Fréttablaðið - 22.08.2019, Side 6

Fréttablaðið - 22.08.2019, Side 6
UTANRÍKISMÁL Íslensk stjórnvöld hafa áhyggjur af því hversu fáir Íslendingar í Bretlandi hafa skilað inn umsóknum um svokallaðan „settled status“ til þess að tryggja dvöl sína þar í landi eftir að Bretar ganga út úr Evrópusambandinu. Þetta var haft eftir Stefáni Hauki Jóhannessyni, sendiherra Íslands í Lundúnum, á vef utanríkisráðu- neytisins í gær. Þar segir að einungis um 200 umsóknir hafi borist til þessa. „Við mælum eindregið með því að fólk sæki um sem allra fyrst þar sem óvissa ríkir enn um útfærslu á útgöngu Bretlands úr Evrópu- sambandinu. Þó að samningar hafi náðst við bresk stjórnvöld um rétt- indi borgara eftir Brexit þá þurfa allir sem hér dvelja og hyggjast gera svo áfram að hafa réttindi til búsetu, þ.e. settled status eða pre- settled status,“ var haft eftir sendi- herra aukinheldur. Bretland gengur úr Evrópusam- bandinu þann 31. október næst- komandi, að minnsta kosti ef Áhyggjur af Íslendingum í Bretlandi sem ekki hafa sótt um DANMÖRK Stjórnmálamenn í Dan- mörku lýstu margir undrun sinni í gær eftir að Donald Trump Banda- ríkjaforseti af lýsti fyrirhugaðri heimsókn sinni til landsins. Mar- grét 2. Danadrottning hafði boðið Trump í heimsókn þann 2. septem- ber næstkomandi en í fyrrinótt til- kynnti forsetinn um það á Twitter að ekkert yrði af heimsókninni. „Danmörk er afar sérstakt land og Danir frábært fólk en vegna ummæla Mette Frederiksen for- sætisráðherra, um að hún hefði ekki áhuga á að ræða kaupin á Græn- landi, hef ég frestað fundi okkar sem átti að fara fram eftir tvær vikur. Forsætisráðherrann hefur sparað mikinn kostnað og vinnu fyrir bæði Bandaríkin og Dan- mörku með hreinskilni sinni. Ég þakka henni fyrir það og hlakka til að funda í framtíðinni,“ tísti Trump. Grænlandskaupin sem hann nefnir eru hugmynd forsetans um að Bandaríkin myndu kaupa Græn- land af Dönum. Þessu hefur Frede- riksen hafnað og Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlendinga, einnig. Sá síðarnefndi lagði til í viðtali við Politiken að Grænlend- ingar ættu kannski frekar að kaupa Bandaríkin. Frederiksen boðaði til blaða- mannafundar í Eigtveds Pakhus í Kaupmannahöfn í gær þar sem hún sagði það bæði svekkjandi og óvænt að Trump hefði hætt við. „Líkt og margir aðrir hlakkaði ég til heim- sóknarinnar og við erum búin að leggja mikið í undirbúning,“ sagði Frederiksen. Bætti við að Bandarík- in væru einn mikilvægasti banda- maður Dana og ákvörðunin breytti engu um vilja Dana til samstarfs. „Við höfum rætt um sölu Græn- lands og þessu hefur Kim Kielsen hafnað. Ég er sammála honum,“ sagði Frederiksen enn fremur. Aðspurð um áhrif ákvörðunarinnar á þátttöku danska hersins í aðgerð- um við Hormuz-sund nærri Íran sagðist hún ekki halda þau nokkur. Að sögn Mortens Østergaard, for- manns flokksins Radikale Venstre, sem ver stjórn Frederiksen van- trausti, sýnir ákvörðun Trumps að Danir ættu frekar að líta á Evrópu- sambandsríki sem sína nánustu bandamenn. „Þessi maður er óút- reiknanlegur. Raunveruleikinn er farinn fram úr ímyndunaraflinu,“ sagði hann. Søren Espersen, utanríkismála- talsmaður stjórnarandstöðuflokks- ins Dansk Folkeparti, var á sama máli. „Þetta er afar, afar sláandi. Sérstaklega þegar við erum að tala um svona nána bandamenn og góða vini.“ Og Kristian Jensen, þingmaður Venstre og utanríkisráðherra frá 2015 til 2016, var sammála. „Algjör glundroði eftir að Donald Trump af lýsti heimsókninni til Græn- lands. Tækifæri til að styrkja sam- band bandamanna er orðið að utanríkismálakrísu,“ tísti þing- maðurinn. Samkvæmt greiningu Steffens Gram, utanríkismálablaðamanns danska ríkisútvarpsins DR, má draga þá ályktun af ákvörðun Bandaríkjaforsetans að utanríkis- málastefna ríkisstjórnar hans stýr- ist af geðþótta Trumps. „Þetta snýst um tilfinningaleg viðbrögð. Er hann úr jafnvægi núna, móðgaðist hann? Það felst áhætta í því þegar utan- ríkismálastefna stórveldis er rekin með þessum hætti,“ sagði Gram og velti upp spurningunni hvort það væri skynsamlegt fyrir Dani að reiða sig á Bandaríkin. thorgnyr@frettabladid.is Danir pirraðir eftir að Trump hætti við Danskir stjórnmálamenn lýsa óánægju sinni með að Bandaríkjaforseti hafi hætt við heimsókn sína því að forsætisráðherra Dana vill ekki ræða sölu á Grænlandi. Forsætisráðherrann sagði ákvörðunina svekkjandi og óvænta. Mette Frederiksen, danski forsætisráðherrann, sagðist svekkt yfir ákvörðun Trumps forseta. NORDICPHOTOS/AFP Undirbúningurinn í vaskinn hjá Dönum Danska ríkisútvarpið tók saman þær ýmsu ráðstafanir sem þurfti að gera vegna heimsókn- arinnar. Ljóst er að töluverð vinna var þegar farin af stað við undirbúninginn. Hún er nú til einskis. Farið var að undirbúa lend- ingu flugvélar Bandaríkjaforseta á Kastrup og lögreglan hafði þegar kallað til lið hvaðanæva af landinu til þess að tryggja öryggi leiðtogans. Þá átti herinn einnig að leggja til liðsafla til öryggisgæslu sem og þyrlur. Sú vinna var hins vegar ekki nema á undirbúningsstigi og því styttra komin en á Kastrup og hjá dönsku lögreglunni. Íslendingar ættu að drífa sig í að sækja um. NORDICPHOTOS/AFP Miðflokkurinn stendur fyrir opnum fundi um orkupakka 3 Fundurinn verður haldinn í Duus húsum Reykjanesbæ miðvikudaginn 21. ágúst kl. 20:00 Erindi flytja: Fyrirkomulagið er pallborðsumræður og leyfðar verða spurningar úr sal. Bjóðum alla hjartanlega velkomna Stjórn Miðflokksfélags Suðurkjördæmis Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Frosti Sigurjónsson Ingibjörg Sverrissdóttir Styrmir Gunnarsson Ögmundur Jónasson Fundurinn verður haldinn í norður al Hót l Selfo s fimmt i 2.ágúst kl. 20:0 . marka má endurtekin loforð Boris Johnson forsætisráðherra um að útgöngudegi verði ekki frestað eins og áður hefur verið gert þegar ríkis- stjórn Theresu May tókst ekki að ná samningi sínum um útgöngu í gegnum þingið. Skilafrestur fyrir fyrrnefndar umsóknir er til ársloka 2020. Sagði Stefán Haukur þó að Íslendingar ættu að sækja um sem fyrst því farið er handvirkt yfir umsóknir og afgreiðslutími gæti lengst þegar nær dregur skilafresti. – þea Við auglýsum eftir STYRKTAR UMSÓKNUM Umsóknarfrestur er til 7. sept. 2019 www.kronan.is Við veitum styrki til verkefna sem tengjast lýðheilsu barna og/eða hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu samfélagsins. Ert þú með hugmynd? Sendu inn umsókn á Kronan.is/styrktarumsokn 2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -1 1 9 C 2 3 A 0 -1 0 6 0 2 3 A 0 -0 F 2 4 2 3 A 0 -0 D E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.