Víkurfréttir - 04.07.2019, Page 15
Rekstrarstjóri
Skólamatur ehf. leitar að metnaðarfullum og
skipulögðum rekstrarstjóra.
Rekstrarstjóri starfar náið með öðrum
stjórnendum fyrirtækisins.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir frumkvæði,
metnaði og vilja til nýsköpunar. Rekstrarstjóri þarf að
búa yfir framúrskarandi leiðtogafærni, samskipta-
hæfileikum og hafa styrk til að taka ákvarðanir
og vinna undir álagi.
Umsókn fylgi starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi.
Umsóknarfrestur er til og með 16. júlí 2019
Helstu verkefni
• Ábyrgð á framleiðsluáætlunum
• Ábyrgð á skipulagi framleiðslu
• Ábyrgð á viðhaldi og endurnýjun tækja og búnaðar
• Innkaup og samningagerð
• Umsjón lagerbókhalds
• Kostnaðareftirlit
• Sala og reikningagerð
• Þátttaka í stefnumótun og markmiðasetningu
Hæfniskröfur
• Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi
• Miklir samskipta- og skipulagshæfileikar
• Framúrskarandi þekking og færni á
upplýsingakerfum sem nýtast í starfi
• Sjálfstæði og frumkvæði
• Lausnamiðuð hugsun
• Afburða leiðtoga- og stjórnunarhæfni
• Reynsla af stjórnun
Skólamatur ehf. er fjölskylduvænt fyrirtæki
sem býður upp á ferskan, hollan og næringa-
ríkan mat - eldaðan frá grunni. Fyrirtækið
þjónustar um fimmtíu mötuneyti á suðvestur-
horni landsins og eru starfsmenn þess
rúmlega eitthundrað.
Fyrirspurnir um starfið og umsóknir
berist til Fannýjar Axelsdóttur,
mannauðsstjóra:
skolamatur@skolamatur.is
Nýverið skýrðu Víkurfréttir frá því, að lausaganga katta yrði áfram leyfð
í Grindavík. Samkvæmt reglugerð fyrir öll sveitarfélög á Suðurnesjum er
lausaganga katta skilyrt: „Leyfishafa er skylt að gæta þess að köttur hans
valdi ekki tjóni, hættu, óþægindum, óþrifum eða raski ró manna. Leyfis-
hafa ber að greiða það tjón sem köttur hans veldur, svo og allan kostnað
við fjarlægja dýrið gerist þess þörf.“
Svo er að skilja af
umgetinni frétt,
að stjórnendur
G r i n d a v í k u r
hefðu þegið þá
ábendingu frá
Heilbrigðiseftirliti
Suðurnesja (HS),
að erfitt yrði að
framfylgja lausagöngubanni. Það er
að sönnu einkennileg ráðgjöf almennt
séð. Það er í öllum greinum snúið að
framfylgja lögum og reglum. Engu að
síður virða reglurnar flestir. Ráðgjöfin
fær á sig þversagnakenndan blæ,
þegar hún er skoðuð í ljósi viðbragða
við erindi undirritaðs til sama stjórn-
valds. Erindið hljómaði svo:
„Ég er íbúi í hinum friðsæla Garði. Bý
þar í parhúsi. Við, grannarnir, verðum
fyrir stöðugum óþægindum af katt-
aróféti annars granna, sem veður hér
um garða og hús, tætir upp sáningu,
gerir þarfir sínar og drepur fuglana,
sem við reynum að laða að okkur.
Þar við bætist að undirritaður er
með ofnæmi fyrir hári katta, þann-
ig að heilsu minni gæti verið hætta
búin, því kötturinn sætir stundum
lagi og skýst inn í húsið, þegar dyr
eru upp á gátt og gluggar opnir. Þrí-
vegis hefur ástandinu verið lýst fyrir
hlutaðeigandi granna og hann góðfús-
lega beðinn um að halda kettinum frá
húsum okkar og görðum. Hann skellir
við því skollaeyrum.“ Væntanlega
hefur erindi ónefnds Grindvíkings
verið svipaðs eðlis.
Hið áhugaverða svar, sem fékkst
með nokkrum eftirgangsmunum,
hljómar svo: „Eignarétturinn þ.m.t.
eign á dýrum er stjórnarskrárvarinn.
Hinsvegar er að finna í ýmsum lögum
heimild til eignaupptöku ef hlutir eða
önnur verðmæti standa í tilteknu
sambandi við refsiverðan verknað.
Í samþykkt um kattahald á Suður-
nesjum er ekki að finna ákvæði um
haldlagningu katta, nema þegar um
villi- eða flækingsketti er að ræða.
Þá er ekki tekið með skýrum hætti á
ofnæmi sem kettir kunna að valda.
Til þess að stjórnvald eins og Heil-
brigðiseftirlit Suðurnesja geti aðhafst
á grundvelli samþykktarinnar þarf að
sanna að refsiverður verknað hafi átt
sér stað, þ.e.a.s. að eigandi dýrsins
hafi með sinni háttsemi brotið reglur.
Embættið þarf með öðrum orðum að
sanna [að] eigandi hafi með ásetningi
valdið öðrum tjóni, óþægindum,
óþrifum o.s.frv. Ekki nægir að ná-
granni telji sig verða fyrir þessum
miska. Það þarf að sanna að tjón sé
af völdum þessa tiltekna dýrs auk
þess sem meta þarf það í krónum og
aurum. Ónæði og röskun á ró eru óljós
hugtök í lögfræðilegum skilningi og
til sönnunar á slíku verða starfsmenn
Heilbrigðiseftirlitsins annað hvort að
hafa sannreynt það sjálfir eða fá það
staðfest í lögregluskýrslum. Óljóst er
hvort samþykktin taki yfir heilsutjón
af völdum kattarofnæmis. Ef svo er
þarf að sanna að þessi tiltekni köttur
hafi valdið ofnæmisviðbrögðum en
ekki eitthvað annað. Það er ekki að
Heilbrigðiseftirlitið vilji ekki hlutast
til í málum sem þessum, heldur frekar
hitt að við teljum hendur okkar
bundnar af gildandi löggjöf og þeim
úrskurðum og dómum sem vísa eiga
veginn um framkvæmdina.“
Í svari þessu má t.d. lesa ýmislegt
gagnlegt um lög og kattaréttar-
höld. Það hefði óneitanlega einnig
verið fróðlegt að sjá útleggingu HS
á stjórnarskránni um rétt þolenda
kattaágangs, bæði með tilliti til heilsu-
fars og eignatjóns, svo og túlkunar á
þessu ákvæði í reglugerð um hollustu-
hætti: „Gæludýr skulu þannig haldin
að ekki valdi hávaða, ónæði, óhollustu
eða óþrifnaði.“ Fátt er um heilbrigði
sagt frá heilbrigðiseftirlitinu. Þó er
véfengt, að tilgreind reglugerð taki til
heilsutjóns af völdum kattaofnæmis.
Samkvæmt orðanna hljóðan er það
beinlínis spaugilegt, enda er stjórn-
sýslan stundum bráðskemmtileg. Ég
hlýt að geta gert ráð fyrir því, að HS
kunni skil á kattaofnæmi og algengi
þess (svona nokkurn veginn). (Líklegt
er, að um það bil fjórðungur til þriðj-
ungur manna hafi óþægindi/sjúkdóm
af völdum kattahárs og –vessa. Sumir
gera sér ekki grein fyrir því.)
HS vill svo gjarnan sinna vinnunni
sinni, en saknar skýrrar reglugerðar.
Því mætti ætla, Grindvíkingar hefðu
verið hvattir til reglugerðarbreytingar,
sem ótvírætt bannaði lausagöngu
katta eins og víða meðal siðaðra þjóða.
Slík reglugerð hefði vafalaust skapað
kæti í höllu HS og þar jafnvel borin
fram kattarhlandslegin jarðarber eða
salat ræktað í kattarkúki.
Undirritaður leyfir sér hins vegar að
skora á sveitastjórnir Suðurnesja að
banna lausagöngu katta með þeim
rökstuðningi, sem felst í grein þess-
ari og annarri fyrri um efnið í sama
miðli. Hver veit nema ástir katta og
eigenda þeirra blómstri enn við aukið
samneyti á heimavettvangi beggja.
Arnar Sverrisson
Höfundur er ellilífeyrisþegi, áhuga-
maður um ábyrgt kattahald ásamt
góðu katta- og mannlífi.
Kattaást í Grindavík og Suðurnesjabæ
Þann 10. júní sl. var liðið eitt ár frá því sameinað sveitarfélag
Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs tók til starfa.
Þetta fyrsta starfsár sveitarfélagsins hefur verið viðburða-
ríkt og annasamt. Unnið hefur verið að því að formgera
sveitarfélagið, það hefur falið í sér að unnið hefur verið að
mjög mörgum stórum og minni verkefnum. Þá hefur verið
unnið að samræmingu margra hluta, þar sem mismunandi
hefðir og venjur voru hjá fyrri sveitarfélögum.
Á þessu fyrsta ári
hafa náðst margir
áfangar í því verk-
efni að móta nýtt
sveitarfélag. Einn
af stóru áföngunum
var þegar heiti
sveitarfélagsins,
Suðurnesjabær tók
gildi þann 1. janúar
2019 og í framhaldi
af því var unnið að hönnun
byggðamerkis, sem endaði
með því að full samstaða var
í bæjarstjórn í mars sl. þegar
b y g g ð a m e r k i
Suðurnesjabæjar
var samþykkt.
Hönnun þess var
unnin í samstarfi
við auglýsinga-
stofuna Hvíta
húsið. Það var
ánægjulegt og í
senn styrkleika-
merki hve bæjar-
stjórn var algerlega samstiga
við ákvörðun um heiti sveitar-
félagsins og byggðamerkis.
Byggðamerki Suðurnesja-
bæjar var staðfest samhljóða
í bæjarstjórn í mars 2019.
Merkið hefur fengið mjög
jákvæðar viðtökur meðal
íbúa sveitarfélagsins.
Fleiri merkir áfangar urðu í
starfsemi Suðurnesjabæjar á
fyrsta starfsárinu. Sem dæmi
um það má nefna að bæjar-
stjórn samþykkti fyrstu fjár-
hagsáætlun Suðurnesjabæjar
í desember sl., þá afgreiddi
bæjarstjórn ársreikning fyrir
árið 2018 í byrjun júní, en
sá ársreikningur náði fyrri
hluta ársins yfir rekstur
gömlu sveitarfélaganna, en
yfir rekstur Suðurnesjabæjar
frá 1. júlí 2018. Hvor tveggja
eru þetta merkir áfangar.
Hér er aðeins stiklað á stóru
um fyrsta starfsár Suður-
nesjabæjar, en margt fleira
væri þess virði að fjalla um
og verður það gert síðar. Það
má segja að sveitarfélagið
sem varð til fyrir ári síðan
hafi farið gegnum mikilvægt
þroskaskeið á sínu fyrsta
ári. Framundan eru margar
áskoranir sem unnið verður
úr á næstu vikum, mánuðum
og árum. Mótun nýs sveitar-
félags lýkur ekki á einu ári,
heldur er um langtíma verk-
efni að ræða. Hins vegar má
fullyrða að vel hafi gengið
hjá kjörnum fulltrúum og
starfsfólki sveitarfélagsins
að leysa fjölmörg verkefni á
þessu fyrsta ári.
Magnús Stefánsson
bæjarstjóri
(Pistillinn var upphaflega
birtur á vef bæjarins).
Suðurnesjabær í eitt ár
15UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM f immtudagur 4. júlí 2019 // 27. tbl. // 40. árg.