Fréttablaðið - 22.08.2019, Page 22

Fréttablaðið - 22.08.2019, Page 22
Japan er þekkt fyrir hreinlæti og þar er lögð mikil áhersla á að fólk, sérstaklega ungar konur, sé alltaf snyrtilegt og vel- lyktandi. Það kemur því ekki á óvart að snyrtivöruiðnaðurinn í Japan sé mjög stór, en samkvæmt Euromonitor International eyða Japanir meira en nokkur önnur þjóð í snyrtivörur miðað við íbúa- fjölda. En samkvæmt umfjöllun á vefsíðu The Business of Fashion er líka mikill vöxtur í sölu á not- uðum förðunarvörum í Japan, sem skýtur skökku við í landi hrein- lætis, af því að notaður farði er oft mengaður af bakteríum. Notaðar snyrtivörur seljast vel í Japan Það er vöxtur í sölu á notuðum snyrtivörum í Japan. Þeim getur fylgt óþrifnaður, en margir ungir Japanir eru tilbúnir að sætta sig við það til að spara pening og fá aðgang að fínustu merkjunum. Japan er þekkt fyrir hreinlæti og það er sérstaklega mikill þrýstingur á ungar konur að vera snyrtilegar og lykta vel. Japanir eyða líka meiri peningum en nokkur önnur þjóð í snyrtivörur miðað við íbúafjölda. NORDICPHOTOS/GETTY Breytt menning Það selst mikið af alls kyns not- uðum vörum í Japan og sala þeirra er að aukast. Það gilda aðrar reglur um förðunarvörur þegar kemur að hreinlæti en flest annað, en eftirspurnin eftir merkjavörum er gríðarleg á sama tíma og ungir Japanir hafa almennt ekki mikið á milli handanna. Þetta unga fólk er að skapa vöxtinn í sölu á notuðum snyrtivörum. Þetta fyrirbrigði gefur ágætis innsýn inn í menningu Japana, sem eru í senn hrifnir af fínustu merkjunum og sífellt sparsamari. Margir Japanir eru stoltir af því að kaupa, nota og eiga ekki mikið og finnst það þægilegt. Á sama tíma eyðir þetta fólk peningunum sínum í gæði sem þeim finnst það skipta máli. Svo skemmir ekki fyrir að notaðar vörur eru umhverfisvænni. Menningin í Japan er líka að breytast, það er aukin áhersla á að deila hlutum og minni áhersla á öfgakennt hrein- læti. Japanir eru heldur ekki einir um að kaupa notaðar snyrtivörur. Þetta er líka stundað í Banda- ríkjunum og Litháen, á Reddit og í sérstökum snjallforritum sem eru notuð til að selja notaðar vörur. Tilgangurinn helgar meðalið Það getur verið mjög sóðalegt að deila farða, því bakteríur geta tekið sér bólfestu í notuðum vörum. En sumir ungir Japanir eru tilbúnir að horfa fram hjá því til að fá ódýrt aðgengi að dýrri merkjavöru. Kaupendur notaðra snyrtivara vanda líka kaupin auð- vitað vel og skoða hversu oft varan hefur verið notuð, hvenær hún á að renna út og annað slíkt. Seljendur eru líka meðvitaðir um kröfur kaupenda og það ríkir mikið traust og tillitssemi milli kaupenda og seljenda. Þar sem þessar vörur eru seldar eru líka yfirleitt reglur um að þeim sé lýst vel og þær séu ekki útrunnar. Sumir sjá notaðan farða bara sem tækifæri til að prófa dýrar snyrtivörur frá þekktum merkjum, því slíkar vörur fara sjaldan á útsölu en eru vinsæl stöðutákn. Ef þeim líkar varan fara þau svo og kaupa hana nýja. Aðrir vilja nota notaðar snyrtivörur sem leikmuni fyrir myndir sem þau birta á sam- félagsmiðlum. En það eru margir einfaldlega að reyna að spara. Ungt fólk í Japan er almennt ekki vel efnað, það er erfitt að finna stöðuga og vel borgaða vinnu og það sér ekki fram á bjartari tíma. Þannig að þetta fólk hefur ekki efni á dýrum snyrtivörum, en vill þær samt, því vörurnar gleðja. Þau vilja reyna að njóta lífsins en um leið draga úr óþarfa eyðslu, svo þau geti fjárfest í upplifunum. Þess vegna freistar það margra að ná sér í ódýrar snyrtivörur. Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Það geta verið skaðlegar bakteríur í notuðum snyrtivörum en sumir ungir Japanir eru tilbúnir að sætta sig við það til að fá ódýrar merkjavörur. Í dag eiga margir ungir Japanir mjög erfitt með að finna stöðuga og vel borgaða vinnu og þurfa því að spara þegar kemur að snyrtivörum. Eftirspurnin eftir merkjavörum er gríðarleg á sama tíma og ungir Japanir hafa almennt ekki mikið á milli handanna. Ný buxnasending frá Str. 36-48 Litir: svart, dökkbláttog galla Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Kr. 15.900. - sídd 78 cm Kr. 12.900.-Kr. 15.900.- Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -2 F 3 C 2 3 A 0 -2 E 0 0 2 3 A 0 -2 C C 4 2 3 A 0 -2 B 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.