Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.06.2019, Síða 10

Víkurfréttir - 27.06.2019, Síða 10
Með sögu af Suðurnesjum Og þessi indæla veðurblíða heldur áfram og draumur að vera úti á sléttum sjó í þessari blíðu. Um þessar mundir eru flestir bátanna sem róa frá Sandgerði og Grindavík að róa á handfærum og mest eru þetta minni bátar. En þó ekki allir, því að í Sandgerði hafa tveir bátar verið að róa á handfærum og eltast við ufsann og óhætt að segja að það hafi gengið vel. Þetta eru Margrét SU, sem er eikarbátur og hefur landað 14,3 tonnum í þremur róðrum í júní og mest 6,2 tonn í róðri, hinn er þekktur bátur að nafni Ragnar Alfreðs GK og hefur landað 18,3 tonnum í þremur róðrum, mest 7,8 tonn í róðri. Aðeins að öðru. Síðasti pistill sem ég skrifaði var bara, að mér fannst, ekkert svo merkilegur, bara smá um bátanna sem voru í slippnum í Njarð- vík. En aldrei bjóst ég við þeim við- brögðum sem ég fékk. Ansi margir sendu mér skilaboð um ábendingar varðandi bátana og það sem inn í húsinu var. Byrjum á því sem er inn í stóra hús- inu. Þar er Sævík GK, plastbáturinn sem áður hét Óli Gísla GK, en verið að lengja bátinn. Hinn er Saxhamar SH, fallegur, grænn bátur frá Rifi. Verið er að vinna nokkuð í honum, t.d. setja á hann nýjan krana og aðrar endurbætur. Saxhamar SH er mjög þekktur bátur hérna á Suður- nesjum því báturinn var gerður út frá Grindavík í 27 ár, fyrst með nafnið Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 og síðan með nafnið Sigurður Þorleifsson GK. Einn þeirra sem komu með ábend- ingar er mikill bátamaður og hefur hann myndað svo til alla báta á Suðurnesjum í tugi ára, Emil Páll, og vil ég þakka honum fyrir ábend- ingarnar. Ein af ábendingum Emils sneri af bátnum sem heitir Valbjörn ÍS. Ég sagði í síðasta pistli að hann ætti sér litla sögu á Suðurnesjum, þar fór ég rangt með því báturinn á sér ansi mikla sögu tengda Suðurnesjum, báturinn var nefnilega smíðaður í Njarðvík. Ekki þó hjá Skipasmíða- stöð Njarðvíkur, heldur hjá Vél- smiðjunni Herði hf. sem þá var til. Báturinn kom á flot árið 1984 og hét þá fyrst Haukur Böðvarsson ÍS 847 og var þá báturinn 19,8 metra langur og fimm metra breiður. Báturinn var þá allt öðruvísi en hann er í dag því saga hans er að mestu bundin við Ísa- fjörð og hefur báturinn farið í gegnum miklar breytingar í gegnum árin. 1998 þá var báturinn lengdur um tæplega tíu metra, upp í 29 metra, og árið 2002 var endurbyggður afturendinn, skipt um aðalvél, gír, skrúfubúnað og ljósavél. Haukur Böðvarsson ÍS var smíðaður eins og áður segir hjá Vélsmiðjunni Herði hf. og var þetta stærsti bátur- inn sem var smíðaður hjá þeirri vél- smiðju. Hann var með skipasmíða- númerið 2 frá þeirri stöð. En hvaða bátur var þá með skipa- smíðanúmerið 1 hjá Herði hf.? Já, það er nefnilega nokkuð merkilegt því það var báturinn Hamraborg SH 222 sem var smíðaður árið 1975. Þessi bátur var smíðaður í Sandgerði og er stærsti stálbáturinn sem hefur verið smíðaður í Sandgerði, aðeins nokkrir minni bátar hafa verið smíðaðir þar. Fyrir þá sem ekki vita hvar þetta var þá er gott að rifja það upp. Þar sem núna eru löndunarkranarir við Norðurgarðinn í Sandgerði, þar hinum megin er stórt grátt hús sem er tómt. Þar áður var bara sjór og þar var klettur eða hamar og þar var Vélsmiðjan Hörður hf. með aðstöðu sína, Hamraborg SH var sjósett bak við norðurgarðinn þar sem núna er landfylling, og faðir minn Reynir Sveinsson á einmitt ansi margar myndir af þeim atburði þegar að Hamraborg SH var sjósettur. Þessi bátur sem er með skipasmíða- númer 1 frá Vélsmiðjunni Herði er ennþá til í dag og heitir Jón Hákon BA en hefur ekkert landað afla síðan í ágúst árið 2017. Já, það má svo sem sanni segja að þessi bátur, Valbjörn ÍS, eigi sér margtfalt meiri sögu hérna á Suður- nesjum en ég skrifað um í síðasta pistli. Vil ég þakka ykkur kærlega, lesendur, fyrir ábendingarnar en þær sýna mér að þið lesið þessa pistla og fyrir það er ég mikið þakklátur. Minni svo á að Vertíðaruppgjörið 2019–1969 er til sölu hjá mér í síma 7743616. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is AFLA FRÉTTIR „Nú þegar umræða um mögulegan flugvöll í Hvassahrauni er enn á ný farin af stað telur bæjarstjórn Reykjanesbæjar rétt að vekja athygli á nokkrum atriðum varðandi Hvassahraun sem flugvallarstæði. Frá því flugvöllur í Hvassahrauni var nefndur sem ákjósanlegur valkostur fyrir staðsetningu innanlandsflugs í niðurstöðum nefndar um flugvallar- kosti á höfuðborgarsvæðinu (Rögnu- nefndar) í júní 2015, hefur umræða um slíkan völl skotið upp kollinum með mislöngu millibili. Þrátt fyrir að nú séu fjögur ár liðin frá því að niðurstaða nefndarinnar var birt, hefur þeirri spurningu enn ekki verið svarað hvort æskilegt sé að byggja flugvöll á þessu svæði, í miðju óröskuðu hrauni sem jafn- framt liggur ofan á og nærri vatns- verndarsvæði okkar Reyknesinga,“ segir í sameiginlegri bókun bæjar- stjórnar Reykjanesbæjar frá því á þriðjudagskvöld. Þá segir: „Bæjarstjórn vill beina til Svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja að hún taki afstöðu til þess hvort og hvaða afleiðingar slíkur flugvöllur myndi hafa fyrir svæðið. Jafnframt vill bæjarstjórn skora á stjórnvöld að sjá til þess að fulltrúar Suðurnesja hafi aðkomu að þeim starfshópum og nefndum sem fjalla um flugmál þar sem flugsamgöngur ráða miklu um stöðu þessa svæðis og afkomu þeirra sem þar búa. Það hefði eflt og einfaldað alla um- ræðu, hefði verið horft til þessara hagsmuna í vinnu nefndar um flug- vallarkosti á sínum tíma.“ Undir bókunina rita allir bæjarfull- trúar Framsóknarflokks, Samfylk- ingar, Beinnar leiðar, Miðflokks, Frjáls afls og Sjálfstæðisflokks. Hvaða afleiðingar hefur flugvöllur í Hvassahrauni fyrir Suðurnes? Frá mislægum gatnamótum Reykjanesbraut á Strandarheiði, Hvassahraun í baksýn. VF-mynd: Hilmar Bragi Miðvikudaginn 17. júlí verður Skötumessan enn og aftur haldinn í Garðinum. Borðhald hefst kl. 19 og að venju verður boðið upp á glæsilegt hlaðborð af skötu, saltfiski, plokkfiski og meðlæti og rómuð skemmtidagskrá að venju flutt af fólki sem leggur okkur lið. Skólamatur sér um matinn eins og áður og skemmtidagskráin saman- stendur af hefðbundnum atriðum. Dói og Baldvin sjá um harmonikku- leik á meðan fólkið er að koma sér fyrir og síðan rekur hver dagskrár- liðurinn sig af öðrum. Geimsteinar Suðurnesja, Davíð Már Guðmundsson og Óskar Ívarsson, taka nokkur lög eins og Olsenbræðurnir Erlingur og Svavar Helgasynir áður en Sigríður Á. Andersen, fv. ráðherra frá Móakoti í Garði, flytur ræðu kvöldsins. Það er von á góðu frá þeim kvenskörungi. Þá afhendum við styrkina sem við öll erum þátttakendur í og að lokum verða stuttir tónleikar þar sem Hall- dór Gunnar Fjallabróðir og Sverrir Bergman stórsöngvari skemmta Skötumessugestum. Þeir félagar harð- neituðu að fá greiðslu fyrir að koma fram og leggja þannig stuðning sinn við gott málefni. Vilt þú verða einn af þeim? Árlega mæta rúmlega 400 manns á Skötumessuna og borða til blessunar eins og dómkirkjupresturinn orðaði það svo skemmtilega við mig. Við leggjum öll saman í þetta verkefni og erum líka öll viðstödd þegar styrkirnir eru greiddir út í lok kvöldsins. Ég spyr því þig lesandi góður: Vilt þú ekki verða einn af þeim sem leggja fötluðum og þeim sem eru hjálpar þurfi lið? Vinnufélagar og kaffifélagar víða á Suðurnesjum, nú er tækifæri til þess og við erum öll í sama liðinu og finnum hvað þetta kvöld getur skipt miklu máli fyrir þá sem við styðjum. Verð aðgöngumiða er 5.000 kr. Það hjálpar til að greiða aðganginn inn á reikning Skötumessunnar fyrir fram eins og okkar fólk er vant en reiknisnúmerið er; 0142-05-70506, kt. 580711-0650. Nú er Skötumessan í fyrsta skipti haldin í sameiginlegu sveitarfélagi og því sérstakt tækifæri fyrir íbúa að gera Skötumessuna að sinni ár- legu bæjarskemmtun, mæta vel og styðja við verkefni í heimabyggð í Suðurnesjabæ. Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Gerðaskóla miðvikudaginn 17. júlí, mæta tímanlega og finna sér sæti og hlusta á harmonikkutóna frá Dóa og Baldvin fyrir kvöldverðinn. Helstu stuðningsaðilar Skötumess- unnar eru; Fiskmarkaður Suðurnesja, Skólamatur ehf, Icelandair Cargo, Suðurnesjabær og fl. Skötumessan er áhugafélag um velferð fatlaðra. SKÖTUMESSAN 2019 VERÐUR HALDIN Í MIÐGARÐI GERÐASKÓLA Í GARÐI Störf í boði hjá Reykjanesbæ Bæjarstjóri – aðstoðarmaður Fjármálasvið – fjármálastjóri Stjórnsýslusvið – forstöðumaður Súlunnar Leikskólinn Holt – sérkennslustjóri Holtaskóli – samfélagsfræðikennari Vinnuskólinn – ný umsókn fyrir 8., 9. og 10 bekk Velferðarsvið – lýðheilsufræðingur Akurskóli – hönnunar- og smíðakennari Holtaskóli – dönskukennari Fjörheimar/88 húsið og Bardagahöll – ræstingar Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Viðburðir í Reykjanesbæ Ljósanótt 2019 - styrkir vegna viðburðahalds Viltu standa fyrir viðburði, uppákomu, tónleikum, námskeiði, smiðju eða einhverju öðru skemmtilegu á Ljósanótt? Menningarráð Reykjanesbæjar býður einstaklingum eða hópum fimm 100.000 króna styrki til viðburðahalds á Ljósanótt. Umsóknir sendar á netfangið ljosanott@ljosanott.is fyrir 12. ágúst nk. Nánar á vefsíðu Reykjanesbæjar undir Auglýsingar og á Facebooksíðu Ljósanætur. 10 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 27. júní 2019 // 26. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.