Fréttablaðið - 22.08.2019, Síða 26

Fréttablaðið - 22.08.2019, Síða 26
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Nýjungar Heimkaup.is slá í gegn hjá neytendum Öll fjölskyldan getur notað sömu körfuna Viðskiptavinir Heimkaup.is geta deilt körfu með öllum í fjölskyld- unni. Jóhann segir það einfalda matarinnkaupin til muna þegar hver og einn getur bætt í körfuna þegar eitthvað klárast. „Þetta er hinn nýi innkaupalisti fjölskyld- unnar, fólk er alltaf með símann við höndina og sá fjölskyldumeð- limur sem sér að eitthvað vantar smellir því einfaldlega í körfuna á nokkrum sekúndum. Þá er allt á sínum stað þegar gengið er frá kaupum.“ Síðasti söludagur alltaf sjáanlegur á síðunni Viðskiptavinir Heimkaup.is sjá síðasta söludag á öllum matvörum, rétt eins og þegar valið er úr hillum í hefðbundinni verslun. Þeir geta valið þyngd á t.d. kjötvörum og fengið nákvæmlega það magn sem þá vantar. Þetta er mjög mikilvægt þegar verið er að kaupa vörur eins og lambalæri eða súpukjöt þar sem þyngdin getur hlaupið á heilu og hálfu kílóunum. „Við erum líka mjög ströng varðandi afhendingu á grænmeti og ávöxtum og send- um aðeins ferskt og fallegt. Ávextir sem stand ast ekki ströngustu kröfur fara í kæli í þjónustuverinu og fást þar gefins.“ Minni matarsóun – afsláttur af vörum sem nálgast síðasta söludag Hvað vöruverð varðar segir Jóhann að Heimkaup.is keppi við hina stórmarkaðina og stefni að því að vera alltaf ódýrastir á netinu. „Það er ömurlegt að henda mat,“ segir hann. „Vörur sem nálgast síðasta söludag fara sjálfkrafa á afslátt, allt að 50%. Alla daga mánaðarins er hægt að fá ferskvörur með afslætti og í kringum 20. hvers mánaðar fer töluvert af þurrvörum á afslátt þar sem síðasti söludagur þeirra er um mánaðamót. Vörur sem renna út hjá okkur eru settar fram í þjón- ustuverið og þeir sem eiga leið hjá geta gripið með sér fríar matvörur. Engin matarsóun!“ Fjölskyldan getur sparað sér margar klukkustundir á mánuði „Tímasparnaður hleypur á mörgum klukkustundum á mán- uði,“ segir Jóhann. „Þegar þú hefur pantað einu sinni á Heimkaup.is tekur næsta skipti enga stund, þér er strax boðið að panta það sama og síðast, en ætli við séum ekki flest þannig að við notum sömu matvör- urnar aftur og aftur á heimilinu.“ Jóhann hvetur fólk hins vegar til að kynna sér úrvalið. „Við erum með mikið af vörum sem engir aðrir bjóða þar sem við flytjum beint inn frá erlendum birgjum og erum því með mikið af nýjungum.“ Frí heimsending heim eða í Orkuna „Ég held ég geti fullyrt að þeir sem prófa að kaupa í matinn á netinu halda því áfram, þægindin eru svo mikil. Þú getur lokið við helgarinnkaupin áður en þú ferð úr vinnunni og við komum samdægurs innan tveggja tíma. Einnig getur fólk valið að fá vör- urnar afhentar í box á Orkunni við Dalveg eða við Kringluna. Fólk rennir þá við á leiðinni heim úr vinnu – það tekur 1-2 mínútur að stoppa og ná í pokana sína. Þú sérð tímasparnaðinn í því.“ Heimkaup.is sendir einnig út á landsbyggðina Frá upphafi hefur Heimkaup. is lagt mikla áherslu á að þjóna öllu landinu á sömu kjörum. Heim- sending er frí ef pantað er fyrir 5.900 kr. eða meira og gildir þá einu hvort þú býrð í Kópavogi eða á Egilsstöðum. Eitt gildir fyrir alla. „Við getum eðli málsins samkvæmt þó ekki sent kæli- eða frystivöru út á landsbyggðina, en allar aðrar matvörur, ekkert mál.“ Umhverfisvænn kostur Það er umhverfisvænna þegar einn bílstjóri keyrir matvörur heim til 20 fjölskyldna í einum rúnti. Þau sem eru í bíllausum lífsstíl og eldri borgarar eru mjög dugleg að nýta þjónustuna að sögn Jóhanns. „Það er gríðarlegur vöxtur í netverslun á matvöru. Þeir sem prófa að kaupa mat á netinu fara aldrei til baka!“ Framhald af forsíðu ➛ Þú sérð síðasta söludag vörunnar á síðunni. Ein karfa fyrir alla fjölskylduna. Sá fjölskyldumeðlimur sem uppgötvar að eitthvað vantar smellir því einfaldlega í körfuna á nokkrum sekúndum. Þeir sem prófa að kaupa mat á netinu fara aldrei til baka! Vörur sem nálgast síðasta söludag fara sjálfkrafa á afslátt, allt að 50%. Fólk getur valið að fá vörurnar af- hentar í box hjá Orkunni við Dalveg eða við Kringluna. Við komum sam- dægurs , innan tveggja tíma 2 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RNETVERSLUN 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -1 6 8 C 2 3 A 0 -1 5 5 0 2 3 A 0 -1 4 1 4 2 3 A 0 -1 2 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.