Fréttablaðið - 22.08.2019, Side 34

Fréttablaðið - 22.08.2019, Side 34
Það versta við að koma niður af sýru á Óskarnum er þegar þú áttar þig á að þú ert ennþá á Óskarnum. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Frá því að þeir Parker og Stone komu fram á sjónarsviðið fyrir rúmum tuttugu árum hafa þeir verið einhverjir áhrifa- mestu og beittustu samfélagsgagn- rýnendur okkar tíma. Þá hafa þeir einnig slegið í gegn í kvikmynda- og leikhúsbransanum og má þar nefna hinn margverðlaunaða söngleik Book of Mormon en hann hefur verið sýndur úti um allan heim um árabil. Þegar þeim félögum, sem eitt sinn var lýst sem hötuðustu mönn- unum í Hollywood, var boðið á Óskarsverðlaunahátíðina árið 2000, var ljóst að allt gæti gerst. Fáa hefur þó eflaust grunað hvað væri í vændum. Hugdjarfir og hæfileikaríkir Árið 2000 fengu þeir tilnefningu fyrir lag ársins en það var lagið „Blame Canada“ (eða „Áfellumst Kanada) úr mynd þeirra South Park: Bigger, Better, Uncut. Þeir Parker og Stone gefa ekki mikið fyrir uppstrílaða uppgerðina sem einkennir heim stórstjarnanna og var Óskarsverðlaunahátíðin engin undantekning. Þeim fannst hátíðin að eigin sögn hallæris- leg og sögðust aldrei hafa ætlað mæta „venjulegir“, markmiðið var alltaf að skapa smá óreiðu. Þannig ákváðu þeir að klæðast síðkjólum. Upphaflega voru þeir að velta fyrir sér að klæðast andabún- ingum en töldu að það gæti orðið til þess að þeim yrði vísað frá. Ef þeir væru klæddir síðkjólum, aftur á móti, þá væri býsna erfitt fyrir skipuleggjendur að færa sann- færandi rök fyrir því hvers vegna þeir mættu ekki klæðast kjólum, líkt og flestir kvenkyns gestir hátíðarinnar. En það var ekki nóg. Þegar stóra stundin nálgaðist urðu þeir tvístígandi. Það var þá sem þeir tóku ákvörðun um að innbyrða smá sýru. Klukkutíma síðar fylltust þeir nýfengnum eldmóði og sögðu síðar í viðtali að á þeim tímapunkti hefði ekki neitt annað komið til greina en að klæðast kjólum. Kvöldið töfrum líkast Félagarnir tóku meðvitaða ákvörðun um að minnast ekki á kjólana sem þeir klæddust en eins og flestir vita þá er mikið lagt upp úr klæðnaði gesta hátíðarinnar. Þegar þeir voru ítrekað spurðir út í kjólana svöruðu þeir einfald- lega aftur og aftur „þetta kvöld er töfrum líkast“ eða „it‘s such a magical night“ eins og það útleggst á ensku. Innblásnir af umtöluðum kjólum þekktra leikkvenna Síðkjólarnir sem þeir klæddust voru að þeirra sögn innblásnir af eftirminnilegum og umtöluðum kjólum sem þær Jennifer Lopez og leikkonan Gwyneth Paltrow klæddust á verðlaunahátíðum skömmu áður. Jennifer Lopez klæddist grænum kjól frá Versace á Grammy-hátíðinni og Gwyneth Paltrow klæddist bleikum kjól frá Ralph Lauren þegar hún tók við Óskarsverðlaununum fyrir leik Á sýru í síðkjólum á rauða dreglinum Skaparar South Park, þeir Trey Parker og Matt Stone, hlífa engum í listsköpun sinni, hvorki sjálfum sér né öðrum, og kom það skýrt fram á rauða dreglinum árið 2000. Trey Parker og Matt Stone sögðu að kvöldið væri töfrum líkast. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS ERUM AÐ TAKA UPP NÝJAR VÖRUR FRÁ sinn í kvikmyndinni Shakespeare in Love árið áður. Að „Charlie Sheen-a“ Þeir Parker og Stone mættu í sófann til spjallþáttastjórnandans Davids Letterman árið 2011 til að ræða söngleikinn The Book of Mormon. Þegar Letterman spurði þá út í þetta eftirminni- lega atvik þá sögðu þeir félagar að þeir hefðu einfaldlega verið að „Charlie Sheen“-a og voru þeir þá að vísa til leikarans og vandræða- pésans Charlie Sheen sem var á þessum tíma fastagestur á síðum slúðurblaðanna. „Jæja, þannig að þið farið svona á hátíðina, og hvað svo?“ spurði Letterman. „Þú tapar fyrir Phil Collins,“ svaraði Parker og bætti við: „Þá finnst þér þú ekki svo svalur.“ Í spjallþætti Lettermans tóku þeir þó ekki fram hvaða fíkniefna þeir hefðu neytt og því voru uppi getgátur um það að þeir hefðu verið á kókaíni, enda fátt jafn lýsandi fyrir Charlie Sheen. Þeir sögðust þá tilneyddir til þess að leiðrétta þann misskilning og tóku þeir því fram skömmu síðar að efnið sem um ræddi hefði verið sýra en ekki kókaín. Caine sáttur en ekki Estefan Aðrir gestir hátíðarinnar tóku misvel í uppátækið. Þannig var Michael Caine ánægður með þá á meðan Gloriu Estefan þótti ekki mikið til þeirra koma. „Sumir voru í sjöunda himni þegar við mættum á Óskarinn í þessum kjólum. Michael Caine var til dæmis mjög spenntur. En ég man að Gloria Estefan var virkilega pirruð,“ sagði Stone. Parker lýsti svo þessari upp- lifun síðar á skoplegan hátt. „Það versta við að koma niður af sýru á Óskarnum er þegar þú áttar þig á að þú ert ennþá á Óskarnum,“ útskýrði hann. Lifum lengur FRETTABLADID.IS á frettabladid.is hlustaðu þegar þér hentar 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 0 -2 F 3 C 2 3 A 0 -2 E 0 0 2 3 A 0 -2 C C 4 2 3 A 0 -2 B 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.