Víkurfréttir - 27.06.2019, Qupperneq 15
Eftir langa og stranga helgi er lokaniðurstaðan hjá ÍRB á AMÍ 2019 annað
sætið. „Við getum verið afar stolt af okkar fólki sem ljómaði af keppnis-
hörku, samstöðu, gleði og einbeitingu. Við sáum mjög mikið af bætingum
og oft á tíðum ótrúlega stórar bætingar. Í ár áttum við færri toppa en oft
áður en unnum mjög mörg verðlaun í heildina og það var það sem skilaði
liðinu öðru sætinu,“ segir Steindór Gunnarsson.
Stærstu afrek mótsins hjá ÍRB voru að
Eva Margrét Falsdóttir varð sjöfaldur
aldursflokkameistari og Katla Mar-
ía Brynjarsdóttir fjórfaldur aldurs-
flokkameistari.
Þeir sem urðu Aldursflokka-
meistarar á AMÍ 2019:
Denas Kazulis:
100m flug.
Eva Margrét Falsdóttir:
100m bringa, 200m skrið, 200m
flug, 100m skrið, 200m bringa og
400m fjór og 4 x 100m fjórsund.
Fannar Snævar Hauksson:
100m flug.
Katla María Brynjarsdóttir:
400 skrið, 200m bak, 200m skrið
og 100m bak.
Sunneva Bergmann
Ásbjörnsdóttir:
200m bringa.
Telpnasveit ÍRB í 4 x 100m
fjórsundi.
Rebekka Marín Arngeirsdóttir;
Eva Margrét Falsdóttir, Elísbet
Jóhannesdóttir og Thelma Lind
Einarsdóttir.
„Við þjálfarnir erum gríðarlega stoltir
af sundfólkinu okkar. Það gerði allt
sem var lagt upp með og miklu meira
en það. Samstaðan, gleðin, keppnis-
harkan, hvatningin og einbeitingin
sem einkenndi okkar fólk var stór-
kostleg. Enn og aftur áttum við frá-
bæran lokadag, en þar spilar inn
einbeiting og skipulag, eins og t.d.
hvíld en við stóðum okkur best í þeim
þætti. Við áttum næst fjölmennasta
liðið í ár en stefnum á að verða stærri,
sterkari, betri og hraðari á næsta ári,“
segir Steindór og bætir við:
„Öll framkvæmd mótsins var frábær
og eiga stjórnarfólk og foreldrar mikið
hrós skilið. Svona mót er mikil fram-
kvæmd og það að eiga fólk sem er
tilbúið í svona mikið sjálfboðaliða-
starf er stórkostlegt. Allar hendur
klárar fyrir liðið og allir samtaka.
Reykjanesbær og starfsfólk sund-
laugarinnar eiga einnig mikið hrós
skilið og Reykjanesbær sem íþrótta-
rbær getur verið afar stoltur af okkar
fólki“.
Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi haldið í Reykjanesbæ:
Eva Margrét sjöfaldur meistari
og Katla María fjórfaldur meistari
Eva Margrét Falsdóttir. Katla María Brynjarsdóttir.
Sveinasveitin.
Fyrirliðar ÍRB á AMI,́
Birna Hilmarsdóttir og
Kári Snær Halldórsson.
Aldursflokkameistarar ÍRB. Ljósmyndir frá ÍRB.
Frammistaða
liðsins frábær
hingað til
„Þetta var alveg hreint magnaður leikur af okkar hálfu. Það er ekkert betra
en að finna sigurtilfinningu aftur sem hefur kannski ekki verið til staðar
nógu oft á þessu tímabili. Við eigum alveg nóg eftir og ég vil hvetja alla sanna
Keflvíkinga að mæta á næstu leiki hjá okkur,“ segir Sveindís Jane Jónsdóttir
en Keflvíkingar byrjuðu vikuna á því að rústa Stjörnunni, 5-0, í Pepsi Max
deildinni í knattspyrnu.
Með sigrinum gegn Stjörnunni tókst
stelpunum að koma sér upp um sæti
í deildinni og verma nú áttunda sætið
eftir tvo sigra í röð.
Sveindís segist sátt með frammistöðu
liðsins sem hafi lagt sitt allra best fram
í öllum leikjum sumarsins. „Frammi-
staða liðsins hefur verið frábær hingað
til. Stigataflan eins og hún er í dag
segir ekkert til um frammistöðu
liðsins í þeim leikjum sem eru búnir.
Í efstu deild eru leikmenn með meiri
reynslu, gæðin eru meiri og tempóið
hærra. Verkefnið er alls ekki erfiðara
en við áttum von á, við höfum haldið
okkur vel inni í öllum leikjum og gefið
stóru liðum deildarinnar góða leiki.“
Aðspurð um restina af sumrinu segir
Sveindís það erfitt að segja til um
hvernig það fari. Markmiðið sé þó
að halda sér í deildinni og einn leikur
verði tekinn í einu. „Ég er að bæta mig
með hverjum leiknum og þeir fara
allir í reynslubankann. Við stelpurnar
munum leggja okkur allar fram.“
Sveindís Jane Jónsdóttir er að gera góða hluti í liði Keflavíkur
Sveindís Jane Jónsdóttir. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
15ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 27. júní 2019 // 26. tbl. // 40. árg.