Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 22
Japan er þekkt fyrir hreinlæti og þar er lögð mikil áhersla á að fólk, sérstaklega ungar
konur, sé alltaf snyrtilegt og vel-
lyktandi. Það kemur því ekki á
óvart að snyrtivöruiðnaðurinn í
Japan sé mjög stór, en samkvæmt
Euromonitor International eyða
Japanir meira en nokkur önnur
þjóð í snyrtivörur miðað við íbúa-
fjölda. En samkvæmt umfjöllun á
vefsíðu The Business of Fashion er
líka mikill vöxtur í sölu á not-
uðum förðunarvörum í Japan, sem
skýtur skökku við í landi hrein-
lætis, af því að notaður farði er oft
mengaður af bakteríum.
Notaðar snyrtivörur seljast vel í Japan
Það er vöxtur í sölu á notuðum snyrtivörum í Japan. Þeim getur fylgt óþrifnaður, en margir ungir
Japanir eru tilbúnir að sætta sig við það til að spara pening og fá aðgang að fínustu merkjunum.
Japan er þekkt fyrir hreinlæti og það er sérstaklega mikill þrýstingur á ungar konur að vera snyrtilegar og lykta vel.
Japanir eyða líka meiri peningum en nokkur önnur þjóð í snyrtivörur miðað við íbúafjölda. NORDICPHOTOS/GETTY
Breytt menning
Það selst mikið af alls kyns not-
uðum vörum í Japan og sala þeirra
er að aukast. Það gilda aðrar reglur
um förðunarvörur þegar kemur
að hreinlæti en flest annað, en
eftirspurnin eftir merkjavörum
er gríðarleg á sama tíma og ungir
Japanir hafa almennt ekki mikið á
milli handanna. Þetta unga fólk er
að skapa vöxtinn í sölu á notuðum
snyrtivörum.
Þetta fyrirbrigði gefur ágætis
innsýn inn í menningu Japana,
sem eru í senn hrifnir af fínustu
merkjunum og sífellt sparsamari.
Margir Japanir eru stoltir af því
að kaupa, nota og eiga ekki mikið
og finnst það þægilegt. Á sama
tíma eyðir þetta fólk peningunum
sínum í gæði sem þeim finnst
það skipta máli. Svo skemmir
ekki fyrir að notaðar vörur eru
umhverfisvænni. Menningin í
Japan er líka að breytast, það er
aukin áhersla á að deila hlutum og
minni áhersla á öfgakennt hrein-
læti.
Japanir eru heldur ekki einir
um að kaupa notaðar snyrtivörur.
Þetta er líka stundað í Banda-
ríkjunum og Litháen, á Reddit og í
sérstökum snjallforritum sem eru
notuð til að selja notaðar vörur.
Tilgangurinn helgar meðalið
Það getur verið mjög sóðalegt að
deila farða, því bakteríur geta
tekið sér bólfestu í notuðum
vörum. En sumir ungir Japanir
eru tilbúnir að horfa fram hjá því
til að fá ódýrt aðgengi að dýrri
merkjavöru. Kaupendur notaðra
snyrtivara vanda líka kaupin auð-
vitað vel og skoða hversu oft varan
hefur verið notuð, hvenær hún á að
renna út og annað slíkt. Seljendur
eru líka meðvitaðir um kröfur
kaupenda og það ríkir mikið traust
og tillitssemi milli kaupenda og
seljenda. Þar sem þessar vörur eru
seldar eru líka yfirleitt reglur um
að þeim sé lýst vel og þær séu ekki
útrunnar.
Sumir sjá notaðan farða bara
sem tækifæri til að prófa dýrar
snyrtivörur frá þekktum merkjum,
því slíkar vörur fara sjaldan á
útsölu en eru vinsæl stöðutákn. Ef
þeim líkar varan fara þau svo og
kaupa hana nýja. Aðrir vilja nota
notaðar snyrtivörur sem leikmuni
fyrir myndir sem þau birta á sam-
félagsmiðlum.
En það eru margir einfaldlega
að reyna að spara. Ungt fólk í
Japan er almennt ekki vel efnað,
það er erfitt að finna stöðuga og
vel borgaða vinnu og það sér ekki
fram á bjartari tíma. Þannig að
þetta fólk hefur ekki efni á dýrum
snyrtivörum, en vill þær samt, því
vörurnar gleðja. Þau vilja reyna að
njóta lífsins en um leið draga úr
óþarfa eyðslu, svo þau geti fjárfest
í upplifunum. Þess vegna freistar
það margra að ná sér í ódýrar
snyrtivörur.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Það geta verið skaðlegar bakteríur í notuðum snyrtivörum en sumir ungir
Japanir eru tilbúnir að sætta sig við það til að fá ódýrar merkjavörur.
Í dag eiga margir ungir Japanir mjög erfitt með að finna stöðuga og vel
borgaða vinnu og þurfa því að spara þegar kemur að snyrtivörum.
Eftirspurnin eftir
merkjavörum er
gríðarleg á sama tíma og
ungir Japanir hafa
almennt ekki mikið á
milli handanna.
Ný buxnasending
frá
Str. 36-48
Litir: svart, dökkbláttog galla
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Kr. 15.900.
- sídd 78 cm
Kr. 12.900.-Kr. 15.900.-
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
2
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
A
0
-2
F
3
C
2
3
A
0
-2
E
0
0
2
3
A
0
-2
C
C
4
2
3
A
0
-2
B
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K