Fréttablaðið - 17.08.2019, Page 35

Fréttablaðið - 17.08.2019, Page 35
FRAMKVÆMDASTJÓRI Ölgerðin leitar að öflugum leiðtoga ti l að stýra fjármála- og mannauðssviði samstæðunnar sem samanstendur af fasteignafélagi, heildversluninni Danól ásamt móðurfélagi. Viðkomandi þarf að búa yfir miklu frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögð- um ásamt leiðtogahæfni. Undir sviðið falla bókhald, f járreiður, upplýsingatækni, mannauðsmál og umbóta- og ferlamál. Starfið er bæði umfangsmikið og krefjandi og hentar einstaklingi sem býr yfir færni á sviði f jármálastjórnunar, upplýsingatækni og samskipta. Framkvæmdastjóri f jármála- og mannauðssviðs er hluti af framkvæmdastjórn, vinnur náið með forstjóra og framkvæmdastjórn að því að framfylgja stefnu og að ná rekstrarmarkmiðum félagsins. fjármála- og mannauðssviðs olgerdin.is Sótt er um starfið á ráðningasíðu Capacent og þar má einnig finna nánari upplýsingar um starfssvið og hæfniskröfur: www.capacent.is Nánari upplýsingar veita: Hilmar Garðar Hjaltason, hilmar.hjaltason@capacent.is Auður Bjarnadóttir , audur.bjarnadottir@capacent.is Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferi lskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2019. ÖLGERÐIN er stofnuð árið 1913, er í dag eitt stærsta fyrirtækið á sínu sviði og velti á síðasta ári um 25 millj- örðum króna. Hjá Ölgerðinni og dótturfyrirtækinu Danól starfa um 400 manns. ÖLGERÐIN framleiðir, flytur inn, dreifir og selur matvæli og drykkjarvörur af ýmsum toga. Danól selur mat- og sérvöru í fremstu röð og er skipt í þrjár einingar, mat- vara, snyrti- og sérvara auk stóreldhús og kaffikerfa. Stöðugt er leitað nýrra leiða til að efla starfsemina og ná fram meiri framleiðni með því að gera hlutina betur og fyrr en aðrir. Mikil áhersla er lögð á samfélagsábyrgð og hagkvæman rekstur. Þetta er gert til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar, neytendur, starfsfólk og eigendur. Veghönnun Capacent — leiðir til árangurs Vegagerðin er ríkisstofnun sem vinnur að öruggum og greiðum samgöngum í þágu samfélagsins. Hlutverk hennar er að þróa og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins að leiðarljósi. Meginmarkmið stofnunarinnar eru öruggar og greiðar samgöngur á sjó og landi, hagkvæm uppbygging og rekstur samgöngukerfisins í sátt við umhverfið, skilvirk og vel skipulögð starfsemi og ábyrgt, hæft og ánægt starfsfólk. Gildi Vegagerðarinnar eru Fagmennska-Öryggi- Framsýni. Upplýsingar og umsókn capacent.com/s/14199 Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólapróf í byggingarverkfræði eða byggingatæknifræði. Reynsla af sambærilegum verkefnum er kostur. Reynsla af verkefnastjórnun er kostur. Þekking og reynsla í notkun teikni- og hönnunarforrita. Þekking og reynsla í notkun Microstation og Inroads er kostur. Færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að taka þátt í teymisvinnu. · · · · · · · · · · · Umsóknarfrestur 2. september Starfssvið: Hönnun vega og þátttaka í uppbyggingu vegakerfis. Verkefnastjórn hönnunar og umferðaröryggisrýni. Umsjón og þátttaka í þróun veghönnunarkerfa Vegagerðarinnar. Þátttaka í rannsóknarverkefnum tengdum umferðarmannvirkjum. Önnur tilfallandi verkefni. Vegagerðin leitar að byggingarverkfræðingi eða byggingartæknifræðingi til starfa á hönnunardeild sem hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni allt frá frumstigum hönnunar til framkvæmda. ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 1 7 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 1 7 -0 8 -2 0 1 9 0 4 :4 7 F B 0 9 6 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 9 9 -C 9 3 8 2 3 9 9 -C 7 F C 2 3 9 9 -C 6 C 0 2 3 9 9 -C 5 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.