Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.06.2019, Side 6

Víkurfréttir - 27.06.2019, Side 6
Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Góð þátttaka var á fundi um undirbúning að stofnun samráðsvettvangs um samfélagsábyrgð á Suðurnesjum sem haldinn var að frumkvæði Isavia í Reykjanesbæ á dögunum. Fundinn sátu forvígismenn Isavia auk fulltrúa frá sveitarfélögunum Reykjanesbæ, Grindavík, Suðurnesjabæ og Vogum og einnig fulltrúa Kadeco og Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS). Keflavíkurflugvöllur, sem Isavia á og rekur, er einn stærsti vinnustaðurinn á Reykjanesi. Vaxandi umfang hans hefur mikil áhrif á vöxt sveitarfélaganna í kring. Það hefur sést best með fjölgun íbúa þar undanfarin ár. Að sama skapi er mikilvægt fyrir flugvöllinn að starfa í sátt við samfélagið, enda forsenda þess að ná þeim árangri sem stefnt er að, íslensku efnahagslífi til heilla. Markmiðið með samráðsvettvanginum er að auka samstarf Isavia, sveitarfélaganna og annarra hagaðila á Suður- nesjum. Þannig megi vinna að sameiginlegum hags- munum sem ein heild út frá Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Sú vinna yrði síðan tengd við stefnu stjórnvalda um sjálfbæra þróun, sem er samþætt við sömu markmið. „Óskastaðan að loku þessu verkefni er að Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna verði innleidd og þeim forgangs- raðað út frá sameiginlegum hagsmunum sveitarfélaga og fyrirtækja á Suðurnesjum,“ segir Hrönn Ingólfsdóttir, for- stöðumaður verkefnastofu Isavia. „Grunnþættir árangurs í þeirri vinnu snerta allt samfélagið hvort sem það tengist þá atvinnu og afkomu, menntun og heilbrigði eða þá um- hverfi og skipulagsmálum.“ Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, hafa undirritað samning um raforkukaup Isavia. Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs þar sem HS Orka var lægstbjóðandi. Samningurinn gildir næstu fjögur árin með heimild til framlengingar tvisvar sinnum um tvö ár í senn, þannig að heildarsamningstími getur orðið átta ár. „Með samningnum nær Isavia fram hagræði í raforkukaupum ásamt því að hann er liður í að minnka kolefnis- fótspor Isavia þar sem gerð er krafa um að öll keypt raforka sé endur- nýjanleg,“ segir Sveinbjörn Indriða- son, forstjóri Isavia. „Hægt verður að kalla eftir uppruna- og hreinleikavott- orði hvenær sem er á samningstíma.“ Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, við undirritun samningsins. Vinna deili- skipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkur- flugvelli Utanríkisráðuneytið hefur falið Landhelgisgæslu Íslands að vinna deiliskipulag fyrir öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli. Skipulagið er komið í auglýsingu. Deiliskipulagssvæðið er um 760 ha að stærð og afmarkast sam- kvæmt auglýsingu nr. 720/2015 um landfræðileg mörk öryggis og varnarsvæða. Svæðið liggur að landsvæðum sem eru innan sveitar- félagamarka Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar. Mörk megin- svæðis til austurs og að hluta til suðurs eru að landi innan Reykja- nesbæjar, til norðurs að svæði Isavia (svæði A) á Keflavíkurflug- velli og til vesturs og suðurs að landi innan Suðurnesjabæjar. Deiliskipulagstillagan fjallar m.a. um afmörkun nýrra svæða fyrir starfsemi innan svæðisins s.s. svæði fyrir skammtíma gisti aðstöðu, efnisvinnslusvæði, gistisvæði, geymslusvæði og aðra landnotkun og starfsemi. Miðbæjarsvæðið í Vogum er farið að taka á sig mynd. Fjögur tveggja hæða fjórbýlishús eru risin við Skyggnisholt og grunnur þess fimmta hefur verið steyptur. Þá eru fyrstu húsin við Lyngholt einnig að rísa. Í miðju miðbæjarsvæðinu fær svo náttúran að njóta sín þar sem sjálfur Skyggnir rís hátt í landinu (eins og sjá má fyrir miðri mynd) og þar verða göngu- stígar um hverfið. Á miðbæjarsvæðinu verður nokkuð fjölbreytt byggð en lengst til vinstri á myndinni er t.a.m. gert ráð fyrir tveimur fimm hæða fjölbýlishúsum. Lengst til hægri verða svo tveggja og þriggja hæða fjölbýli en einnig er gert ráð fyrir þjónustustarfsemi í hverfinu, handan Skyggnisholts við Skyggni. Myndin var tekin fyrir miðbæjarsvæðið nú í vikunni. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson Nýtt miðbæjarsvæði í Vogum tekur á sig mynd Vilja auka samstarf Isavia, sveitarfélaga og annarra hagaðila á Suðurnesjum Forráðamenn sveitarfélaganna, Isavia og nokkurra hagsmunaaðila á Suðurnesjum að loknum samsráðsfundi. Isavia samdi við HS Orku um raforkukaup Ísaga hefur sent skipulagsyfir- völdum í Grindavík fyrirspurn um land fyrir verksmiðjuframleiðslu á koltvísýring (CO2). Ef af verður yrði nýja verksmiðjan staðsett við Orkubraut en þar stendur m.a. metanólverksmiðja Carbon Re- cycling International. Í erindinu til Grindavíkurbæjar er m.a. talað um mögulegt samstarf við HS Orku, sem rekur orkuver sitt í Svartsengi. Skipulagsnefnd hefur falið sviðstjóra að afla frekari gagna en athuga þarf umfang verkefnisins ásamt stærð og hæð mannvirkja. Metanólverksmiðja Carbon Recycling International stendur á sömu slóðum og Ísaga hefur áhuga á að reisa koltvísýringverksmiðju sína. Ísaga kannar mögu- leika á koltvísýrings- vinnslu í Svartsengi AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001 Elsku mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma GRÉTA GUÐMUNDSDÓTTIR HAND (Litlabæ) Lést sunnudaginn 16. júní á heimili sínu í Cleburne, Texas. Bálför hefur farið fram (í USA). Linda Jósefsdóttir Guðbrandur Stefánsson Robert Hand Kimberly Hand Barnabörn og barnabarnabörn 6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 27. júní 2019 // 26. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.