Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.06.2019, Síða 14

Víkurfréttir - 27.06.2019, Síða 14
SMÁAUGLÝSINGAR SMÁAUGLÝSINGAR Laus störf Blaðberi óskast til að bera út Morgunblaðið í Innri-Njarðvík Upplýsingar veitir Kristrún í síma 862-0382 Til leigu Lítil iðnaðarbil til leigu að Bakka- braut 10. Laus fljótlega. Upplýsingar veitir Jóhann í síma 896-0096 Leikskólinn Holt Sérkennslustjóri óskast Leikskólinn Holt í Reykjanesbæ auglýsir stöðu sérkennslu- stjóra lausa til umsóknar. Leikskólinn er fimm deilda leikskóli sem starfar i anda Reggio Emillia, vinnur að heilslueflandi leikskóla og er Grænfána skóli. Starfssvið: • Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til starfsmanna • Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem njóta sérkennslu • Veitir foreldrum barna sem njóta sérkennslu, stuðning, fræðslu og ráðgjöf • Sinnir þeim verkefnum er varða sérkennslu sem yfir- maður felur honum • Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, aðalnámskrá leikskóla og menntastefnu Reykjanes- bæjar Menntunar- og hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg • Reynsla af starfi með börnum á leikskólaaldri • Góð færni í samskiptum • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð • Góð íslenskukunnátta Um er að ræða 50% starf. Launakjör eru samkvæmt kjara- samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutað- eigandi stéttarfélag. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 20. ágúst 2019. Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 2019. Sækja skal um starfið á vef Reykjanes- bæjar, www.reykjanesbaer.is undir Laus störf. Nánari upplýsingar gefur María Petrína Berg leikskólastjóri í síma 8485886 eða á maria.p.berg@leikskolinnholt.is Fimm nemendur fæddir árið 2000, sem voru saman í Grunnskóla Grinda- víkur, útskrifuðust úr Menntaskólanum á Akureyri þann 17. júní. Frá þessu er greint á vef Grindavíkurbæjar. Um mjög stóran útskriftarárgang var að ræða þar sem MA var að útskrifa tvo árganga. Annars vegar síðasta árganginn sem tók stúdentsprófið á fjórum árum og hins vegar fyrsta árganginn sem tók stúdentsprófið á þremur árum. Samtals voru þetta 330 nemendur. Ekki er algengt að svona margir nem- endur úr Grindavík útskrifist á sama tíma frá Menntaskólanum á Akureyri en auk þeirra sem kláruðu á þremur árum voru tvö fædd 1999 einnig að klára MA. Meðfylgjandi myndir voru teknar fyrsta skóladaginn þeirra fyrir þremur árum og síðan á sjálfan út- skriftardaginn. Nemendurnir eru frá vinstri, Teitur Leon Gautason, Telma Lind Bjarka- dóttir, Belinda Berg Jónsdóttir, Mar- grét Fríða Hjálmarsdóttir og Kristín Anítudóttir McMillan. Þá útskrifuðust einnig Gauti Ragnars- son og Elín Björg Eyjólfsdóttir, fædd árið 1999, frá MA. Fimm bekkjarsystkin úr Grunn- skóla Grindavíkur útskrifast úr MA Ekki er vika án Víkurfrétta! Njarðvíkingar áttu hræðilegan dag á knattspyrnuvellinum á mánudags- kvöld þegar þeir tóku á móti Haukum á Rafholtsvellinum í Njarðvík í Inkasso-deild karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Fyrri hálfleikurinn er eitthvað sem heimamenn vilja gleyma sem fyrst. Áður en dómarinn hafði flautað til hálfleiks höfðu gestirnir skorað fjögur mörk. Haukar skorðuðu fyrsta markið á 16. mínútu og svo komu mörkin með tíu mínútna millibili og engu líkara en Njarðvíkingar væru að upplifa martröð. Heimamenn voru bara alls ekki góðir í fyrri hálfleik en hafa greinilega fengið hárblásara í hálfleik því þeir mættu frískir til síðari hálfleiks og skoruðu fljótlega og sýndu allt annan leik en þeir höfðu boðið uppá fyrstu 45 mínúturnar. Ekki tókst Njarðvíkingum að bæta við marki og þurftu að horfa upp á fimmta mark Hauka í uppbótartíma. Fimm tapleikir í röð og útlitið er svart. Njarðvíkingar eru í fallsæti og aðeins með sjö stig eftir níu umferðir. MANNLÍF Á SUÐURNESJUM Njarðvíkingar teknir í bakaríið Það var algjört Stjörnuhrap í Keflavík á mánudagskvöld þegar Keflavík tók á móti Stjörnunni í Pepsi Max-deild kvenna á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Heimakonur unnu stórsigur á Stjörnunni, 5-0, og náðu með sigrinum að komast úr fallsæti. Keflavík var betra liðið og Stjarnan sá aldrei til sólar. Sophie Mc Mahon Groff kom Keflavík yfir strax á annari mínútu. Hún átti stangarskot sem barst aftur til hennar og þá lá beinast við að skalla boltann af öryggi í netið. Sveindís Jane Jónsdóttir var svo búin að skora annað mark Keflavíkur þegar rétt stundarfjórðungur var liðinn af leiknum. Staðan í hálfleik var 2-0 fyrir Keflavík. Krafturinn og sjálfstraustið var til staðar hjá Keflvíkingum sem höfðu yfirburði á vellinum og voru betra liðið í kvöld. Það sannaðist strax á annarri mínútu síðari hálfleiks. Þá skoraði Natasha Moraa Anasi þriðja mark Keflavíkur. Dröfn Einarsdóttir skoraði fjórða markið á 47. mínútu og Sophie Mc Mahon Groff gulltryggði svo glæstan sigur Keflavíkur með sínu öðru marki á 68. mínútu. Eftir leikinn eru Keflavíkurstúlkur komnar upp í 8. sæti deildarinnar með sex stig. Stórsigur Keflavíkur á Stjörnunni Suðurnesjaliðin töpuðu í 2. deildinni Víðismenn töpuðu með þremur mörkum gegn einu þegar þeir sóttu Fjarðabyggð heim á Eskjuvöllinn fyrir austan um helgina í 2. deild Íslands- mótsins í knattspyrnu karla. Atli Freyr Ottesen Pálsson skoraði mark Víðis í leiknum. Í síðustu viku tók Þróttur Vogum á móti ÍR á Vogaídýfuvellinum í Vogum. Heimamenn töpuðu leiknum með tveimur mörkum gegn engu. Á föstudag fá Víðismenn ÍR-inga í heimsókn í Garðinn en Þróttur fer á Selfoss. Víðismenn eru í 4. sæti 2. deildar með 13 stig en Þróttur Vogum er í 9. sæti með 9 stig. Grindavík tapaði Grindvíkingar töpuðu fyrir Vals- mönnum með einu marki gegn engu í Pepsi MAX-deild karla á Íslands- mótinu í knattspyrnu um liðna helgi. Grindvíkingar eru í 10. sæti deildar- innar með 10 stig. Þeir hafa aðeins unnið einn leik af síðustu fimm leikjum, gert tvö jafntefli og tapað tveimur. Keflavík í 3. sæti Keflavík og Þór skildu jöfn í marka- lausum leik norður á Akureyri um helgina í viðureign liðanna í 8. umferð Íslandsmótsins í knattspyrnu karla, Inkasso-deildinni. Keflvíkingar eru í þriðja sæti deildar- innar með 14. stig en Þór og Fjölmir eru á toppnum með 16 stig. Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur samið við Evaldas Zabas um að ganga til liðs við félagið fyrir komandi keppnistímabil í Domino´s- deild karla. Evaldas er fæddur árið 1988 í Lit- háen en flutti á unglingsárum til Kanada. Hann er 188 cm, líkam- lega sterkur og hraður bakvörður og hefur leikið sem atvinnumaður síðan árið 2008. Hann hefur leikið víða, í sterkum deildum í Þýska- landi, Englandi, Svíþjóð, Tékklandi, Kanada, Litháen, Eistlandi, Grikk- landi og Belgíu og í vetur lék hann með TAU Castello í LEB gold á Spáni en það er sama lið og Ægir Steinars- son lék með 2017/2018. Hann lék meðal annars með okkar fyrrum leikmönnum, þeim Giordan Wat- son og Jeb Ivey, þegar hann var á mála hjá Bremerhaven í Þýskalandi í upphafi atvinnumannaferils síns. Evaldas Zabas semur við Njarðvík Snarpar Keflavíkurkonur yfirspiluðu Stjörnuna. VF-mynd: Hilmar Bragi Fimm tapleikir í röð og útlitið er svart. Njarðvíkingar eru í fallsæti og aðeins með sjö stig eftir níu umferðir. VF-mynd: Hilmar Bragi 14 ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 27. júní 2019 // 26. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.