Víkurfréttir - 04.07.2019, Qupperneq 10
Hvernig er að vinna
í bæjarvinnunni?
Alexandra María Traustadóttir 14 ára:
Er dálítið hrædd við köngulærnar
„Það er alveg fínt en þetta er í annað sinn sem ég
vinn hjá bænum en ég er dálítið hrædd við köngu-
lærnar, þegar ég sé þær. Ég get samt alveg setið á
jörðunni. Ég verð mjög ánægð þegar ég sé breyt-
ingarnar þegar ég er búin, allt svo snyrtilegt en ég
er snyrtipinni. Mér finnst líka gaman þegar fólk
tekur eftir því að allt er breytt og betra. Í þessu
starfi er maður ekki einn og er með fullt af nýjum
krökkum sem mér finnst gaman.“
Gabríel Goði Ingason 16 ára:
Er þá ekki einn heima á daginn
„Það er alveg ágætt að vinna í þessu starfi en
þetta er í annað sinn sem ég vinn hjá bænum.
Gaman að vera með krökkunum og þá er maður
ekki einn heima í herberginu á daginn og fær
frekar pening fyrir að vinna hér úti. Þá get ég
búið til fleiri tölvur en það hef ég gert oft. Ég ætla
að verða forritari og er að fara í nám hjá Keili í
tölvuleikjagerð. En annars finnst mér fínt að sjá
breytingarnar í umhverfinu eftir okkur.“
Hafdís Birta Hallvarðsdóttir 14 ára:
Gaman að sjá hvað allt
verður fallegt og snyrtilegt
„Mér finnst gaman að prófa eitthvað nýtt en ég
hef aldrei unnið í bæjarvinnunni. Mér finnst
gaman að taka upp arfa og hreinsa beðin því þá
verður allt svo fallegt og snyrtilegt. Ég er að prófa
að vinna í garðinum hjá ömmu og afa. Mér finnst
æðislegt að vera úti að vinna og er rosa svöng
þegar ég kem heim eftir vinnudaginn.“
Tristan Jayvie Rosento 13 ára:
Ný tilfinning að fá laun
„Þetta er alveg fínt, þetta er fyrsta sumarið mitt
hér. Mér finnst mjög áhugavert að hjálpa til í
náttúrunni og hreinsa. Ég hélt þetta yrði leiðin-
legt en kemur á óvart hvað þetta er skemmtileg
vinna. Gaman að vera með krökkunum, gaman
að spjalla saman og stundum förum við í eltingar-
leiki í pásunum. Þetta er fyrsta vinna mín og fæ
laun fyrir sem er alveg ný tilfinning fyrir mig. Ég
ætla að safna þessu inn á bankabók.“
Unglingavinna er
líklega einstakt íslenskt fyrirbæri. Þessi
sumarstörf fyrir unglinga bjóðast til
dæmis ekki í Noregi eða í Danmörku
þar sem undirrituð hefur verið búsett.
Erlendir gestir spyrja hvað krakkarnir séu
að gera og hvá og lýsa yfir aðdáun sinni
þegar þeir heyra að þau séu á launum við
að hreinsa og fegra umhverfið.
Þótt Íslendingum finnist þetta starf
kannski ekkert merkilegt sjálfum, þá er
það líklega samt merkilegt þegar upp er
staðið.
Undirrituð man sjálf eftir því á ungl-
ingsaldri þegar vinkonurnar sem unnu í
unglingavinnunni skömmuðu hinar sem
ekki nutu þess heiðurs að sópa og hreinsa
götur bæjarins, þegar þær síðarnefndu
hentu sælgætisbréfi á götuna.
Við hittum hóp unglinga sem voru að
hreinsa trjábeð uppi á Ásbrú í góðviðrinu
einn morguninn og tókum þau tali. Einn-
ig töluðum við við flokkstjórana tvo um
starfið.
Gabríel Goði Ingason.
Ha
fdí
s B
irt
a H
all
va
rð
sd
ót
tir
.
Tristan Jayvie Rosento
Hópurinn sem vildi vera með á mynd þennan morgun.
Mikilvægt sumarstarf unglinga
Mar ta Eiríksdóttir
marta@vf.is
VIÐTAL
Hvernig er að vera flokksstjóri?
AÞENA ELFUR INGIBJARGARDÓTTIR 21 ÁRS:
Hef góða tilfinningu
fyrir þessu starfi
„Þetta er fyrsta sumarið mitt en vinkona mín benti mér á þetta starf,
sagði að það væri svo skemmtilegt. Ég var í vetur að vinna sem stuðnings-
fulltrúi í Myllubakkaskóla og finnst gaman að vinna með krökkum. Við
erum að labba um og fylgjast með krökkunum og gá hverjir eru duglegir
og hverjir ekki. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu starfi í sumar en við
verðum með þennan hóp í sumar. Við verðlaunum þau sem standa sig
vel með því að leyfa þeim að fá fimm mínútur lengri pásu, það hvetur
hina til að vera dugleg. Ég ætla að verða lögga, er að vinna í því að klára
stúdentinn og ætla svo í lögregluskólann.“
BRYNJA ÝR JÚLÍUSDÓTTIR 21 ÁRS:
Við leggjum líka áherslu
á að hafa gaman
„Þetta er þriðja sumarið mitt sem flokksstjóri sem er mjög gaman þegar
það er gott veður. Ég þekki þessa krakka því ég var stuðningsfulltrúi í
Háaleitisskóla og er að kynnast þessum krökkum betur hér í sumar. Mér
finnst gaman að vinna með krökkum. Ég ætla að verða kennari og er á
leið í fjarnám í Háskólann á Akureyri í haust. Við leggjum áherslu á að
hafa líka gaman með krökkunum hjá okkur og umbuna þeim sem eru
dugleg því þau eiga það skilið. Hin taka eftir því og það hvetur þau til
að vera duglegri. Við höfum ekki þurft að biðja krakkana að vera ekki í
símanum í vinnunni, enda eru þau öll í Háaleitisskóla og þar er bannað
að vera með síma. Þau eru vön því að vera án síma.“
Flokksstjórarnir
Brynja Ýr Júlíusdóttir
og Aþena Elfur
Ingibjargardóttir.
Alexandra María
Traustadóttir.
10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.