Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 12
° °12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. október 2014 AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi auglýsir eftir umsóknum AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti íslensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum í verkefni með þetta að markmiði. Skilafrestur umsókna er til kl. 17, 1. des. 2014. Umsóknum ber að skila rafrænt á netfangið avs@byggdastofnun.is og bréflega á póstfangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi, Ártorgi 1, 550 Sauðárkrókur Styrkir sem sjóðurinn veitir falla undir þrjá flokka: a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þróunar- verkefna, sem falla að markmiðum sjóðsins. Veittur er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera grein fyrir verkþáttum og fjármögnun. Hver styrkur getur numið allt að átta milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verkefna (framhaldsverkefna), sem unnin eru á lengri tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um styrk á hverju ári. Hafi verkefnið áður verið styrkt, þarf að gera grein fyrir framvindu þess áður en styrkumsókn er afgreidd. b. Smá- eða forverkefni Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða til að undirbúa stærri verkefni á sviði rannsókna og/ eða þróunar. Styrkupphæð er allt að einni milljón króna og skal verkefnið unnið innan tólf mánaða. c. Atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum Veittir eru styrkir til verkefna, sem stuðla að nýjum störfum og aukinni verðmætasköpun í sjávarbyggðum. Horft er til ýmissa verkefna, sem geta tengst t.d. framboði á sjávarfangi, ferðaþjónustu, nýjum vörum eða þjónustu. Hámarkstími verkefna er 12 mánuðir og hámarksupphæð styrkja er þrjár milljónir króna. Um alla styrki gildir að framlag sjóðsins má ekki fara fram yfir 50% af heildarkostnaði og sjóðurinn tekur ekki þátt í að styrkja fjárfestingar. Nánari upplýsingar og umsóknarblað er að finna á heimasíðu sjóðsins www.avs.is. AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi starfar á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Ártorgi 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 455 5400 ∙ www.avs.is RÝMINGARSALA Á BARNAFATNAÐI Allt Snoozy, Pippi og fl . á -50% Nýtt -30% B A L D U R S H A G A V/ B Á R U S T Í G | S Í M I 4 8 1 - 1 5 1 1 nAuTA- KJÖT frÁ GuÐnASTÖÐuM Hef til sölu úrvals nautkjöt, selst í heilu, hálfu og fjórðungum. Hreint kjöt beint frá bónda Tökum einning niður pantanir á folaldakjöti. upplýsingar í síma 898 6124, Guðni gudnastadir@emax.is og sveitabiti á facebook Viðskiptavinir athugið Laugardaginn 25. október verður verslun Blómavals og Húsasmiðjunnar í Vestmannaeyjum lokuð vegna árshátíðar starfsfólks Rekstrarstjóri Olísdeild kvenna Bleikur leikur gegn laugardaginn 25. október klukkan 13:30. allur ágóði rennur í Krabbavörn Vestmannaeyja - eyjarós. Allir að mæta (í bleiku).

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.