Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 12
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Bæjarstjóri – aðstoðarmaður
Velferðarsvið – lýðheilsufræðingur
Þjónustukjarni Suðurgötu – deildarstjóri
Fjármálasvið – fjármálastjóri
Stjórnsýslusvið – forstöðumaður Súlunnar
Leikskólinn Holt – sérkennslustjóri
Vinnuskólinn – ný umsókn fyrir 8., 9. og 10 bekk
Akurskóli – hönnunar- og smíðakennari
Holtaskóli – dönskukennari
Fjörheimar/88 húsið og Bardagahöll – ræstingar
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum
vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru
jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Duus Safnahús - sýningar í gangi
Listasalur: Fjölskyldumyndir, verk eftir Erlu S.
Haraldsdóttur. Stendur til 18. ágúst.
Gryfjan: Varnarlið í verstöð, myndir og munir úr sögu
Varnarliðsins. Stendur til 4. nóvember.
Bíósalur: Verk úr safneign - málverk, skissur og steindir
gluggar. Stendur til 18. ágúst.
Stofan: Ást á íslenskri náttúru, ljósmyndir eftir Oddgeir
Karlsson og fuglar og grjót úr safni Áka Gränz heitins.
Stendur til 12. júlí. Duus Safnahús er opin kl. 12-17 alla daga.
Sundmiðstöð/Vatnaveröld - sumaropnun
Klukkan 6:30 - 21:30 virka daga
Klukkan 9:00 - 18:00 laugardaga og sunnudaga
Úthlutun úr Mennta-, menningar
og afrekssjóði Sveitarfélagsins
Voga fór fram í vikunni. Sjóðurinn
var stofnaður árið 2015 og tekjur
hans eru ávöxtun söluandvirðis
0,1% hluts í Hitaveitu Suðurnesja
sem seldur var árið 2011. Tilgangur
sjóðsins er að hlúa að menntun og
menningu sem og að veita viður-
kenningar fyrir unnin afrek í
íþróttum, menningu og listum.
Að þessu sinni fengu þrír nemendur
úr 10. bekk Stóru-Vogaskóla styrk
en það eru:
Elísabet Freyja Ólafsdóttir. Hún hlaut
viðurkenningu fyrir námsárangur á
grunnskólaprófi Stóru - Vogaskóla.
Umsögn skóla: „Frábær árangur í
námi og þátttöku í Skólahreysti.”
Gabríella Sif Bjarnadóttir. Hún hlaut
viðurkenningu fyrir námsárangur á
grunnskólaprófi Stóru-Vogaskóla.
Umsögn skóla: „Fyrir framúrskarandi
árangur í námi og tónlist.”
Súsanna Margrét Tómasdóttir. Hún
hlaut viðurkenningu fyrir námsár-
angur á grunnskólaprófi Stóru-Voga-
skóla.Umsögn skóla: „Frábær árangur
í námi og þátttöku í félagsstörfum
nemenda.”
Einnig fengu Eydís Ósk Símonar-
dóttir, Gunnlaugur Atli Kristinsson
og Stefán Svanberg Harðarson styrk.
Gunnlaugur Atli og Eydís Ósk hafa
lokið stúdentsprófi og Stefán Svan-
berg hefur lokið helmingi náms til
stúdentsprófs.
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur
samþykkt tillögu frá stýrihópi um
húsnæðismál Gerðaskóla. Húsrými
almenningsbókasafns á neðri hæð
Gerðaskóla verði nýtt sem kennslu-
rými fyrir 1. bekk á komandi skóla-
ári. Íbúum í Garði verður veitt bóka-
safnsþjónusta frá almenningsbóka-
safninu í Sandgerði meðan þessi
tímabundna ráðstöfun stendur yfir.
Bæjarráð leggur áherslu á að út-
færsla á bókasafnsþjónustu fyrir
íbúa í Garði liggi fyrir sem allra
fyrst.
Þó svo að Ísland sé ekki stórt land, þá engu að síður er Ísland næst stærsta fiskveiðiþjóðin í Evrópu. Einungis
Noregur er stærri fiskveiðiþjóð og í því landi er óhemju mikið af allskonar bátum af öllum stærðum sem
stunda fiskveiðar.
Í Noregi hafa margir báta sem hafa
verið smíðaðir á Íslandi verið seldir
og er plastsmiðjan Trefjar í Hafnar-
firði mjög öflug í því að smíða plast-
báta og selja þangað. Bátanna frá
Trefjum þekkjum við Suðurnesja-
menn mjög vel undir nafninu Cleo-
patra og er t.d. Von GK, Gísli Súrsson
GK og Vésteinn GK bátar sem eru
smíðaðir þar.
Til Noregs hafa líka verið seldir eldri
bátar og nýjasti báturinn sem var
seldur þangað á sér mikla sögu á
Suðurnesjum. Í Grindavík var bátur
gerður út í 22 ár sem hét Kópur GK
175 og var síðan seldur til Tálkna-
fjarðar og hét þar Kópur BA 175.
Báturinn var seldur fyrir nokkrum
árum til Noregs til útgerðar sem
heitir Esköy og er þetta fyrirtæki
í eigu bræðranna Hrafns og Helga
Sigvaldssona ásamt Bjarna Sigurðs-
syni. Þeir keyptu bátinn Kóp BA og
gáfu honum nafnið Valdimar H.
Báturinn hefur stundað veiðar með
beitningavél í Norður Noregi og ísar
aflann um borð, sem er ólíkt öðrum
stórum línubátum í Noregi, því þeir
hausa flestir fiskinn og heilfrysta
svo um borð.
Þegar þetta er skrifað þá er Valdimar
H í 9. sæti yfir allra línubáta í Noregi
og er aflahæsti línubáturinn í Noregi
sem veiðir í ís og frystir ekki aflann
um borð. Núna er báturinn á risa-
siglingu því fimm manna áhöfn er
að sigla bátnum um 2650 km leið frá
Norður Noregi og alla leið til Gdansk
í Póllandi, þar sem að báturinn er
að fara í slipp.
Afhvejru byrja ég þennan pistil á
Noregi? Jú, kannski af því að ég
sjálfur skellti mér til Noregs núna
um helgina að hlusta á þungarokk-
stónlist í þrjá daga. Já, maður keyrir
rútur, skrifar á aflafrettir, gefur út
aflatölurrit, skrifar þessa pistla og
hlustar á mikið þungarokk.
Og talandi um skrif, þá er pistill-
inn sem ég skrifaði fyrir 3 vikum
síðan um slippinn í Njarðvík búinn
að vekja miklu meiri athygli en ég
nokkurn tíman gerði mér grein
fyrir. Síðasti pistill fjallaði mikið
um það og meðal annars um bátinn
Hauk Böðvarsson ÍS, sem þá var
nýsmíðaður og er núna í slippnum
í Njarðvík og heitir þar Valbjörn.
Ég fékk send skilaboð þá skipstjóra
frá Suðurnesjunum sem heitir Guð-
mundur Falk. Hann sagði ansi merki-
lega stutta sögu. Hún var á þá leið að
þegar að Haukur Böðvarsson ÍS lá
nýsmíðaður í Njarðvíkurhöfn nótt-
ina eftir sjósetningu var hann á leið
um borð í bátinn sem hann var á þá
og hét Harpa RE. Harpa RE var þá
á leið til loðnuveiða morgunin eftir.
Sá þá Guðmundur að mikil slagsíða
var kominn á Hauk Böðvarsson ÍS
og sjór flaut inn á dekk bátsins og
um lensportin og var báturinn að
slíta af sér öll bönd. Guðmundur ók
rakleiðis niður á slökkvistöð og sagði
þeim þar að Haukur Böðvarsson ÍS
væri að sökkva. Mætti dælubíll frá
slökkviliðinu og mannskapur frá Vél-
smiðjunni Herði sem smíðaði bátinn.
Kom þá í ljós að botnloki hafði verið
opinn, sem ekki var búið að tengja.
Því má segja að snögg viðbrögð Guð-
mundar hafi bjargað bátnum. Engar
þakkir fékk hann nú samt fyrir það
en nú fær hann þær þakkir, í það
minnsta frá mér.
Já og talandi áfram um Njarðvíkur-
höfn, þá hafa þeir sem rúnta um þá
bryggju tekið eftir grænum fallegum
báti sem þar er. Það er Grundfirð-
ingur SH sem Hólmgrímur Sigvald-
son er búinn að kaupa en hann gerir
út, eins og við vitum, Grímsnes GK,
Halldór Afa GK, Maron GK og kaupir
fisk af Hraunsvík. Hólmgrímur mun
fara með nýja bátinn í slipp í haust og
mun hann þá fá fallega rauða litinn
sem einkennir bátana hans og án efa
mun hann taka þátt í netaveiðunum
á vertíðinni 2020.
Minni svo á að Vertíðaruppgjörið
2019-1969 er til sölu hjá mér í síma
774 3616.
AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
AFLA
FRÉTTIR
Þungarokk og norskir þorskar
Styðja ungt fólk í Vogum
með ávöxtun hitaveitusjóðs
Úthlutað úr mennta-, menningar- og afrekssjóði sveitarfélagsins Voga
Bókasafnið í Garði tekið
undir kennslurými
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma
HERDÍS HAFSTEINSDÓTTIR
Lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þann 28. júní
í faðmi fjölskyldunnar.
Útför fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Rúnar Þ. Magnússon
Tómas Árni Tómasson
Aron Rúnarsson
Bjarki Rúnarsson
Íris Björk Rúnarsdóttir
Björk Magnúsdóttir
Sólveig S. Sigurvinsdóttir
Sverrir Birgisson
Barnabörn
12 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.