Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 04.07.2019, Blaðsíða 14
Fimmtudaginn 27. júní efndu Sögu- og minjafélagið í Vogum og Reykjanes UNESCO Global Geop- ark til gönguferðar í Vogum. Það voru liðlega þrjátíu manns sem mættu og tóku þátt, þrátt fyrir rigningarsudda. Ferðinni var heitið að Brekku undir Vogastapa, þar sem búið var í tæp 100 ár, fram til byrjunar 20. aldar. Gangan hófst við Stóru-Vogaskóla, undir öruggri leiðsögn Hauks Aðal- steinssonar Á leiðinni var m.a. staldrað við rústir Stóru-Voga, sem talið er að hafi verið fyrsta steinsteypta íbúðarhúsið sem reist var á Suður- nesjum. Áfram var haldið eftir góðum göngustíg sem umlykur byggðina í Vogum, og staldrað næst við upplýsingaskiltið um Sæmundarnef. Þar var drepið á útgerðasögu, einkum árabátaútgerð, sem var fyrirferða- mikil í Vogum á öldum áður. Vogavíkin var gjarnan kölluð Gullkistan, svo fengsæl voru fiskimiðin þar. Þá var haldið sem leið liggur eftir fallegri svartri sandfjöru austan við Hvammsgötu. Þar í fjöruborðinu má m.a. sjá leifar af mógröfum. Þessu næst var staldrað við á s.k. Kristjánstanga, sem er innst í Vogavík. Haukur leiðsögumaður sagði þar einnig frá útgerðarsögunni, en á þessum slóðum stóðu m.a. salthús til fiskverkunar á 19. öld. Áfram var haldið og stefnan nú tekin að Brekku undir Vogastapa. Háfjara var, sem gerði hópnum kleift að ganga á sléttum sandbotninum, í stað þess að klöngrast eftir þýfðu landslagi í brekkurótunum. Í sandinum mátti sjá litla hrauka, sem eru eftir fjörumaðka sem þarna þrífast. Maðkarnir voru fyrr á tímum tíndir og nýttir til beitu á línu. Þessu næst var komið að rústum Brekku, eins þriggja býla þar sem heilsársbúseta var undir Vogastapa. Haukur sagði frá lífi fólksins á þessum slóðum, þegar mest var bjuggu um 30 manns á þessum stað, á þremur býlum. Gengið var um svæðið og rústir fleiri býla skoðaðar, og drepið á útgerðasögunni. Því næst var haldið til baka sömu leið, eftir vel heppnaða ferð. Tveimur tímum eftir brottför komu göngumenn sælir og glaðir til baka að Stóru-Vogaksóla, en eilítið blautir og hraktir. Vel heppnuð ferð í alla staði, og þátttakan góð. Kveðja, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri. Hópur dansara frá Danskompaní í Reykja- nesbæ tekur nú þátt í heimsmeistaramótinu í dansi, Dance World Cup, sem haldið er í Braga í Portúgal. Hingað til hefur hópurinn náð gríðarlega góðum árangri en dansararnir sem um ræðir eru þær Díana Dröfn Benediktsdóttir, Elma Rún Kristinsdóttir, Ingibjörg Sól Guðmundsdóttir, Jórunn Björnsdóttir, Júlía Mjöll Jens- dóttir, Sonja Bjarney Róbertsdóttir Fisher og Sóley Hall- dórsdóttir. Þær keppa í hinum ýmsu dansflokkum með mismunandi atriði. Fyrsta atriðið frá Danskompaní var dansinn Mavavity eftir Auði B. Snorradóttur en það endaði í 5. sæti og var flutt af þeim Jórunni og Sóleyju. Þá hlaut annað atriði frá Danskompaní bronsverðlaun með atriðið Harpies eftir Helgu Ástu, eiganda Danskompaní. Dansararnir í því atriði voru þær Díana, Elma, Ingibjörg, Júlía og Sonja. Víkurfréttir náðu tali af Ingibjörgu Sól sem var virkilega sátt með frammistöðu Danskompaní og íslenska lands- liðsins í heild sinni. „Við erum ótrúlega stoltar af því að hafa náð svona langt og ætlum að gera okkar allra besta. Markmiðið okkar er að kynnast dönsurum hvaðanæva að úr heiminum, sýna okkur og sjá aðra. Þetta er frábært tækifæri til að læra meira, fá innblástur og byggja vinasambönd við aðra dansara,“ segir hún. Framundan eru fleiri keppnir hjá stelpunum, æfingar og uppskeruhátíð í einu stærsta leikhúsi Portúgal þar sem heimsmeistaratitillinn verður veittur og flottustu atriði keppninnar sýna. „Við svífum um á bleiku skýi. Þetta er ótrúleg upplifun. Íslenska landsliðið er búið að standa sig svo vel í keppninni og við hlökkum til að halda áfram að gera okkar besta og betra en það,“ bætir Ingibjörg við. Hægt er að fylgjast með hópnum á Instagram- og Facebook- síðu Danskompaní það sem eftir er móts en hópurinn vill koma kærum þökkum til styrktaraðila sinna en þeir eru Saltver, Landsbankinn, Víkurás, Eignamiðlun Suðurnesja, Fasteignasalan Stuðlaberg, Tannlæknastofa Kristínar Erlu, Tannlæknastofa Kristínar Geirmunds, Ráðhúskaffi og Bílrúðuþjónustan. Hópur dansara frá Danskompaní á Dance World Cup í Portúgal: SVÍFA UM Á BLEIKU SKÝI OG BYRJAÐAR AÐ SAFNA VERÐLAUNUM Gönguferð um Voga - með Sögu- og minjafélaginu í Vogum og Reykjanes UNESCO Global Geopark Fleiri myndir munu birtast með umfjölluninni á vf.is Verið velkomin á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnu- kirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001 SUNNUDAGA KL. 20:30 á Hringbraut og vf.is 14 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.