Víkurfréttir - 09.05.2019, Síða 16
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og kona hans, Eliza
Reid, fengu hlýjar mótttökur hjá íbúum Reykjanesbæjar þegar
þau komu í opinbera heimsókn til sveitarfélagsins en þetta er
í fyrsta sinn sem forseti Íslands gerir það. Þau heimsóttu tutt
ugu staði og fyrirtæki á tveimur dögum og fengu nasaþefinn
af mögnuðu mannlífi og frísklegu atvinnulífi Reykjanesbæjar.
Fyrsti viðkomustaðurinn var Skólamatur þar sem þau fengu
að skoða og heyra um starfsemi þessa frumkvöðlafyrirtækis
sem nú fagnar tuttugu ára afmæli. Þaðan lá leið þeirra í Duus
Safnahús og byrjuðu á því að skoða Gömlu búð sem er í upp
byggingu. Þau voru síðan við setningu Listahátíðar barna
í Duus Safnahúsum og þar var þeim auðvitað vel tekið af
hundruðum barna.
Forsetahjónin sóttu síðan heim ráðhús Reykjanesbæjar og litu
við á foreldramorgni, heilsuðu upp á starfsmenn bæjarins en
þaðan lá leiðin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þar steig forsetinn
í pontu, ræddi við nemendur og bauð þeim að spyrja um hvað
sem var – og það gerðu þeir. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
var næsti viðkomustaður en síðan hittu forsetahjónin ungt
íþróttafólk í Reykjaneshöll og fimleikahöll. Ekki gat forsetinn
komið án þess að skoða rokksöguna í bítlabænum en það
gerði hann í Hljómahöll og þar fylgdist hann líka með ungu
tónlistarfólki í glæsilegum tónlistarskóla. Þau hjónin hlustuðu
svo á tónlistaratriði á menningarsamkomu og kaffisamsæti
sem bæjarbúum öllum var boðið að sækja. Dagurinn endaði
svo í stuttu boði í Víkingaheimum.
Á öðrum degi opinberrar heimsóknar heimsóttu forsetahjónin
nokkra staði á Ásbrú, m.a. geoSilica, Keili, Háaleitisskóla og
Hæfingarstöðina. Því næst fóru þau í Fjölsmiðjuna við Iðavelli
og nýtt bardagahús, þau enduðu opinbera heimsókn sína á
Nesvöllum þar sem eldri borgarar bæjarins tóku á móti þeim
með kostum og kynjum.
Forsetahjónin voru alsæl með heimsóknina og segja að íbúar
Reykjanesbæjar þurfi ekki að kvíða framtíðinni miðað við
mannlífið og kraftinn sem hér sé. Víkurfréttir hittu forseta
hjónin í lok heimsóknar og ræddu við þau um heimsóknina
til Reykjanesbæjar. Þau eru gestir Víkurfrétta í Suðurnesja
magasíni sem verður sýnt á Hringbraut og vf.is kl. 20:30 á
fimmtudagskvöld.
Vel heppnuð forsetaheimsókn
Forsetahjónin voru hrifin af starfinu í Dósaseli.
Forsetahjónin, Guðni og Eliza, með bæjarstjórahjónunum, Kjartani Má og Jónínu
Guðjónsdóttur, í hófi sem haldið var í Víkingaheimum.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar með forsetahjónunum.
Tómas Young kynnti
Hljómahöllina. Þau voru hrifin
af tónlistarhefðinni í bænum og
glæsilegri Hljómahöllinni.
Starfsemi Fjölsmiðjunnar er merkileg og góð. Forsetahjónin kíktu þar við.
Forsetahjónin eiga
fjögur börn, yngsta
fjögurra ára. Forsetinn
fór á dagmömmumorgna
þegar yngsta barnið
hans var lítið. Þau
heilsuðu upp á unga
foreldra í bókasafninu.
Íþróttastarfið er viðamikið í Reykjanesbæ. Forsetinn er duglegur
að fara á íþróttamót með sínum börnum og hér er hann með
knattspyrnudrengjum úr Njarðvík og í heimsókn í fimleikahöllinni.
Á Heilbrigðisstofnun var þessi mynd af Guðna uppi á vegg.
Hann kynntist starfsemi HSS og ræddi við starfsfólkið.
Guðni fékk nýtt buff í safnið frá Keili á Ásbrú og er hér með
starfsfólkinu sem setti upp Keilisbuff fyrir hann.
16 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM