Víkurfréttir - 04.07.2019, Page 6
Nýr kafli hjá Kadeco, Þróunarfélagi Keflavíkurflugvallar ehf., hófst þegar
fjármálaráðherra, fulltrúar frá Isavia, Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ
skrifuðu undir viljayfirlýsingu um framtíðarhlutverk félagsins. Í því felst
mótun skipulags á svæðinu sem umlykur flugverndarsvæði Keflavíkur-
flugvallar, þróun þess og landnýtingu til hagsældar fyrir svæðið í heild.
Svæðið sem félagið hefur til umsýslu er eitt verðmætasta landsvæði í eigu
ríkissjóðs. Það er um 60 ferkílómetrar að stærð en þess má geta að Ásbrú
er um 1/60 af því svæði.
„Nú er svo komið að ríkið, sveitar-
félögin og Isavia hafa komist að sam-
komulagi um að vinna eftir þeirri
stefnu sem félagið hefur markað um
uppbyggingu í kringum Keflavíkur-
flugvöll. Tækifærin eru gríðarleg og
það er mikilvægt að unnið sé ötul-
lega að sameiginlegum hagsmunum
svæðisins í heild með það að leiðar-
ljósi að skapa verðmæti, atvinnu og
hagsæld,“ segir Ísak Ernir Kristins-
son, stjórnarformaður Kadeco í til-
kynningu.
Kadeco hefur frá upphafi unnið
eftir skýrri stefnu sem grundvallast
í hugmyndafræði Dr. John Kasarda
og kallast „Aerotropolis“. Sú hug-
myndafræði byggir á því að skapa
megi mikil verðmæti úr landi við flug-
völl, svo sem er gert víða erlendis, þar
sem alþjóðleg fyrirtæki kjósa að stað-
setja sig við vel tengda flugvelli. Bæði
vegna möguleika til vörudreifingar en
jafnframt til að nýta flugtengingarnar
fyrir stjórnendur og starfsfólk. Flug-
vellir sem hafa rými til að vaxa laða
að fjölbreytta atvinnustarfsemi. Þá
styrkir öflugur flugvöllur með góðum
tengingum innlenda starfsemi með
auknum viðskiptatækifærum og at-
vinnumöguleikum.
„Frá stofnun hefur Kadeco unnið
markvisst að því að laða að erlenda
fjárfestingu og alþjóðleg fyrirtæki á
svæðið með ágætum árangri, með
Aerotropolis hugmyndafræðina að
leiðarljósi. Starfsemi þeirra fyrirtækja
sem sótt hefur verið hvað harðast
eftir hefur verið greind með tilliti
til stefnu Kadeco um hvers konar
starfsemi er ákjósanlegust á svæð-
inu. Gagnaver Verne Global og þör-
ungaverksmiðja Algalíf eru kannski
skýrustu dæmin um slík fyrirtæki
en þau skara framúr á alþjóðlegum
mælikvarða á sínu svæði. Þau hafa
fjárfest fyrir milljarða króna og verið
sannur fengur fyrir svæðið,“ segir
Marta Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Kadeco í tilkynningunni.
„Fleiri fyrirtæki af þessum skala, sem
og hótelkeðjur, dreifingaraðilar og
hátæknifyrirtæki munu kjósa að
staðsetja sig við Keflavíkurflugvöll
ef boðið verður upp á aðlaðandi um-
hverfi, bæði í eiginlegum og viðskipta-
legum skilningi,“ segir Marta.
Kadeco hefur leitt þróun og umbreyt-
ingu á gamla varnarliðssvæðinu frá
árinu 2006 þegar bandarísk stjórn-
völd skiluðu svæðinu til íslenskra
stjórnvalda. Eitt af megin mark-
miðum félagsins var að koma eignum
í borgaraleg not. Á árinu voru síðustu
eignir sem félagið fékk til umsýslu
seldar og þar með er þeim kafla í sögu
félagsins lokið. Verkefnið tókst framar
vonum en á Ásbrú búa nú á fjórða
þúsund manns og á þriðja hundruð
fyrirtæki eru skráð á svæðinu sem
skapa á annað þúsund störf.
Hefja uppbyggingu á 60 km²
svæði við Keflavíkurflugvöll
• Nýr kafli er hafinn í þróun skipulags á svæðinu sem umlykur Keflavíkurflugvöll
• Hugmyndafræðin byggir á því sem kallast „Aerotropolis“
• Meginmarkmiðið að skapa verðmæti, atvinnu og hagsæld fyrir svæðið í heild
• Nú þegar hafa fyrirtæki fjárfest fyrir milljarða á svæðinu
Fyrstu skref í átt að mótun Aerotropolis á Suðurnesjum með nýju hlutverki KADECO
Svipmyndir úr hófi þar sem viljayfirlýsingunni var fagnað - fleiri myndir fylgja umfjölluninni á vf.is
Ljósmyndir: OZZO
6 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.