Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.05.2019, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 09.05.2019, Blaðsíða 17
Safnfulltrúi óskast í Duus Safnahús Framtíðarstarf og sumarafleysingar Reykjanesbær óskar eftir að ráða safnfulltrúa í Duus Safnahús. Um 55 % starf er að ræða eftir vaktavinnufyrirkomulaginu 2-2-3 frá kl. 11.30–17.30. Helstu verkefni: ■ Móttaka safngesta og leiðsögn um sýningarnar ■ Umsjón með daglegum rekstri safnahússins ■ Þátttaka og undirbúningur í framkvæmd sýninga og annarra viðburða í safnahúsinu. ■ Sala minjagripa og daglegt uppgjör Menntunar- og hæfniskröfur: ■ Stúdentspróf eða annað sambærilegt ■ Reynsla af safnastarfi eða ferðaþjónustu æskileg ■ Gott vald á íslensku og ensku ■ Hafi góða hæfni í mannlegum samskiptum og sé með þjónustulund ■ Tölvukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 15. maí n.k. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á vef Reykjanesbæjar: www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf Nánari upplýsingar um starfið veitir Valgerður Guðmundsdóttir menningarfulltrúi (valgerður.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is) Forsetahjónin ræddu við nokkra útlendinga og auðvitað heimafólk í Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, hér eru þau með starfsfólkinu. Það var verið að útbúa plokkfisk í Skólamat þegar forsetahjónin litu þar við en það var fyrsta fyrirtækið sem þau heimsóttu. Forsetinn fékk margar og miserfiðar spurningar frá áhugasömum nemendum í Fjölbraut. Forsetahjónin enduðu heimsóknina með eldri borgurum og hér er Guðni með einum elsta bæjarbúa Reykjanesbæjar, Maríu Arnlaugsdóttur. Fida í geoSilica gaf forsetahjónunum gjafir í tilefni af heimsókn þveirra til hennar. Forsetinn heimsótti Hæfingastöðina og heilsar hér upp á Ástvald Ólafsson. Takk fyrir komuna! Fyrir hönd bæjarstjórnar og íbúa í Reykjanesbæ sendi ég forsetahjónunum, Elizu Reed og Guðna Th. Jóhannessyni, kærar þakkir fyrir heimsókn þeirra í fyrstu opinberu heimsókn forseta Íslands til Reykjanesbæjar. Það var ánægjulegt að fylgja þeim eftir í heimsókn á tuttugu viðkomustaði í bæjarfélaginu þar sem þau fengu að kynnast fjölbreyttu atvinnu- og mannlífi í Reykjanesbæ. Kær kveðja, Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri SUNNUDAGINN 12. MAÍ KL. 20:30 SUÐUR MEÐ SJÓ Njarðvíkingurinn Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor og hagfræðingur, sem starfaði m.a. í 12 ár hjá Alþjóðabankanum, er gestur okkar í Suður með sjó í þessari viku Hann segir Íslendinga hafa tekið hagfelldari ákvarðandir í bankahruninu 2008 en t.d. Eystrasaltsríkin gerðu. Suður með sjó á sunnudagskvöld á Hringbaut. SUÐUR MEÐ SJÓ Í HLAÐVARPI VÍKURFRÉTTA 17MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 9. maí 2019 // 19. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.