Fréttablaðið - 22.08.2019, Qupperneq 4
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti
kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á
póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Höskuldur var
alltaf mjög harður
í launakröfum.
Kirstín Flygenring,
fyrrverandi
stjórnarmaður í
Arion banka
JEEP® GRAND CHEROKEE
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
®
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
• 3.0L V6 DÍSEL
• 250HÖ / 570 NM TOG
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN
• LÆSING Í AFTURDRIFI (TRAILHAWK OG OVERLAND)
jeep.is
JEEP® GRAND CHEROKEE KOSTAR FRÁ 9.990.000 KR.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
VIÐSKIPTI Þáverandi fulltrúi Banka-
sýslu ríkisins í stjórn Arion banka
segist hafa „átt við ofurefli að etja“
þegar Höskuldur Ólafsson, fyrr-
verandi bankastjóri, hafi sumarið
2017 farið fram á sex mánuði í við-
bót í starfslokagreiðslu.
„Mér fannst það of vel í lagt,“
útskýrir Kirstín Þ. Flygenring, sem
var aðalmaður í stjórn bankans
2014 til 2018, en menn hafi „endi-
lega viljað halda“ í Höskuld þar
sem Monica Caneman, stjórnarfor-
maður til fjölda ára, var þá nýhætt
og útboð og skráning Arion stóð
fyrir dyrum. „Því samþykkti ég
þetta með semingi,“ segir Kirstín.
Greint var frá því í Markaðinum
í gær að fulltrúi Bankasýslunnar,
sem hélt þá utan um 13 prósenta
hlut í bankanum, hefði ekki gert
athugasemdir við þær breytingar
sem gerðar voru á ráðningarsamn-
ingi Höskuldar. Þær tengdust upp-
sagnarfresti og samningi um starfs-
lok og þýddu að bankinn þurfti að
bókfæra 150 milljóna launakostnað
þegar Höskuldur lét af störfum í
apríl á þessu ári. Voru breytingar á
ráðningarsamningnum samþykkt-
ar af öllum stjórnarmönnum.
Kirstín segir að þegar hún hafi
fyrst sest í stjórn bankans 2014 þá
hafi Höskuldur þegar verið með
starfslokasamning sem nam einum
og hálfum árslaunum. „Mér þótti
það ærið á þeim tíma enda viðtekið
að menn í slíkum stöðum fái eitt
ár í starfslokagreiðslur.“ Þá bendir
hún á að bankinn hafi verið búinn
að innleiða kaupaukakerfi.
„Höskuldur var alltaf mjög harð-
ur í launakröfum,“ bætir Kirstín
við, og segir hann jafnan hafa verið
dyggilega studdan af erlendum
stjórnarmönnum bankans. „Mér
fannst þessar launakröfur út úr
korti og afar slæmar fyrir orðspor
bankans.“
Kirstín vekur athygli á því að hún
hafi setið hjá við atkvæðagreiðslu í
stjórninni árið 2018 þegar Höskuld-
ur hafi viljað fá þrettán, eða jafnvel
sautján, prósenta launahækkun og
„starfslokagreiðslan tengist að sjálf-
sögðu laununum beint“. – hae
Fulltrúi Bankasýslunnar segist hafa „átt við ofurefli að etja“
1 Fulltrúi Bankasýslunnar: „Samþykkti þetta með sem
ingi“ Þáverandi fulltrúi Bankasýslu
ríkisins í stjórn Arion banka segist
hafa „átt við ofurefli að etja“.
2 Sýna örin eftir baráttuna við krabba mein á tísku
ljós myndum Kraftur, fé lag
fyrir ungt fólk sem greinst
hefur með krabba mein, stendur
fyrir ljós mynda s ýningu í Hörpu á
Menningar nótt.
3 Bandaríkjamenn fjárfesta í íslensku vatni fyrir 4,4
milljarða BlackRock, eitt stærsta
eignastýringarfyrirtæki Banda-
ríkjanna, mun fjármagna íslenska
drykkjarvöruframleiðandann
Icelandic Glacial.
4 Ofáætlun tekna bendi til minnkandi hlutdeildar Grein-
endur Arion banka telja að Sýn sé
áfram að tapa markaðshlutdeild.
FERÐAÞJÓNUSTA Norðurþing hefur
farið fram á það við hvalaskoðunar-
fyrirtækið Gentle Giants að fjarlægt
verði mannvirki sem fyrirtækið
nýtir við Hafnarstétt á Húsavík.
Ekki hafa fengist tilætluð leyfi að
mati sveitarfélagsins fyrir mann-
virkinu og er það því kallað óleyfis-
mannvirki.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Norðurþings sendi fyrirtækinu
Gentle Giants bréf þann 16. ágúst
þar sem þess er einfaldlega krafist
að fjarlægt verði það mannvirki sem
stendur utan lóðar fyrirtækisins
við Hafnarstétt 13. Mannvirkið er í
raun hlaðinn veggur sem umlykur
lóðina, steinveggur sem er utan
lóðarmarka.
Gaukur Hjartarson, skipulags-
og byggingarfulltrúi Norðurþings,
segir málið hafa hafist í ágúst í fyrra
þegar hann hafi orðið þess áskynja
að framkvæmdir væru hafnar við
þennan steinvegg utan lóðarmarka.
Var þá farið fram á verkstöðvun og
að veggurinn yrði fjarlægður.
„Sú ákvörðun sveitarfélagsins
var svo kærð til úrskurðarnefndar
umhver f is- og auðlindamála.
Úrskurðarnefndin kvað svo upp í
lok síðasta árs sveitarfélaginu í vil,“
segir Gaukur. „Þá fór sveitarfélagið
í það að reyna að koma á samkomu-
lagi við fyrirtækið en forsvarsmenn
fyrirtækisins hafa ekki viljað ganga
að því samkomulagi.“
Því eru skiptar skoðanir á mál-
inu og menn ekki á eitt sáttir um
lyktir mála. Ljóst er samkvæmt
fundargerðum skipulags- og fram-
kvæmdaráðs Norðurþings að nú
sé mál að linni og umleitanir um
samkomulag ekki í höfn. „Fyrir-
tækið hefur síðan haldið áfram að
framkvæma utan lóðarmarka eftir
að úrskurður var kveðinn upp,
umfram það sem áður var,“ bætir
Gaukur við.
Saga hvalaskoðunar á Húsavík er
nokkuð löng og hún er ein af undir-
stöðum ferðaþjónustu í bænum.
Að minnsta kosti fjögur fyrirtæki,
misstór að vanda, hafa starfað við
hvalaskoðun á svæðinu í gegnum
tíðina og er Gentle Giants eitt það
stærsta á landinu og sinnir tug-
þúsundum gesta ár hvert. Um það
bil níu skip eru í notkun hjá fyrir-
tækinu og eru svokallaði RIB-bátar,
hraðskreiðir opnir harðskeljabátar,
þeir vinsælustu innan flotans.
Stefán Guðmundsson, forstjóri
fyrirtækisins Gentle Giants, vildi
ekki veita viðtal vegna málsins
þegar Fréttablaðið náði tali af
honum. sveinn@frettabladid.is
Vilja láta taka niður steinvegg
hvalaskoðunarfyrirtækis
Norðurþing krefst þess að eitt stærsta hvalaskoðunarfyrirtæki landsins taki niður hlaðinn vegg sem
umlykur lóð þess við höfnina á Húsavík. Umræddur veggur sé ekki inni á lóð fyrirtækisins og ekki hafi
fengist leyfi hjá sveitarfélaginu. Málið kom upp í fyrra og hafa samningaumleitanir farið út um þúfur.
Hlaðni steinveggurinn sem um ræðir umlykur lóð hvalaskoðunarfyrirtækisins við Hafnarstétt á Húsavík.
Allar nýjustu fréttir og blað
dagsins eru fáanleg á
www.frettabladid.is
Fyrirtækið hefur
síðan haldið áfram
að framkvæma utan lóðar-
marka eftir að úrskurður
var kveðinn upp, umfram
það sem áður var.
Gaukur Hjartarson, skipulags- og
byggingarfulltrúi Norðurþings
2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
F
-F
D
D
C
2
3
9
F
-F
C
A
0
2
3
9
F
-F
B
6
4
2
3
9
F
-F
A
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K