Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 22.08.2019, Blaðsíða 27
 Vöruúrval okkar gerir okkur kleift að koma til móts við eftirspurn viðskiptavina okkar, burtséð frá því hvert tilefnið er. Ásta María Karlsdóttir Það getur verið hægara sagt en gert að skreppa frá í amstri hversdagsins. Því er kjörið fyrir önnum kafið fólk að virða fyrir sér úrvalið í net- verslun Pennans. Verslunin er einstaklega aðgengileg og sparar notendum bæði tíma og fyrir- höfn. „Netverslun Pennans er með einstaklega breitt vöruúrval, allt frá smárri rekstrarvöru á borð við bréfaklemmur og strokleður, yfir í eitt stærsta úrval landsins af íslenskum og erlendum bókum fyrir alla aldurshópa auk heild- stæðra skrifstofulausna, húsgagna og fallegrar hönnunarvöru,“ segir Ásta María Karlsdóttir, sölustjóri fyrirtækjasviðs Pennans. Breytilegt eftir árstíðum Ásta segir kauphegðun viðskipta- vina breytast samhliða tíma árs. „Vöruflokkar okkar eru misvin- sælir eftir árstímum,“ segir Ásta. „Til dæmis eru skrifstofuvörur og -húsgögn vinsælli í ársbyrjun og við skólasetningar, á meðan sala á gjafavöru eykst gjarnan um fermingar, við útskriftir og í brúðkaupsvertíð sumarsins og svo eru bækurnar auðvitað sívinsælar um jólin,“ segir Ásta. Hún segir Pennann Eymundsson vel í stakk búinn til þess að sinna þörfum við- skiptavina óháð tilefni. „Vöruúrval okkar gerir okkur kleift að koma til móts við eftirspurn viðskipta- vina okkar, burtséð frá því hvert tilefnið er,“ segir Ásta. Spennandi nýjungar Ásta segir mikið lagt upp úr því að bjóða upp á nýjar og vand- aðar vörur í takt við síbreytilegan heim. „Við erum alltaf að leita að nýjum og spennandi vörum fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Ásta. „Nýlega bættust „Skittle Bottle“, umhverfisvænu hita- og kælibrúsarnir frá Lund London, við úrvalið okkar. Þeir hafa verið mjög vinsælir,“ segir hún. Þá séu þau einnig nýfarin að bjóða upp á fallega og handhæga ferðahátalara frá Gingko. „Nýju, nettu og stíl- hreinu Bluetooth-ferðahátalar- arnir frá Gingko eru nú fáanlegir hjá okkur,“ segir Ásta. Aðrar nýjungar sem Ásta nefnir eru gæðavörur frá Hugo Boss. „Það allra nýjasta hjá okkur eru minnis- bækur, ráðstefnumöppur og pennar frá Hugo Boss,“ segir Ásta. Hægt er að virða fyrir sér úrvalið og festa kaup á vörunum í net- verslun Pennans „Þetta er vönduð og falleg vara sem að sjálfsögðu er hægt er að panta í vefverslun okkar,“ segir hún. Sérsniðin þjónusta að þörfum viðskiptavina Viðskiptavinirnir eru í fyrirrúmi að sögn Ástu Maríu sem segir alla nálgun við þá miðast út frá þægindum. „Leitin á vefnum gerir þér kleift að finna allt sem þig langar með því að slá inn upphafs- stafina í vöruheiti, lýsingu, vöru- númeri eða öðru sem þér dettur í hug,“ segir hún. „Hægt er að ganga frá kaupum á öllum vörum sem Penninn Eymundsson og Penninn Húsgögn hafa upp á að bjóða á einum og sama vefnum. Viðskipta- vinir geta ýmist sótt pantanirnar í þá verslun sem hentar þeim best eða fengið pakkann sendan heim að dyrum,“ segir Ásta. Þá henti þjónustan bæði einstaklingum og fyrirtækjum. „Þetta eru fyrirtæki jafnt sem einstaklingar að nýta sér,“ bætir Ásta við. Fljótlegt og skilvirkt Fyrirtæki sem nýta sér vefverslun Pennans geta á auðveldan hátt haldið utan um pöntunarsögu sína. „Þannig er til dæmis einfalt að endurtaka síðustu kaup ef sá sem sér venjulega um að panta er frá vinnu og óvissa ríkir um hvers konar skrifstofugögn eru jafnan keypt,“ segir Ásta. Allar upplýsing- ar séu innan handar. „Fyrirtækin sjá svo kjör sín á öllum vörum og einfalt er að leita í vefversluninni eftir vörulýsingum og finna þann- ig hvað hentar hverjum og einum best.“ Sívaxandi vettvangur Ásta María segir þau sjá fram á gríðarlegan vöxt á næstu árum, sérstaklega þar sem tilfærsla á verslun frá hefðbundnum búðum, yfir í stafrænar lausnir, hefur verið að vaxa í stökkum á heimsvísu. „Þá skiptir ekki máli hvort litið er til Bandaríkjanna, Norður- landa eða Evrópu,“ segir Ásta. Hún segir að greina megi verulega aukningu í netverslun í Banda- ríkjunum á síðastliðnum áratug. „Bara í Bandaríkjunum hefur netsala vaxið úr 5,1% af heildar- viðskiptum yfir í 14,3% á áratug á sama tíma og vöxtur verslunar hefur verið að meðaltali um 3,4% á ári. Netverslun hefur hins vegar aukist að umfangi um 15% á ári á síðustu tíu árum,“ segir Ásta. Vörurnar frá Vitra sívinsælar Karólína Porter, verslunarstjóri húsgagnaverslunar Pennans, segir vissar vörur alltaf njóta vinsælda. Hún nefnir sérstaklega vörurnar frá Vitra og segir húsgögn og gjafa- vörur frá þeim hafa verið afar vin- sælar um árabil. „Einna vinsælast í vefversluninni eru klassísku hönnunarvörurnar frá Vitra,“ segir Karólína. Hún segir vörurnar frá Vitra henta við hvaða tilefni sem er. „Við erum með allt frá lítilli gjafavöru og upp í stærri húsgögn eins og Lounge Chair og Eames eldhús- stólana,“ segir hún. Þá segir hún að hinn sígildi Eames House Bird og Hang it all snagarnir njóti stöðugra vinsælda, enda einstaklega falleg og vönduð vara með mikið nota- gildi, nú fáanleg í mörgum litum, þar á meðal svörtum, og úr eik. Þá vekur Karólína sérstaka athygli á því að Eames House Bird, fuglinn fagri, er á tilboði út ágúst. Hagstæð kjör og tilboð Karólína segir enn fremur eitt helsta markmið hjá Pennanum Húsgögn vera að bjóða upp á sam- keppnishæf verð á öllum vörum frá Vitra. Hún segir ánægjulegt að geta gert viðskiptavinum sem eiga erfitt með að komast frá kleift að festa kaup á þessum vönduðu hönnunarvörum. „Það er mjög gaman að geta boðið slíka gæða- vöru fyrir fólk sem jafnvel kemst ekki í verslun okkar að Skeifunni 10,“ segir hún. Karólína nefnir að salan sé mjög þétt og jöfn yfir árið enda bæði fyrirtæki og einstaklingar sem versla í netverslun. Hún mælir með því að fólk fylgist vel með því sem er um að vera í netversluninni. „Vert er að fylgjast með mánaðar- tilboðum okkar á heimasíðunni en þar er að finna ný tilboð í hverjum mánuði á húsgögnum og gjafavöru í hæsta gæðaflokki,“ útskýrir Kar- ólína. Þá bætir hún við að slagorð húsgagnadeildar Pennans sé ein- faldlega „Farðu vel með þig“. Sjá nánar á www.penninn.is. Notendavæn netverslun Pennans Eymundsson Það er líf og fjör í Pennanum Eymundsson allt árið um kring. Hvort sem það er skólasetningin á haustin, aðdragandi jólanna, útskriftirnar á vorin, brúð- kaupin á sumrin eða öll afmælin, þá er alltaf hægt að stóla á Pennann. Karólína Porter og Ásta María Karlsdóttir segja bæði einstaklinga og fyrirtæki nýta sér netverslun Pennans. KYNNINGARBLAÐ 3 F I M MT U DAG U R 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 NETVERSLUN 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 0 -0 7 B C 2 3 A 0 -0 6 8 0 2 3 A 0 -0 5 4 4 2 3 A 0 -0 4 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.