Fréttablaðið - 22.08.2019, Síða 30
TRI VERSLUN
WWW.TRI.IS
Perla design
www.perladesign.is
Persónuleg hengi fyrir verðlaunapeninga
Upplögð afmælis- eða jólagjöf
Einnig til persónuleg fatahengic jólakúlurc diskab
skreytingarc kökutoppar o.m.fl. Geymið auglýsinguna.
Sími: 8942176 Perla design er á facebook
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RNETVERSLUN
Breki Karlsson er
hagfræðingur að
mennt og formaður
Neytendasamtak-
anna. Hann hefur
ekki áhyggjur af
þróun verslunar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir erfitt að spá um framtíð
verslunar. „Ég er hagfræðingur og
hagfræðingum er tamt að segja á
morgun af hverju spáin sem þeir
gerðu í gær, sé röng í dag. Það er
erfitt að spá um hvað framtíðin
ber í skauti sér. En víst er að kaup-
hegðun er að breytast mjög mikið
og mjög hratt,“ segir hann og segir
vísbendingar um miklar breyting-
ar í nágrannalöndum okkar.
„Þess vegna myndi ég vilja stór-
efla neytendarannsóknir á Íslandi
svo við getum betur gert okkur
grein fyrir þróuninni og brugðist
við henni,“ segir Breki.
Hefðbundin verslun
á undanhaldi?
Víða í stórborgum erlendis eru
hefðbundin verslunarrými á
undanhaldi. Ekki þarf annað en að
ganga um götur í London eða New
York til að sjá auð verslunarrými á
áður eftirsóttum götum. Leiguverð
á atvinnuhúsnæði fer hækkandi
víðar en í Reykjavík. „Ég hef satt að
segja ekki stórkostlegar áhyggjur
af þessu. Ég trúi því að þetta muni
allt finna sér farveg og rýmin
fyllist á ný.“
Mikilvægt sé þó að borgaryfir-
völd séu meðvituð um þróunina.
„Borgarumhverfið tekur sífelldum
breytingum. Það er til dæmis
magnað að sjá gamlar myndir af
mjólkurbúðum í öllum hverfum
Reykjavíkur. Með breyttri tækni
og lögum hurfu þær allar og rýmin
þar sem þær voru fengu annað
hlutverk. Skipulag borga tekur
þannig breytingum og verður
á hverjum tíma að taka mið af
breytingum í þjóðfélaginu.“
Breki segir eigendur hefð-
bundinna verslana ekki eiga að
óttast aukningu í netverslun. „Þeir
geta brugðist við á margan hátt. Til
dæmis má nefna að áhugi á hægari
lífsstíl og verslun og framleiðslu í
heimabyggð er að stóraukast. En
aftur, ef við hefðum betri neyt-
endarannsóknir gætu verslunar-
eigendur einnig tekið betri
ákvarðanir um hvernig sé best að
bregðast við breyttum háttum.“
Ný reglugerð eflir neytendur
Hingað til eru mörg dæmi þekkt
um að neytendur hafi ekki getað
fengið vöru eða þjónustu keypta
á netinu nema að vera búsettir í
því landi þar sem netverslunin
er starfrækt eða að seljandi hafi
ákveðið að selja eingöngu til
ákveðinna landa. Þegar ný EES-til-
skipun tekur gildi, sem samþykkt
var í desember 2018, verður slíkt
óheimilt. Breki segir þetta munu
hafa mikil og jákvæð áhrif á neyt-
endur.
„Reglugerðin snýr raunar að
afnámi óréttmætra landfræði-
legra hindrana og annars konar
mismununar á grundvelli þjóð-
ernis viðskiptavina, búsetu eða
staðsetningu starfsstöðvar á
EES-svæðinu. Þetta þýðir að vef-
verslunum er bannað að mismuna
neytendum á grunni þjóðernis
eða búsetu. Seljendum er því ekki
lengur heimilt að neita því að selja
vörur eða þjónustu vegna þess
að kaupandi býr í öðru landi eða
notar erlent greiðslukort,“ segir
Breki. „Seljanda er þó ekki skylt
að annast sendingu vöru. Því gæti
komið til þess að kaupandi þurfi
að annast sendinguna sjálfur.“
Mörg mál á borði
samtakanna
Mikill fjöldi mála kemur á borð
samtakanna vegna þjónustukaupa
á netinu. „Yfirleitt eru það mál sem
varða ferðaskrifstofur og kaup
á flugferðum. Þá leita margir til
samtakanna til að leita upplýsinga
um stöðu sína gagnvart vefversl-
unum sem telja sig eingöngu vera
milligönguaðila. Ef vara reynist
gölluð vísa þeir yfirleitt til þriðja
aðila, sem á að vera söluaðilinn.
Oft reynist þá erfitt að ná til þessa
þriðja aðila. Réttarstaðan í slíkum
málum er stundum umdeild, en
Neytendasamtökin telja að sá
aðili sem annast sölu sé í f lestum
tilvikum ábyrgur fyrir seldri
vöru,“ útskýrir Breki en bætir við
að neytendur hafi í raun ríkari
rétt, kaupi þeir vöru eða þjónustu
á netinu, en ef þeir kaupa á fastri
starfsstöð seljanda.
„Þannig hafa neytendur 14 daga
til að falla frá samningi án þess að
þurfa að gefa upp ástæðu. Þann
rétt hafa þeir ekki ef þeir kaupa
vöru eða þjónustu í verslun.“
Kauphegðunin
breytist hratt
Formaður Neytendasamtakanna segir vanta rannsóknir á
netverslun Íslendinga og vill stórefla neytendarannsóknir.
Mikill fjöldi mála kemur á borð samtakanna vegna þjón-
ustukaupa á netinu. Ný Evrópureglugerð mikil búbót fyrir
þann sífellt stækkandi hóp sem kýs að versla á netinu.
Hefðbundin verslun er að taka stórfelldum breytingum. Það setur svip á
borgir heimsins. Vísbendingar eru um miklar breytingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
2
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
0
-0
7
B
C
2
3
A
0
-0
6
8
0
2
3
A
0
-0
5
4
4
2
3
A
0
-0
4
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K