Fréttablaðið - 22.08.2019, Síða 52
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann
Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
SVO FER HANN NIÐUR
Á HNÉN OG HÚN FER AÐ
GRÁTA. ÞAU HALDA ÁFRAM AÐ
TALA OG SVO ER EINS OG HANN
BIÐJI HANA AFTUR UM SVAR.
FRETTABLADID.IS
SÖGUR AF PLÖTUM
– með Bubba Morthens
á frettabladid.is
– hlustaðu þegar þér hentar
Sögur af plötum er unnið í samstar
við:
Sögur af plötum er nýtt
vikulegt hlaðvarp með Bubba
Morthens á frettabladid.is þar
sem hann rekur tilurð valdra
plata úr safni sínu.
Hægt er að hlusta á þættina á
frettabladid.is/hladvarp
Alltaf góður fílingur, alltaf nóg af grasi
Tó n l i s t a r m a ð u r i n n og sálfræðineminn Grímur Gunnarsson er nýf luttur til landsins frá Danmörku. Hann er Hólmvík ingur í
húð og hár. „Já, ég er landsbyggðar
strákur,“ segir Grímur. Í dag kemur
út lagið Close Enough með Grími,
en hann heldur upp á útgáfuna í
kvöld með tónleikum á Vínyl Bistro
á Hverfisgötu.
„Ég er bara nýkominn heim og
svona aðeins að reyna að koma
mér inn í íslensku tónlistarsenuna.
Þetta var allt öðruvísi úti því þar
gat maður sent fimmtíu tölvupósta
á tónleikastaði og fékk svo kannski
svar frá fimm. Hérna heima snýst
þetta aðeins meira um tengsla
netið.“ Hann segir að það að hafa
flutt út hafi aukið þorið til að spila
tónlistina sína opinberlega, enda
hafi enginn þekkt hann þar og því
áhættan minni.
„Í næsta mánuði er ég svo á leið
inni út að spila á tónleikum og tón
listarhátíð,“ segir hann, svo ljóst
er að tónlist Gríms hefur náð
ágætlega til Dana.
„Ég spila indítónlist sem
er létt til hlustunar. Því
miður er ég ekki sextán ára
rappari, þá væri kannski
auðveldara fyrir mig að
koma mér á framfæri,“
segir Grímur hlæjandi
og heldur áfram: „Þá
væri ég kannski kominn
með helling af spilunum
á Spotify.“
Grímur byrjaði að
spila af alvöru fyrir
þremur árum. „Ég var
alltaf með tónleika
í kringum jólin fyrir
vini og vandamenn í
mörg ár. Þá samdi ég
alltaf nýtt lag fyrir hver
jól. Þegar ég var kominn
með ágætis bunka hugsaði
ég að það væri kominn
tími til að láta reyna á
þetta.“
Í síðustu viku lenti
G r í m u r í n o k k u ð
skemmtilegri lífsreynslu
í kjölfar tónleika sem hann
hélt í Frystiklefanum á Rifi.
„Eftir tónleikana nálgaðist
mig einn áhorfendanna. Hann
var frá Sviss og hvíslar að mér
í f lýti: „Þetta voru geggjaðir tón
leikar og kærustunni minni fannst
það líka, ekki ertu laus á morgun?“
spurði hann. Svo segir hann mér að
hann ætli að biðja hennar og vilji
endilega að ég sé á staðnum til að
spila undir bónorðinu.“
Grímur var til í það, en hann var
á svæðinu vegna brúðkaups bróður
síns. Hann hafi því mætt á æfingu
fyrir brúðkaupið, enda svaramaður,
og svo farið beinustu leið á fund
svissneska parsins. „Þau voru búin
að vera saman í þrettán ár og hann
var alltaf að bíða eftir rétta tæki
færinu til að biðja hennar. Þau voru
bæði að vinna í list sinni þarna í
húsi rétt hjá ásamt fleirum.“
Kærastan vissi að von væri á
Grími, kærastinn dregur hana frá
listaverkefni inn í stórt rými á jarð
hæðinni þar sem Grímur byrjar að
spila.
„Svo talar hann auðvitað bara
frönsku, tungumál ástarinnar, og
ég skil ekkert hvað hann er að segja.
Hann valdi lagið Í draumaheimi til
að spila undir bónorðinu. Svo fer
hann niður á
hnén og hún
fer að gráta.
Þau ha lda
á f ra m að
tala og svo
er eins og
hann biðji
hana aftur
u m sva r.
Sem betur
fer náði ég
að greina orðaskil, að hún sagði
„Oui, oui, oui,“ eða já á frönsku.“
Vinir parsins voru með á svæðinu
en þau voru ekki einu gestirnir á
þessum sérstöku tónleikum.
„Þarna á jarðhæðinni var stærð
arinnar gluggi. Fyrir framan hann
stóðu sjö rollur og fylgdust spenntar
með öllu.“
Aðspurður hvort þetta væru eft
irminnilegustu tónleikar sem hann
hefði spilað á stendur ekki á svari.
„Örugglega í topp tuttugu að
minnsta kosti.“
Lagið Close Enough er hægt að
nálgast á öllum helstu streymis
veitum og tónleikarnir á Vínyl
Bistro hefjast klukkan 20.00 í kvöld.
steingerdur@frettabladid.is
Spilaði undir bónorði
á meðan sjö rollur
fylgdust með
Grímur Gunnars-
son gefur út lagið
Close Enough í dag
og heldur upp á það
með tónleikum á
Vínyl Bistro í kvöld.
Í síðustu viku spilaði
hann undir bónorði,
þar sem sjö rollur
fylgdust spenntar
með öllu.
Grímur
segir það
hafa hjálpað mikið
að hafa flutt til Dan-
merkur, þá hafi hann
haft meira þor til að spila
opinberlega enda þekkt
fáa þar. FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
2 2 . Á G Ú S T 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:1
0
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
A
0
-0
C
A
C
2
3
A
0
-0
B
7
0
2
3
A
0
-0
A
3
4
2
3
A
0
-0
8
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
5
6
s
_
2
1
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K