Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.06.2019, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 27.06.2019, Blaðsíða 13
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum. ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna ÁTVR er að vera eitt af fremstu þjónustufyrirtækjum landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar. Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð. Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og sakavottorðs er krafist. Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí nk. Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is. Nánari upplýsingar: Guðlaug Íris Margrétardóttir – grindavik@vinbudin.is, 426 8787 og Thelma Kristín Snorradóttir – starf@vinbudin.is, 560 7700. Hæfniskröfur • Jákvæðni og rík þjónustulund • Góð hæfni í mannlegum samskiptum • Almenn tölvukunnátta • Reynsla af verslunarstörfum er kostur Helstu verkefni og ábyrgð • Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini • Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun • Umhirða búðar Við leitum að jákvæðum og röskum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu. VÍNBÚÐIN GRINDAVÍK ÓSKAR EINNIG EFTIR STARFSMANNI Í TÍMAVINNU Unnið er að jafnaði alla föstudaga og annan hvern laugardag. VÍNBÚÐIN GRINDAVÍK Við óskum eftir starfsmanni Starfshlutfall er 93,8%. Haustið 2019 hefst nýtt nám til stúdentsprófs í Menntaskólanum á Ásbrú. Skólinn sem er staðsettur í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú í Reykjanesbæ hefur verið nokkur ár í burðarliðnum og eru skólastjórnendur ánægðir með viðbrögðin. Samkvæmt Nönnu Kristjönu Trausta- dóttur, forstöðumanns stúdents- brauta Keilis, bárust ríflega eitt hundrað umsóknir um skólavist á haustönn 2019 en skólinn hefur vilyrði fyrir 40 nemendaígildum á ársgrundvelli samkvæmt samningi við Mennta- og menningarmálaráðu- neytið sem var undirritaður fyrr á ár- inu. „Við tökum inntökuviðtöl við alla umsækjendur og við vorum gríðar- lega ánægð með hversu fjölbreyttur hópurinn var og hversu áhugasamir krakkarnir voru fyrir náminu,“ segir Nanna Kristjana en hún verður fyrsti skólameistari Menntaskólans á Ásbrú. „Þetta er ástæðan fyrir því að við tökum inn fleiri nemendur en við fáum ígildi fyrir.“ Rúmlega helmingur nemenda búsettir utan Reykjanessins „Gæði umsóknanna gerði okkur ein- staklega erfitt fyrir að velja úr ein- staklinga í þennan fyrsta hóp nem- enda í tölvuleikjanámið en markmiðið var að búa til öflugan og samheldinn hóp fólks með breiðan bakgrunn og fjölbreytt áhugasvið. Það er nefni- lega þannig að tölvuleikjagerð er svo sannarlega ekki samansafn ein- sleitra einstaklinga með áhuga á for- ritun, heldur skiptir máli að hafa fólk sem hefur líka áhuga á listgreinum, skapandi hugsun, verkefnastjórnun, frumkvöðlastarfi og teymisvinnu svo eitthvað sé nefnt,“ bætir Nanna við. Af samþykktum umsóknum er um fimmtungur nýnema stelpur en auk- inn áhugi kvenna hefur verið á tölvu- leikjagerð og forritun á undanförnum árum. Flestir nemendur eru búsettir í Reykjanesbæ, eða tólf talsins, en samtals koma 22 nemendur í þessum fyrsta árgangi frá Reykjanesi. Nítján nemendur koma af höfuðborgarsvæð- inu, þar af eru flestir, eða níu talsins, búsettir í Hafnarfirði. Þá koma aðrir nemendur víðs vegar af landinu, svo sem Akureyri og Grundarfirði. Nýstárleg skólastofa í samstarfi við IKEA Þessa dagana er unnið að því að klára aðstöðu nemenda og náms- rými skólans sem verður staðsett í þeim hluta aðalbyggingar Keilis sem áður hýsti tæknifræðinám Háskóla Íslands. „Við höfum verið í góðu sam- starfi við hönnunarteymi IKEA sem hefur verið okkur innan handar við þróun á námsrýminu og útkoman verður vonandi ein nýstárlegasta og skemmtilegasta skólastofa landsins.“ Markmiðið verður að skapa vinnuað- stöðu í sérklassa sem verður sérstak- lega hannað með það að leiðarljósi að vera nútímalegt, fjölbreytt og aðlaðandi starfsumhverfi þar sem nemendum líður vel og langar til þess að sinna vinnu sinni. Nútímalegt og sveigjanlegt staðnám Samkvæmt Nönnu er skólastofa kannski ekki réttnefni, þar sem leitast verður við að hanna og setja upp fjölbreytt og sveigjanlegt rými sem hentar mismunandi kröfum og þörfum nútíma nemenda. „Þetta verður í anda þeirrar nýbreytni í kennsluaðferðum sem hefur einkennt skólastarf Keilis á undanförnum árum. Við verðum með nútíma kennsluhætti, vendinám, þverfaglega vinnu og verkefnamiðað vinnulag. Það verða engin lokapróf heldur leggjum við áherslu á fjölbreytt námsmat sem sinnt er jafnt og þétt. Þá munum við seinka upphafi vinnudags nemenda í svartasta skammdeginu. “ Menntaskólinn á Ásbrú verður settur í fyrsta sinn þann 16. ágúst næstkomandi með nýnemadegi og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá mánudaginn 19. ágúst. 45 nýnemar samþykktir í Menntaskólann á Ásbrú Sérhæfðir kennsluhættir barna með hegðunarvanda Þegar Hvatningarverðlaunin voru afhent var einnig vakin sérstök athygli á tveimur öðrum verkefnum sem þóttu skara fram úr. Annað þeirra var námsúrræðið Goðheimar sem er sérhæft námsúrræði fyrir nemendur í 1.–6. bekk í Reykjanesbæ sem eru í brýnni þörf fyrir sérhæfða kennslu- hætti og er þjálfun sem tekur mið af þörfum barna með hegðunarvanda. Að verkefninu standa þeir Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Jón Haukur Hafsteinsson og Sigurður Hilmar Guðjónsson frá Háaleitisskóla. Vidubiology stóreykur áhuga á líffræði Hitt verkefnið, sem vakin var sérstök athygli á, er Notkun Vidubiology í kennslu en Ragnheiður Alma Snæbjörnsdóttir stendur á bakvið það. Vidubiology er alþjóðlegt verkefni sem er í stöðugri þróun en áhersla verkefnisins er að skoða áhrif verkefnavinnu á viðhorf, skilning, virkni og áhuga á líffræði. Ragnheiður Alma er kennari í 5. bekk í Njarð- víkurskóla og hefur verið að rannsaka og prófa sig áfram með notkun myndmiðlunar en rannsóknin er hluti af meistaraverkefni hennar. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að áhugi nemenda hefur stóraukist við notkun Vidubiology í kennslu. MANNLÍF Á SUÐURNESJUM SUNNUDAGA KL. 20:30 á Hringbraut og vf.is 13FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 27. júní 2019 // 26. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.