Fréttablaðið - 22.08.2019, Síða 32

Fréttablaðið - 22.08.2019, Síða 32
 8 KYNNINGARBLAÐ 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RNETVERSLUN Það eykur enn á kaupgleðina ef flíkin úr netversluninni passar. Með tilkomu netverslana er hægt að versla við næstum hvaða fataverslun heimsins sem er heiman úr stofu. Þó þarf að fara varlega þegar kemur að stærðum enda er fátt meira svekkjandi en að fá draumaflíkina heim og hún passar ekki. Hér eru heilræði við fatakaup á netinu: l Stærðir eru mismunandi eftir framleiðendum og því ekki óhætt að kaupa sömu stærð og þú varst í síðast eða telur þig vera í. Því er mikilvægt að hafa öll mál rétt og bera þau saman við stærðartöflur hverrar verslunar fyrir sig. Taktu nákvæmt mál af mjöðmum, mitti og brjóstkassa til að spara þér vonbrigðin þegar flíkin reynist of lítil vegna þess að þú valdir eftir fatanúmerinu. l Ef þú ferð oft í sömu fataverslun á netinu er gott að hafa við höndina lista yfir stærðir sem þú hefur áður keypt hjá þeim söluaðila. l Flestar netverslanir leyfa komm­ entakerfi fyrir viðskiptavini sína. Það getur verið gagnlegt að lesa það sem öðrum fannst um flíkina sem þú ert spá í að kaupa; stærðina, efnið og fleira. l Lestu vel skilmála verslunarinn­ ar um skilafrest til að geta skilað og skipt í tæka tíð. Fatakaup án vonbrigða Það borgar sig að vera vel vakandi og fara varlega í netverslunum. NORDICPHOTOS/GETTY Stundum eru fötin sem berast í pósti ekki eins og þau sem við pöntuðum, eða héldum að við værum að panta. Hér er nokkur góð ráð af vefsíðu News­ Anyway til að koma auga á falsanir í netverslunum. Of gott til að vera satt: Ef þú finnur ódýra flík frá merki sem er venjulega dýrt eru góðar líkur á að það sé fölsuð vara. Stóru merkin lækka verðið aldrei mikið, jafnvel á útsölum. Ótraustvekjandi seljandi: Það er gott að kynna sér umsagnir sem netverslunin hefur fengið frá notendum áður en maður pantar frá nýrri búð sem maður veit lítið um. Yfirleitt er auðvelt að finna þær með leit á Google. Ósamræmi í myndum: Flest stór merki birta myndir af vörum á vef sínum, jafnvel þótt þar sé ekki vefverslun. Það er því yfirleitt auð­ velt að bera þær myndir saman við myndir af vörum í vefverslunum. Vondar eða óskýrar myndir eru góð vísbending um fölsun. Það sama gildir ef það er ekki hægt að finna vöruna á heimasíðu merkisins. Gagnrýnin hugsun: Það er líka alltaf gott að hugsa einfaldlega um hvort það sé líklegt að einhver óþekkt síða sé að selja þekkta merkjavöru á lægra verði en allir aðrir. Það borgar sig að skoða allt með gagnrýnu auga og leita að göllum, annars gætu þeir komið manni leiðinlega á óvart. Að forðast fölsuð föt í netverslun Danir nota símann mikið í sumar- fríinu þótt þeir séu í útlöndum. Netnotkun Dana í útlöndum hefur aldrei verið meiri en í sumar. Danir notuðu netið 33% meira í gegnum símann í þeim löndum sem þeir ferðast mest til en í fyrra. Þetta sýna tölur frá dönsku símafyrirtæki sem mældi notkun í 27.­33. viku sumars. Tölurnar þykja sýna að Danir taka venjulega farsímanotkun með sér í sumarfríið. Síminn inniheldur að sjálfsögðu ótrúlega mikið af nauðsynlegum upplýsingum sem fólk er vant að hafa við höndina. Þá þykir sýnt að netsamband er víða svo aðgengilegt, til dæmis á hótelum, að fólk hikar ekki við að streyma kvikmyndum, sjónvarps­ þáttum og YouTube­myndböndum. Gagnanotkun Dana var mæld í 64 löndum, þar með talið í gegnum 3LikeHome sem er símkort sem notað er í löndum utan Evrópu en kostnaðurinn er þá sá sami og í Danmörku. Frá árinu 2016 er sama farsímagjald í mörgum löndum Evrópu, að minnsta kosti þeim sem eru í EB eða EFTA. Fólk varar sig kannski ekki á að símanotkun í öðrum löndum getur verið mjög dýr, til dæmis í Tyrklandi þangað sem margir fara í frí. Í símanum í fríinu 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 0 -1 B 7 C 2 3 A 0 -1 A 4 0 2 3 A 0 -1 9 0 4 2 3 A 0 -1 7 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.