Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.08.2019, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 22.08.2019, Qupperneq 40
Ef strákar hafa tækifæri til að fara utan í góða klúbba þá er erfitt að standa í vegi fyrir því. Þorvaldur Örlygs- son, landsliðs- þjálfari U19 FÓT B O LT I Þor va ldu r Örlyg s- son, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í landsliðs æfingum dagana 2.-6. september á Framvelli. Þorvaldur valdi 26 stráka en þetta er liður í undirbúningi liðsins fyrir undan- keppni EM 2020 13.-19. nóvember þar sem Ísland leikur í riðli með heimamönnum Belgum, Albaníu, og Grikklandi. Þrettán leikmenn eru atvinnumenn, þar á meðal Andri Lucas Guðjohnsen frá Real Madrid en restin spilar hér heima, meðal annars ungstirni Pepsi Max deildarinnar, Valgeir Valgeirsson. Einn spilar í C-deildinni með Vestra, Þórður Gunnar Haf þórs- son, en hann er kominn með 60 leiki í meistaraflokki þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára. Nýlegar fréttir af íslenskum atvinnumönnum sem fóru ungir út til að láta drauminn rætast sýna að þeir eru flestir stadd- ir í varaliðum eða jafnvel bara fastir í unglingaliðum. Þorvaldur segir að ekkert eitt rétt svar sé við þeirri spurningu hvort leikmenn eigi að fara út í atvinnu- mennsku til að æfa með unglinga- og varaliðum eða vera hér á Íslandi og spila fótbolta í meistaraf lokki. „Þetta er spurning sem við erum endalaust að velta fyrir okkur og búnir að gera það í mörg ár. Frá mínum bæjardyrum séð þá finnst mér að ef strákar hafa tækifæri til að fara utan í góða klúbba sé erfitt að standa í vegi fyrir því. Við höfum séð það heppnast með betri leik- menn okkar og þá er það betra til lengri tíma en það er ekki algilt að það sé rétta aðferðin. Ég bendi stundum á að fólk fer í mennta- eða háskóla og það gengur ekki alltaf upp þá braut sem við- komandi fetar fyrst. Menn geta líka verið óheppnir í ákvörðunar- töku. Ég held samt að þegar ungur drengur fær tækifæri til að fara utan, hvort sem það er í unglinga- liðið eða b-lið þá er erfitt að standa í vegi fyrir honum. Stefna flestra er yfirleitt að ná langt í fótboltanum. Miðað við fjöldann sem er að fara Stór spurning og mörg svör Þorvaldur Örlygsson, landsliðsþjálfari U-19 ára landsliðs Íslands, valdi í gær hóp til æfinga í september. Hann segir ekkert eitt rétt svar til við spurningunni hvort leikmenn fari of snemma í atvinnumennsku. Andri Lucas Guðjohnsen, leikmaður Real Madrid, er í hópnum sem kemur saman til æfinga í Safamýri í september. NORDICPHOTOS/GETTY Róbert Orri Þorkelsson Afturelding Andri Fannar Baldursson Bologna Karl Friðleifur Gunnarsson Breiðablik Kristall Máni Ingason FC Köbenhavn Hákon Haraldsson FC Köbenhavn Danijel Dejan Djuric FC Midtjylland Sigurjón Daði Harðarson Fjölnir Jóhann Árni Gunnarsson Fjölnir Arnór Ingi Kristinsson Fylkir Hákon Rafn Valdimarsson Grótta Orri Hrafn Kjartansson Heerenveen Valgeir Valgeirsson HK Jón Gísli Eyland Gíslason ÍA Ísak Bergmann Jóhannesson IFK Norrköping Oliver Stefánsson IFK Norrköping Davíð Snær Jóhannsson Keflavík Vuk Óskar Dimitrijevic Leiknir R. Atli Barkason Norwich City Ísak Snær Þorvaldsson Norwich City Teitur Magnússon OB Odense Jökull Andrésson Reading Andri Lucas Guðjohnsen Real Madrid Mikael Egill Ellertsson SPAL Sölvi Snær Guðbjargarson Stjarnan Valgeir Lundal Friðriksson Valur Þórður Gunnar Hafþórsson Vestri ✿ Hópurinn út að spila þá eru alltaf einhverjir sem koma heim, út af mismunandi hlutum. Að sama skapi eru margir sem ná að búa til góðan feril. Við erum ekki búnir að finna lausn á þessari gátu en það eru drengir að fara utan og leitast við að verða atvinnumenn og verða betri og við reynum að styðja þá eins vel og við getum.“ Íslenska leiðin Þorvaldur og Davíð Snorri Jónsson aðstoðarlandsliðsþjálfari völdu þrjá árganga til að koma saman á þessar æfingar sem er ekki algengt. Þrír eru fæddir 2003, 11 eru fæddir 2002 og afgangurinn er á elsta og síðasta árinu í U19, fæddir 2001. Þó nokkrir hafa fengið hlutverk í sínum liðum í Pepsi Max deildinni og nokkrir eru í stórum hlutverkum í sínum liðum í Inkasso. Þá er Ísak Bergmann kominn í aðallið Norrköping í Sví- þjóð. „Yfirleitt erlendis er bara einn árgangur þar sem valið er úr stórum hópi stráka. Við erum aðeins öðru- vísi og blöndum tveimur saman en okkur langaði að fá þarna inn alla þessa árganga saman í góða æfinga- viku og teljum okkur heppna að fá bestu strákana á þessu aldursbili saman til æfinga. Það eru tveir landsliðsgluggar fram að mótinu í Belgíu og við vildum nota septem- bergluggann í æfingar.“ Liðið hefur síðustu tvö ár farið í þessum septemberglugga til Wales og Albaníu til að spila en fer þess í stað til Finnlands í næsta glugga og leikur þar æfingaleiki við heima- menn og Svía. „Við ákváðum að prófa þetta svona. Ég er þakklátur sambandinu fyrir að leyfa það því við teljum að við verðum betur undirbúnir fyrir komandi verkefni.“ Fylgjast vel með Þorvaldur er með 13 atvinnumenn í hópnum og því eðlilegt að spyrja hvort hann nái að fylgjast jafn mikið með þeim og hann vildi. „Við höfum ekki farið eins oft út og við viljum, það segir sig sjálft. En við höfum farið þegar við getum. Við erum í góðu sambandi við félögin og strákana sjálfa. Strákar fæddir 2002 hafa verið með mörg verkefni á síðasta ári og við þekkjum þá orðið ansi vel. Það væri ósk okkar að sjá meira en við sjáum leiki í gegnum nútímatækni. Að sama skapi erum við að horfa á eins marga leiki og við komumst yfir hér heima. Þetta eru um 120- 130 leikir sem við erum að horfa á hér heima frá meistaraflokki og niður í þriðja flokk. Við reynum að vera eins mikið á tánum og mögu- legt er. Fylgjast með og fá upplýsing- ar. Við Davíð Snorri náum að mínu mati að fylgjast vel með.“ benediktboas@frettabladid.is FÓTBOLTI Ísak Bergmann Jóhanns- son hélt upp á fyrsta leik sinn fyrir Norrköping í Svíþjóð með marki í gær þegar þessi ungi miðjumaður skoraði eitt marka Norrköping í 6-1 sigri á Timra. Skagamaðurinn, sem varð 16 ára fyrr á þessu ári, er á fyrsta ári sínu hjá sænska félaginu eftir að Norr- köping keypti Ísak og frænda hans, Oliver Stefánsson, í vetur. Ísak ferðaðist með liðinu á dögunum í Evrópuleik og var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu í gær gegn Timra sem leikur í 4. deild sænsku deilda- keppninnar. Ísak var ekki lengi að þakka traustið því hann skoraði þriðja mark Norrköping í uppbótartíma í fyrri hálfleik og lék allan leikinn fyrir Norrköping sem komst áfram í næstu umferð með sigrinum. – kpt Óskabyrjun hjá Ísaki í gær KÖRFUBOLTI Ísland mun ekki senda lið til leiks í lokakeppni EuroBasket þriðju keppnina í röð eftir 24 stiga tap gegn Sviss í gær sem gerði út um vonir Íslands. Íslenska liðið átti slakan dag á báðum endum vallar- ins og var vörn Íslands eins og smjör fyrir svissneskan hníf í Montreux í gær. Nú er ljóst að íslenska liðið leikur ekki keppnisleik í tvö ár eða allt þar til að undankeppni HM 2023 hefst. Staða íslenska liðsins var afar vænleg fyrir leikinn í gær, eftir 26 stiga sigur á Portúgal á dög- unum mátti Ísland tapa með nítján stigum en samt fara áfram á næsta stig undankeppninnar. Það virtist ekki skipta máli í byrjun leiks því Ísland byrjaði leikinn af krafti og var með frumkvæðið allan fyrsta leikhlutann. Eftir það hrundi spilamennska liðsins eins og spilaborg og gekk Sviss á lagið. Slök vítanýting Sviss hélt Íslandi inni í leiknum lengi vel en með öf lugum spretti í upphafi fjórða leikhluta náði Sviss 23 stiga mun og náði Ísland aldrei að brúa það bil. Ísland virtist engin svör eiga við sóknarleik Sviss í gær og þegar skotin geiguðu voru leikmenn Sviss duglegir að taka sóknarfráköst og fengu með því f leiri sóknarfæri. Á sama tíma var sóknarleikur Íslands ragur og náðu Svisslendingar að knýja Íslendinga í erfið skot trekk í trekk sem skóp sigurinn. – kpt EM-draumur úr sögunni eftir stórtap í Sviss Martin var stigahæstur í íslenska liðinu í Sviss. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 2 2 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :1 0 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 A 0 -0 2 C C 2 3 A 0 -0 1 9 0 2 3 A 0 -0 0 5 4 2 3 9 F -F F 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 2 1 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.