Víkurfréttir - 04.07.2019, Side 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Það er ekkert óeðlilegt að
kylfingar fái fugl og örn
en hvað er að fá kríu?
Þekking í þína þágu
Vilt þú starfa á kraftmiklum
og skemmtilegum vinnustað?
Skilyrði er að viðkomandi hafi einstaka þjónustulund, góða samskiptahæfileika,
sé hugmyndaríkur og árangursdrifinn.
Umsóknir sendist til ina@mss.is fyrir 5. ágúst næstkomandi.
Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum leitar að framúrskarandi starfsmanni
sem vill starfa með okkur í Samvinnu starfsendurhæfingardeild.
Starfssvið viðkomandi nær m.a. yfir
• ráðgjöf og stuðning við einstaklinga
í starfsendurhæfingu
• taka þátt í teymisvinnu sérfræðinga sem
koma að starfsendurhæfingunni
• gera og hafa umsjón með endurhæfingar-
áætlunum einstaklinga
• skipulagning og umsjón með námskeiða-
haldi og fræðslu
• þátttaka í ýmsum verkefnum
Menntunar- og hæfnikröfur
• háskólamenntun á sviði heilbrigðis-
eða félagsvísinda
• reynsla og þekking á sviði einstaklingsráðgjafar
og/eða starfsendurhæfingar
• þekking og reynsla af atvinnulífinu
• Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki
Mikil gróska hefur verið í starfi
Þróttar undanfarin ár og vöxtur
félagsins hraður að sögn Petru Ruth
Rúnarsdóttur, formanns Þróttar.
„Iðkendum og félagsmönnum hefur
fjölgað hratt, félagið er með ýmsa
starfsemi í gangi og með hærra starfs-
hlutfalli framkvæmdastjóra fáum við
meiri fagmennsku í starfið og getum
haldið betur utan um félagið. Einnig
hefur verkefnum fjölgað samhliða
íþróttagreinum sem stundaðar eru
hjá félaginu,“ segir Petra Rut.
„Sveitarfélagið hefur reynst okkur vel
í þessum vaxtaverkjum og styður vel
við bakið á okkur. Hér eru allir að róa
í sömu átt en núna stefnir í fjölgun
íbúa og þá reynum við eftir fremsta
megni að höfða til barnafjölskyldna
sem vilja setjast að í Vogum vegna
þess að hér er gott forvarnarstarf
unnið og öflugt íþróttafélag. Síðustu
árin hafa verið erfið, það hefur reynt
mikið á sjálfboðaliða innan félags-
ins og aðra sem starfa fyrir félagið.
Við höfum verið að berjast við mikla
vaxtaverki, höfum verið að vinna
hörðum höndum við að láta hlutina
ganga upp. Við þessar breytingar
getum við vandað betur til verka,
verið markvissari í okkar störfum,
sinnt félagsmönnum, iðkendum,
sjálfboðaliðum og þjálfurum betur í
þeirri vegferð sem við erum,“ sagði
Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri
Þróttar, sem var í 60% starfshlutfalli
og mun fara í fullt starf í sumar.
„Reynum eftir fremsta megni að
höfða til barnafjölskyldna í Vogum“
Framkvæmdastjóri í fullt starf hjá Þrótti Vogum
Sexhundruð
Sexhundruð eru félagsmennirnir
orðnir í Golfklúbbi Suðurnesja. Það
er gleðiefni enda er golf að öllum
öðrum íþróttum ólöstuðum, besta
íþrótt í heimi. Ég var svo heppinn
að kynnast henni þessari árið 1986.
Fékk bakteríuna um leið. Þótti stór-
skrítinn að láta fótbolta lönd og leið
til að elta lítinn hvítan bolta í Leir-
unni. Afi minn heitinn var duglegur
að spila með mér og skipti þá engu
þótt aldursmunurinn á okkur væri 43
ár. Ég á unglingsárum og hann rétt
um sextugt. Frábær leið til að brúa
kynslóðabilið. Í Leirunni áttum við
margar góðar stundir.
Nú er svo í pottinn búið að félagar
mínir í fótbaltanum eru einn af
öðrum að leggja leið sína á golfvöllinn.
Rétt rúmlega fimmtugir. Alltof seint
náttúrlega. En betra er seint en aldrei.
Ég hvet íbúa Suðurnesja til að feta í
fótspor þeirra. Við eigum frábæra
golfvelli í Leiru, Sandgerði, Grindavík
og Vogum. Átján holu golfhringur er
tíu kílómetra göngutúr sem maður
myndi aldrei nenna af stað í nema
til að elta lítinn hvítan bolta.
Góða skemmtun á golfvellinum
LOKAORÐ
Margeirs Vilhjálmssonar
„Sveitarfélagið hefur reynst okkur vel
í þessum vaxtaverkjum og styður vel
við bakið á okkur. Hér eru allir að róa í
sömu átt en núna stefnir í fjölgun íbúa
og þá reynum við eftir fremsta megni
að höfða til barnafjölskyldna sem vilja
setjast að í Vogum vegna þess að hér
er gott forvarnarstarf unnið og öflugt
íþróttafélag“.