Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.05.2019, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 09.05.2019, Qupperneq 16
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og kona hans, Eliza Reid, fengu hlýjar mótttökur hjá íbúum Reykjanesbæjar þegar þau komu í opinbera heimsókn til sveitarfélagsins en þetta er í fyrsta sinn sem forseti Íslands gerir það. Þau heimsóttu tutt­ ugu staði og fyrirtæki á tveimur dögum og fengu nasaþefinn af mögnuðu mannlífi og frísklegu atvinnulífi Reykjanesbæjar. Fyrsti viðkomustaðurinn var Skólamatur þar sem þau fengu að skoða og heyra um starfsemi þessa frumkvöðlafyrirtækis sem nú fagnar tuttugu ára afmæli. Þaðan lá leið þeirra í Duus Safnahús og byrjuðu á því að skoða Gömlu búð sem er í upp­ byggingu. Þau voru síðan við setningu Listahátíðar barna í Duus Safnahúsum og þar var þeim auðvitað vel tekið af hundruðum barna. Forsetahjónin sóttu síðan heim ráðhús Reykjanesbæjar og litu við á foreldramorgni, heilsuðu upp á starfsmenn bæjarins en þaðan lá leiðin í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þar steig forsetinn í pontu, ræddi við nemendur og bauð þeim að spyrja um hvað sem var – og það gerðu þeir. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja var næsti viðkomustaður en síðan hittu forsetahjónin ungt íþróttafólk í Reykjaneshöll og fimleikahöll. Ekki gat forsetinn komið án þess að skoða rokksöguna í bítlabænum en það gerði hann í Hljómahöll og þar fylgdist hann líka með ungu tónlistarfólki í glæsilegum tónlistarskóla. Þau hjónin hlustuðu svo á tónlistaratriði á menningarsamkomu og kaffisamsæti sem bæjarbúum öllum var boðið að sækja. Dagurinn endaði svo í stuttu boði í Víkingaheimum. Á öðrum degi opinberrar heimsóknar heimsóttu forsetahjónin nokkra staði á Ásbrú, m.a. geoSilica, Keili, Háaleitisskóla og Hæfingarstöðina. Því næst fóru þau í Fjölsmiðjuna við Iðavelli og nýtt bardagahús, þau enduðu opinbera heimsókn sína á Nesvöllum þar sem eldri borgarar bæjarins tóku á móti þeim með kostum og kynjum. Forsetahjónin voru alsæl með heimsóknina og segja að íbúar Reykjanesbæjar þurfi ekki að kvíða framtíðinni miðað við mannlífið og kraftinn sem hér sé. Víkurfréttir hittu forseta­ hjónin í lok heimsóknar og ræddu við þau um heimsóknina til Reykjanesbæjar. Þau eru gestir Víkurfrétta í Suðurnesja­ magasíni sem verður sýnt á Hringbraut og vf.is kl. 20:30 á fimmtudagskvöld. Vel heppnuð forsetaheimsókn Forsetahjónin voru hrifin af starfinu í Dósaseli. Forsetahjónin, Guðni og Eliza, með bæjarstjórahjónunum, Kjartani Má og Jónínu Guðjónsdóttur, í hófi sem haldið var í Víkingaheimum. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar með forsetahjónunum. Tómas Young kynnti Hljómahöllina. Þau voru hrifin af tónlistarhefðinni í bænum og glæsilegri Hljómahöllinni. Starfsemi Fjölsmiðjunnar er merkileg og góð. Forsetahjónin kíktu þar við. Forsetahjónin eiga fjögur börn, yngsta fjögurra ára. Forsetinn fór á dagmömmumorgna þegar yngsta barnið hans var lítið. Þau heilsuðu upp á unga foreldra í bókasafninu. Íþróttastarfið er viðamikið í Reykjanesbæ. Forsetinn er duglegur að fara á íþróttamót með sínum börnum og hér er hann með knattspyrnudrengjum úr Njarðvík og í heimsókn í fimleikahöllinni. Á Heilbrigðisstofnun var þessi mynd af Guðna uppi á vegg. Hann kynntist starfsemi HSS og ræddi við starfsfólkið. Guðni fékk nýtt buff í safnið frá Keili á Ásbrú og er hér með starfsfólkinu sem setti upp Keilisbuff fyrir hann. 16 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.