Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 6
Nýr kafli hjá Kadeco, Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ehf., hófst þegar fjármálaráðherra, fulltrúar frá Isavia, Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ skrifuðu undir viljayfirlýsingu um framtíðarhlutverk félagsins. Í því felst mótun skipulags á svæðinu sem umlykur flugverndarsvæði Keflavíkur- flugvallar, þróun þess og landnýtingu til hagsældar fyrir svæðið í heild. Svæðið sem félagið hefur til umsýslu er eitt verðmætasta landsvæði í eigu ríkissjóðs. Það er um 60 ferkílómetrar að stærð en þess má geta að Ásbrú er um 1/60 af því svæði. „Nú er svo komið að ríkið, sveitar- félögin og Isavia hafa komist að sam- komulagi um að vinna eftir þeirri stefnu sem félagið hefur markað um uppbyggingu í kringum Keflavíkur- flugvöll. Tækifærin eru gríðarleg og það er mikilvægt að unnið sé ötul- lega að sameiginlegum hagsmunum svæðisins í heild með það að leiðar- ljósi að skapa verðmæti, atvinnu og hagsæld,“ segir Ísak Ernir Kristins- son, stjórnarformaður Kadeco í til- kynningu. Kadeco hefur frá upphafi unnið eftir skýrri stefnu sem grundvallast í hugmyndafræði Dr. John Kasarda og kallast „Aerotropolis“. Sú hug- myndafræði byggir á því að skapa megi mikil verðmæti úr landi við flug- völl, svo sem er gert víða erlendis, þar sem alþjóðleg fyrirtæki kjósa að stað- setja sig við vel tengda flugvelli. Bæði vegna möguleika til vörudreifingar en jafnframt til að nýta flugtengingarnar fyrir stjórnendur og starfsfólk. Flug- vellir sem hafa rými til að vaxa laða að fjölbreytta atvinnustarfsemi. Þá styrkir öflugur flugvöllur með góðum tengingum innlenda starfsemi með auknum viðskiptatækifærum og at- vinnumöguleikum. „Frá stofnun hefur Kadeco unnið markvisst að því að laða að erlenda fjárfestingu og alþjóðleg fyrirtæki á svæðið með ágætum árangri, með Aerotropolis hugmyndafræðina að leiðarljósi. Starfsemi þeirra fyrirtækja sem sótt hefur verið hvað harðast eftir hefur verið greind með tilliti til stefnu Kadeco um hvers konar starfsemi er ákjósanlegust á svæð- inu. Gagnaver Verne Global og þör- ungaverksmiðja Algalíf eru kannski skýrustu dæmin um slík fyrirtæki en þau skara framúr á alþjóðlegum mælikvarða á sínu svæði. Þau hafa fjárfest fyrir milljarða króna og verið sannur fengur fyrir svæðið,“ segir Marta Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kadeco í tilkynningunni. „Fleiri fyrirtæki af þessum skala, sem og hótelkeðjur, dreifingaraðilar og hátæknifyrirtæki munu kjósa að staðsetja sig við Keflavíkurflugvöll ef boðið verður upp á aðlaðandi um- hverfi, bæði í eiginlegum og viðskipta- legum skilningi,“ segir Marta. Kadeco hefur leitt þróun og umbreyt- ingu á gamla varnarliðssvæðinu frá árinu 2006 þegar bandarísk stjórn- völd skiluðu svæðinu til íslenskra stjórnvalda. Eitt af megin mark- miðum félagsins var að koma eignum í borgaraleg not. Á árinu voru síðustu eignir sem félagið fékk til umsýslu seldar og þar með er þeim kafla í sögu félagsins lokið. Verkefnið tókst framar vonum en á Ásbrú búa nú á fjórða þúsund manns og á þriðja hundruð fyrirtæki eru skráð á svæðinu sem skapa á annað þúsund störf. Hefja uppbyggingu á 60 km² svæði við Keflavíkurflugvöll • Nýr kafli er hafinn í þróun skipulags á svæðinu sem umlykur Keflavíkurflugvöll • Hugmyndafræðin byggir á því sem kallast „Aerotropolis“ • Meginmarkmiðið að skapa verðmæti, atvinnu og hagsæld fyrir svæðið í heild • Nú þegar hafa fyrirtæki fjárfest fyrir milljarða á svæðinu Fyrstu skref í átt að mótun Aerotropolis á Suðurnesjum með nýju hlutverki KADECO Svipmyndir úr hófi þar sem viljayfirlýsingunni var fagnað - fleiri myndir fylgja umfjölluninni á vf.is Ljósmyndir: OZZO 6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.