Víkurfréttir - 09.05.2019, Page 19
Suður með sjó er ný þáttaröð hjá Sjónvarpi
Víkurfrétta. Með hækkandi sól sýnum við næstu
vikurnar viðtöl við Suðurnesjafólk sem hefur
skarað fram úr á ýmsum sviðum, segja frá
lífsreynslu sinni eða eru að gera áhugaverða
hluti hér heima eða annars staðar.
Við ætlum líka að fá Suðurnesjafólk í spjall í
stúdíó Víkurfrétta þar sem við ræðum um
málefni líðandi stundar, heit og köld.
Suðurnesjamagasín heldur áfram sínu
striki en nýr þáttur er frumsýndur á
fimmtudagskvöldum kl. 20.30 á Hringbraut
og vf.is. Í þáttunum er lögð áhersla á mannlífið
á Suðurnesjum í sinni víðustu mynd, atvinnulífið,
íþróttirnar og alla menninguna.
SUNNUDAGINN 12. MAÍ KL. 20:30
SUÐUR MEÐ SJÓ
FIMMTUDAGINN 9. MAÍ KL. 20:30
SUÐURNESJAMAGASÍN
FORSETINN
Í REYKJANESBÆ
Njarðvíkingurinn Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor
og hagfræðingur, sem starfaði m.a. í 12 ár hjá
Alþjóðabankanum, er gestur okkar í Suður með sjó í þessari viku
Hann segir Íslendinga hafa tekið hagfelldari ákvarðandir
í bankahruninu 2008 en t.d. Eystrasaltsríkin gerðu.
Suður með sjó á sunnudagskvöld á Hringbaut.
SUÐUR MEÐ SJÓ og SUÐURNESJAMAGASÍN
má sjá á Hringbraut, vf.is og í kapalsjónvarpinu í Reykjanesbæ.
Allt efni þáttanna er einnig á Youtube- og Facebook-síðum Víkurfrétta.
Páll Ketilsson ritstjóri Víkurfrétta ræddi við forsetahjónin
eftir vel heppnaða heimsókn til Reykjanesbæjar.
SUÐUR MEÐ SJÓ
Í HLAÐVARPI VÍKURFRÉTTA
... og fleiri veitur væntanlegar
VIÐTALSÞÆTTIR FRÁ SJÓNVARPI VÍKURFRÉTTA Á HRINGBRAUT
Suðurnesjaliðunum í knattspyrnu
gekk mjög vel um síðustu helgi og
öll karlaliðin unnu sína leiki í fyrstu
umferð nema Grindvíkingar sem
gerðu jafntefli í öðrum leik sínum
í Pepsi-deildinni.
Keflvíkingar unnu flottan sigur á
Fram á Nettóvellinum. Dagur Ingi
Valsson og Jóhann Þór Arnarson skor-
uðu mörk heimamanna í síðari hálf-
leik en þá fóru Keflvíkingar á kostum.
Njarðvíkingar áttu góða ferð í borgina
þar sem þeir unnu Þrótt, Reykjavík
2:3. Brynjar Freyr Garðarsson kom
Njarðvíkingum yfir en Þróttur skoraði
næstu tvö. Njarðvíkingar skoruðu
tvö mörk á 70. og 72. mínútu, fyrst
Stefán Birgir Jóhannesson og síðan
átti Bergþór Ingi Smárason þriðja
markið sem reyndist sigurmarkið.
Þróttur í Vogum og Dalvík/Reynir
gerðu 2:2 jafntefli í fjörugum leik í
Vogum. Pape Mamadou Faye kom
heimamönnum yfir á 11. mín., síðan
skoruðu gestirnir tvö mörk og voru
nálægt því að tryggja sér sigurinn
en Brynjar Kristmundsson bjargaði
Þrótti með jöfnunarmarki á 90.
mínútu.
Hitt Suðurnesjaliðið í 2. deild, Víðir,
vann 2:1 sigur á KFG. Mörk Víðis skor-
uðu Helgi Þór Jónsson og Jón Tómas
Rúnarsson. Nýr þjálfari Víðis er Kefl-
víkingurinn Hólmar Örn Rúnarsson.
Sandgerðingar byrja vel í 3. deildinni
en þeir komu upp úr þeirri fjórðu
eftir síðasta ár. Þeir unnu Sindra frá
Hornafirði 3:1 á Sandgerðisvelli. Mörk
Sandgerðinga skoruðu Admir Ku-
bat, Gauti Þorvarðarson og Hörður
Sveinsson, fyrrverandi markahrókur
úr Keflavík, skoraði þriðja markið en
skömmu áður náðu gestirnir að skora
sitt eina mark.
Keflavíkurstúlkur töpuðu fyrsta leik
sínum gegn Fylki en þær léku við ÍBV
á þriðjudaginn. Hægt er að sjá úrslit
á vf.is.
Góð byrjun
Suðurnesjaliða
í knattspyrnu
Jóhann Þór Arnarson skoraði flott sigurmark Keflvíkinga gegn Fram. VF-mynd/pket.
Stofnfiskur og knattspyrnudeild Þróttar Vogum hafa endurnýjað samning sín á
milli um að Stofnfiskur verði áfram aðalstyrktaraðili deildarinnar. Samningurinn er
mikið fagnaðarefni og mikilvægur fyrir báða aðila, hann styrkir enn frekar öflugt
uppbyggingarstarf deildarinnar sem og að styðja meistaraflokk félagsins í 2. deild.
Grindavíkurvöllur
verður Mustad-völlurinn
Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur
gert styrktarsamning við Mustad Au-
toline AS frá Noregi. Samningurinn
felur í sér að heiti vallarins breytist
úr því að vera Grindavíkurvöllur í
það að vera Mustad-völlurinn.
Mustad hefur verið í góðu samstarfi
við sjávarútvegsfyrirtækin í Grindavík
og hefur einnig verið með samning við
körfuknattleiksdeild Grindavíkur þar
sem íþróttahúsið hefur verið kallað
Mustad-höllin.
Á meðfylgjandi mynd er Sigurður
Óli Þorleifsson að skrifa undir fyrir
hönd Mustad og Gunnar Már Gunn-
arsson, formaður knattspyrnudeildar
Grindavíkur.
Taekwondo-mennirnir Ágúst
Kristinn Eðvarðsson og Krist-
mundur Gíslason frá Taekwondo-
deild Keflavíkur hafa verið valdir
af Tae kwondo sambandi Íslands
til að verða fulltrúar Íslands á
Heimsmeistaramótinu í Manc-
hester. Strákarnir eru búnir að
æfa vel síðustu mánuði til þess
að undirbúa sig fyrir mótið sem
haldið verður 15.–19. maí. Báðir
eru þeir nýbakaðir Norðurlanda-
meistarar og er því hægt að segja
að þeir séu í fantaformi og hafa
háleit markmið fyrir komandi
stórmót. Ágúst Kristinn og Krist-
mundur eru með reynslumestu
Taekwondo-mönnum landsins
og hafa þrátt fyrir ungan aldur
vakið athygli fyrir góða frammi-
stöðu á mótum hér heima og er-
lendis.
Taekwondo-kappar
á leið á HM
19ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 9. maí 2019 // 19. tbl. // 40. árg.