Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 13
Tillaga að deiliskipulagi Hafnargata, Suðurgata, Vatnsnesvegur og Skólavegur Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti 18. júní 2019 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Hafnargata, Suðurgata, Vatnsnesvegur og Skólavegur Reykjanesbæ skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulag felst í auknu byggingarmagni og fjölgun íbúða við Hafnargötu, nýrri vegtengingu við Skólaveg og innkeyrsla verður frá Hafnargötu. Heimild fyrir viðbygging- um við hús við Suðurgötu og Vatnsnesveg, bílastæðum á lóðum, auknu byggingamagni og fjölgun íbúða. Heimild verður til uppskiptingar á lóðum við Suðurgötu. Lóðamörk breytast þannig að nokkrar lóðir stækka yfir bæjarland. Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 4. júlí 2019 til 22. ágúst 2019. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 22. ágúst 2019. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 eða á netfangið gunnar.k.ottosson@reykjanesbaer.is þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Aðalskipulag - Skipulagslýsing Skipulagslýsing vegna endurskoðunar aðalskipulags Reykjanesbæjar. Skipulagslýsingin verður til sýnis á skrifstofu Reykjanes- bæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 4. júlí 2019 til 30. ágúst 2019. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 30. ágúst 2019. Skipulagslýsingin er einnig aðgengileg á vef Reykjanes- bæjar, www.reykjanesbaer.is Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við lýsinguna.Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanes- bæjar að Tjarnargötu 12 eða á netfangið gunnar.k.ottosson@ reykjanesbaer.is þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Reykjanesbæ, 26. júní 2019. Skipulagsfulltrúi ATVINNA / WORK Smiðjuvöllum 5a // 230 Reykjanesbær // Sími: 578-6070 Umsókn sendist með upplýsingum um starfsferil (CV) og mynd á: iceland@mcrent.is. Tekið er við umsóknum fram til 10.7.2019. Please send your CV with picture to: iceland@mcrent.is. Applications will be received until 10.7.2019. Allar nánari upplýsingar eru veittar með tölvupósti: iceland@mcrent.is For further information please send us an e-mail to: iceland@mcrent.is MCRENT ICELAND, HÚSBÍLALEIGA, AUGLÝSIR EFTIR STARFSFÓLKI Í EFTIRFARANDI STARF. MCRENT MOTORHOME RENTAL ADVERTISES FOR PEOPLE IN THE FOLLOWING POSITION. HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR AFGREIÐSLA/CUSTOMER SERVICE Laus er tímabundin staða fram til loka október 2019, með möguleika á framlengingu starfstímabils. Starfið felur í sér almenna þjónustu við viðskiptavini fyrirtækisins, kennslu á tæki og skjalafrágang. Available is a position in customer service on a temporary basis, until the end of October 2019, with a possibility of a longer period. The work includes general service to our customers and filing of information. Hæfniskröfur/Hiring standards: Rík þjónustulund, tölvukunnátta, tungumálakunnátta, bílpróf og áhugi á ferðaþjónustu. Lágmarks aldur er 22 ár. Positive attitude towards customer service, computer skills, knowledge of languages, applicants must have a driver’s license and to have an interest in tourism. Minimum age is 22 years. Börkur hefur verið skorinn af stofni á einu hæsta grenitrénu í skógræktinni í Háabjalla í landi Sveitarfélagsins Voga. Um 20 sentimetra hluti hefur verið skorinn úr berkinum allan hringinn en sárið er í um það bil eins og hálfs metra hæð, segir í færslu sem Oktavía Jóhanna Ragnarsdóttir skrifar á fésbókarsíðu Skógfells, skógræktarfélags í Vogum. Skógrækt hófst á Háabjalla 1948 en þar hafa mælst hæstu tré á Suður- nesjum. Oktavía segir að haft hafi verið samband við skógfræðing hjá Skógræktarfélagi Íslands sem taldi lífslíkur trésins afar litlar eða einungis um 5%. „Þó var ráðist í að flytja börk af ný- felldu tré og líma hann yfir sárið með þá von í brjósti að það muni bjarga lífi þessa öldungs,“ segir í færslunni. Stjórn og félagsmönnum Skógfells er það mikil ánægja að þeim fari fjölgandi sem njóta útivistar í fagurri náttúru skógarins og nærsvæða hans. „Öll umgengni hefur verið til fyrir- myndar, við vorum því virkilega sorgmædd að sjá skemmdirnar og létum lögreglu vita,“ skrifar Oktavía Jóhanna Ragnarsdóttir. Bláa lónið greiðir 4,3 millj- arða króna í arð til eigenda Bláa lónið hagnaðist um 26,4 millj- ónir evra á síðasta ári eða því sem nemur um 3,7 milljörðum króna. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins sem birtur var fyrir skömmu og fjallað er um á vef Við- skiptablaðsins, vb.is, í dag. Hagn- aður fyrirtækisins dróst saman um 17,5% í milli ára þegar hann nam 31 milljón evra. Tekjur félagsins námu 122,6 milljónum evra á síðasta ári eða um 17,4 milljörðum króna og jukust um 20% milli ára. Eignir félagsins námu í lok síðasta árs 157,2 milljónum evra eða um 22,3 milljörðum króna. Eigið fé félagsins var 87,8 milljónir evra og eiginfjár- hlutfall því um 56%. Á aðalfundi sem fram fór í dag var samþykkt að greiða út um 30 milljóna evra arðgreiðslu til eigenda eða því sem nemur um 4,3 milljörðum króna. HÆSTA GRENITRÉ Á SUÐURNESJUM DAUÐVONA EFTIR SKEMMDARVERK Ekki er vika án Víkurfrétta ... nema kannski næsta vika! Skógrækt hófst á Háabjalla 1948 en þar hafa mælst hæstu tré á Suðurnesjum. Oktavía segir að haft var samband við skógfræðing hjá Skógræktarfé- lagi Íslands en hann taldi lífs- líkur trésins afar litlar eða einungis um 5%. 13FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.