Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 8
GeoSilica vörumerkið hefur allt fengið nýtt útlit, nýjar markaðsáherslur og nýja vefsíðu. Nýjar vörur fyrirtækisins koma í hillur allra sölustaða GeoSilica í byrjun júlí en ásamt því opnar endurbætt vefsíða. Fyrirtækið hefur unnið hörðum höndum að þessum breytingum síðastliðna mánuði og útkoman er fram úr öllum væntingum, segir í frétt frá fyrirtækinu. Samhliða þessum breytingum kemur ný vara á markað í júlí. Fimmta varan bætist í vörulínu GeoSi- lica í júlí, REFOCUS fyrir hug og orku. Varan inniheldur 100% náttúrulegan jarðhitakísil með viðbættu járni og D-vítamíni í hreinu íslensku vatni sem stuðlar að eðlilegri heilastarf- semi, orkubrennslu og dregur úr þreytu. Auk þess stuðlar bæði járn og D-vítamín að heilbrigðu ónæmis- kerfi. REFOCUS er framleitt á Íslandi. Varan hentar öllum en járn og D-víta- mínskortur er algengur og þá sérstak- lega fyrir svæði líkt og Norðurlöndin. REFOCUS mun fást í öllum helstu apótekum og heilsuverslunum og betri matvöruverslanir á Íslandi, sem og glænýrri vefverslun GeoSilica, en þar er hægt að fá vörur í mánaðarlegri áskrift með 20% afslætti. „Við fengum innblástur af vörunni vegna D-vítamíns- og járnskorts sem er mjög algengur sérstaklega á Norðurlöndunum. Varan hefur mikla sérstöðu vegna þess að hún inniheldur vegan D3-vítamín í vökva- formi sem er afar sjaldgæft á markaði. Allar vörurnar okkar eru vegan og við lögðum mikla vinnu í að þróa REFOCUS í samræmi við það,“ segir Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica. GeoSilica hefur nýlega endurnýjað útlit og áherslur vörumerkisins. Viðbrögð við breytingunum hafa verið afar jákvæð bæði á íslenskum og erlendum markaði. Umbúðir og markaðsefni er einfaldara sem er í samræmi við vörurnar, sem innihalda fá en áhrifarík innihaldsefni og engin skaðleg aukaefni. „Við viljum að varan okkar sér lífs- stílsvara, við viljum að neytendur kaupi og neyti varanna vegna þess að þau vilja lifa heilbrigðum lífsstíl. Við ákváðum að einfalda umbúðir og markaðsefni til þess að ná til víðari hóps og ungs fólks. Með því að taka vöruna er neytandi að fyrirbyggja heilsufarsleg vandamál og því er mikilvægt að koma kísli inn í daglega rútínu sína sem fyrst,“ segir Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri GeoSilica. Keflavíkurflug- völlur hætti kolefnislosun í starfsemi sinni fyrir 2050 Á 29. ársþingi ACI EUROPE, evrópu- deildar Alþjóðasamtaka flugvalla, á Kýpur skrifaði Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, undir skuldbindingu um að Keflavíkurflugvöllur muni hætta allri kolefnislosun í beinni starfsemi sinni í síðasta lagi árið 2050. Þessi yfirlýsing var gefin út samfara því að ACI EUROPE tilkynntu um Net- Zero 2050-skuldbindingu rekstrarað- ila flugvalla með formlegum hætti. Hún felur í sér að flugvellirnir hætti kolefnislosun í sinni starfsemi í síð- asta lagi árið 2050. Þessi sameiginlega skuldbinding, sem undirrituð var af 194 flugvöllum sem reknir eru af 40 rekstraraðilum í 24 löndum, er stórt skref í baráttu flugvalla gegn lofts- lagsbreytingum. Fresturinn til ársins 2050 er í sam- ræmi við nýjustu gögn IPCC og þá stefnu framkvæmdastjórnar ESB sem tekin var upp af ráðherraráði Evrópu- sambandsins, um að þróa notkun orkugjafa í átt að lægra hlutfalli ko- lefna (decarbonization). Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia: „Við á Keflavíkurflugvelli styðjum þessa yfirlýsingu. Með undirritun hennar lýsum við yfir ásetningi okkar í umhverfismálum með ótvíræðum hætti. Við höfum unnið markvisst að því að minnka kolefnaútblástur okkar síðan árið 2015 og höfum lokið við annað stig af fjórum í innleiðingu á kolefnisvottun ACA (Airport Car- bon Accreditation). Það þýðir að við höfum kortlagt kolefnisspor okkar, gripið til aðgerða til að minnka kol- efnislosun og sett markmið í þeim efnum.“ Hamborgarabúlla Tómasar er mætt til Reykjanesbæjar. Búllu- bíllinn hefur komið sér fyrir á bílastæðinu við Nettó í Njarðvík og þar verður bíllinn í sumar. Tómas Tómasson hefur reynslu af því að steikja hamborgara ofan í Suðurnesjamenn. Hann byrjaði á Keflavíkurflugvelli og þaðan fór hann til Grindavíkur og sá um veitingarekstur í Festi í nokkur ár. Árið 1981 opnaði hann Tommaborgara við Hafnargöt- una í Keflavík og síðar á Fitjum. Nú er Tommi, sem er orðinn sjötugur, mættur aftur og er að bregðast við áskorunum íbúa í Reykjanesbæ. Tommi hefur verið hvattur til að opna Hamborgara- búlluna í Reykjanesbæ. Hann ákvað hins vegar að byrja á því að koma með Búllubílinn til bæjar- ins og kanna viðtökur heima- manna áður en stærri ákvarð- anir væru teknar. Hann væri þó með augun opin fyrir hentugu húsnæði en sagðist í samtali við Víkurfréttir bara gefa loðin svör eins og stjórnmálamaður við spurningunni um hvort Búllan væri á leið til bæjarins. Búllubíllinn opnaði á laugar- dagsmorgun og alla helgina var mikið að gera og ljóst að Suður- nesjamenn eru móttækilegir fyrir Búllu-borgurum. Tommi segist þó ekkert vera að gera eitt- hvað nýtt, því fyrir væru nokkrir góðir hamborgarastaðir á Suður- nesjum Nýtt útlit og ný vara GeoSilica á markað REFOCUS - Hugur og Orka Tommi mættur með Búllubílinn til Reykjanesbæjar í sumar Tómas Tómasson hefur reynslu af því að steikja hamborgara ofan í Suðurnesjamenn. VF-myndir: Hilmar Bragi 8 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.