Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.08.2019, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 22.08.2019, Qupperneq 28
Pósturinn er að gefa töluvert í í þjónustu við íslenskar net- verslanir og við- skiptavini þeirra. Fyrir rekstrarað- ila netverslana hér á landi hefur Pósturinn hann- að einfaldar veflausnir sem sniðnar eru að þörfum þeirra. Póststoð er skráningarkerfi fyrir fyrirtæki sem auð-veldar skráningu, merkingu og umsýslu sendinga. „Á síðustu mánuðum hefur Pósturinn hannað smáforrit sem beintengir net- verslanir við Póststoðina í gegnum Shopify-kerfið. Með þessari lausn fara allar pantanir úr netverslun beint í Póststoðina, engin milli- skref, heldur beint inn í dreifikerfi Póstsins og til neytenda,“ segir Elvar Bjarki Helgason, forstöðu- maður söludeildar hjá Póstinum. „Netverslunin getur þá stjórnað því og sérsniðið hvaða þjónusta kemur fram á vefsíðu söluaðila þegar lokið er við pöntun. Sama lausn fyrir netverslanir sem notast við WooCommerce-kerfið er væntanleg von bráðar og fyrir stærri netverslanir sem notast ekki við stöðluð netverslanakerfi eins og Shopify eða WooCommerce bjóðum við upp sérstaka vefþjón- ustugátt,“ bætir Elvar Bjarki við og heldur áfram: „Sá möguleiki býður rekstraraðilum netverslana að forrita á móti okkar þjónustu, hanna og birta eftir sínu höfði þá þjónustu sem hann vill bjóða upp á. Þegar kemur að síðasta leggnum eða svokallaðri „last mile“ þá skipta afhendingarvalkostir miklu máli. Við hvetjum rekstraraðila íslenskra netverslana til að hafa samband við söluráðgjafa okkar í síma 580 1000 fyrir frekari kynningu og upp- lýsingar,“ segir Elvar Bjarki. Póstbox opin alla daga, allt árið „Við hjá Póstinum erum sífellt að leitast við að mæta auknum kröfum viðskiptavina þegar kemur að afhendingu sendinga. Minn Póstur er þitt eigið svæði á vefnum og í appinu þar sem þú velur það þjónustusnið og afhendingarmáta sem hentar þér best. Þú einfaldlega skráir þig þig á minnpostur.is og leyfir okkur að sjá um allt fyrir þig,“ segir Sigmar Sigfússon, stafrænn sérfræðingur hjá Póstinum. „Markmið okkar er að koma með lausnir sem auðvelda viðskipta- vinum lífið, hvort sem um er ræða sendendur eða móttakendur. Eins og staðan er í dag geta viðskipta- vinir valið um þrjár mismunandi leiðir til að fá sendingar afhentar, hægt er að fá afhent á pósthúsi að eigin vali, fá sendingu heim að dyrum eða fá sendingu í Póstbox,“ upplýsir Sigmar. „Póstbox Póstsins eru mjög spennandi afhendingarleið en um er að ræða sjálfsafgreiðslukassa sem eru staðsettir á átta stöðum á höfuðborgarsvæðinu þar sem við- skiptavinir geta nálgast sending- arnar sínar þegar þeim hentar en kassarnir eru aðgengilegir allan sólarhringinn og það tekur örskamma stund að sækja pakka. Það kostar ekkert aukalega að fá sendingu í Póstbox og öll samskipti eru auk þess rafræn sem gerir það að verkum að þú ert með þjónust- una við höndina, hvort sem það er í snjallsímanum eða tölvunni. Þegar sótt er í Póstbox er annar augljós kostur að geta áframsent SMS eða tölvupóststilkynningar til vina eða vandamanna til þess að sækja fyrir þig sendinguna ef þú kemst ekki sjálfur í Póstboxið.“ Allar nánari upplýsingar um afhendingarval og Póstbox eru að- gengilegar á heimasíðu Póstsins, postur.is Beint úr netverslun í dreifikerfi Póstsins Póstboxin eru frábær nýjung og þægileg þegar sækja þarf sendingar. Markmiðið er að koma með lausnir sem auðvelda fólki lífið, hvort sem um er ræða sendendur eða móttak- endur. Samkvæmt sænskri rannsókn kaupir fólk dýrari vörur ef netsíðan er glæsileg. Netsíðan getur þannig virkað eins og sál- fræði á fólk. Dýrari merkjavörur eru frekar keyptar frá netverslun í eigin landi en frá útlöndum, að því er rannsóknin sýnir. Óöryggi er ástæða þess að fólk veðjar fremur á verslun í heimalandi. Margir vilja þekkja til seljandans. Góðar upplýsingar á netsíðunni geta þó aukið sölu á erlendum síðum. Sömuleiðis ef einfalt er að nota síðuna. Netsala innanlands í Svíþjóð hefur aukist mikið á síðustu árum. Miklar rannsóknir hafa verið gerðar þar í landi á rafrænni verslun. Notendavæn netverslun virðist draga að sér mun fleiri kaupendur á netinu en þær sem eru flóknar. Sumir veigra sér við að versla við netverslun í fjarlægu landi þótt varan sé mun ódýrari en í heimalandinu. Vantraust á seljandanum er ein aðalorsök þess, fólk er hrætt við að gefa upp kreditkortanúmer ef það þekkir ekki verslunina. Norðurlandabúar virðast versla mikið við nágrannalönd á netinu. Netsala vinsæl Í könnun sem norski Pósturinn gerði kom fram að 85% Norð- manna höfðu einhvern tíma verslað á netinu. Vinsælustu netverslanir hjá Norðmönnum eru í Bretlandi, Bandaríkjunum og Kína. Norðmenn þurfa að greiða tolla og skatta af vörum sem keyptar eru í gegnum erlendar vef- síður ekkert síður en Íslendingar. Norðmenn eru einmitt hvattir til að kynna sér skatta og tolla af vörum áður en þær eru keyptar frá útlöndum. Þótt varan sé ódýr verð- ur hún það kannski ekki þegar hún kemur yfir landamærin. Þá er bent á lakari viðskiptahætti og réttindi neytenda. Ef um heimamarkað er að ræða eru réttindin þau sömu og þegar farið er í verslunina. Reglur geta verið aðrar í öðrum löndum. Það getur til dæmis verið erfitt að skila vöru til Kína en skilaréttur er á öllum vörum í heimalandinu. Margar innlendar netverslanir bjóða upp á að sækja vöru í versl- un. Það sparar sendingarkostnað. Aðrar bjóða upp á heimsendingu á vörum án kostnaðar. Norðmenn vara við sjóræningja- verslunum á netinu. Ekki er víst að varan skili sér til kaupanda en kaupandinn verður mörgum krónum fátækari. Samkvæmt norska viðskipta- vefnum E24 í Noregi eyða Norð- menn um 45 þúsund krónum í netkaup hvern mánuð að meðal- tali. Stærsti kaupendahópurinn er á aldrinum 25-44 ára. Karlmenn eyða stærri fjárhæðum en konur á netinu. Samkvæmt miðlinum eru sumir karlar „Mr. Big Spender“, sér- staklega þeir sem búa úti á landi í meðalstórum bæjum. Sá karlmaður kaupir fatnað, skó og fylgihluti á netinu auk flugferða og hótela. Bæði kynin nota farsímann til að kaupa á netinu. Er bent á að stjórn- endur fyrirtækja verði að athuga að gera heimasíður sínar aðgengi- legar fyrir síma. Rafræn verslun mun aukast á næstu árum eftir því sem traffíkin eykst. Umtalsverð aukning hefur verið í netsölu alls staðar í heiminum á undanförnum árum og er alltaf að verða meiri. Kaupa meira á góðum síðum Ef fólk er óöruggt með netverslunina sem það er að skoða á vefnum kaupir það síður þótt það langi í vöruna. Gott útlit á netverslun skiptir gríðarmiklu máli. Einnig þarf síðan að vera símavæn. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Netið kemur í góðar þarfir þegar skoða á ferðalag til annarra landa. En einnig er gaman að skoða ýmsar vörur sem boðnar eru í net- verslunum. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RNETVERSLUN 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 A 0 -0 2 C C 2 3 A 0 -0 1 9 0 2 3 A 0 -0 0 5 4 2 3 9 F -F F 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.