...leikari? Will Smith. Uppáhalds... 12 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 9. maí 2019 // 19. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.