Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 7
°
°
7Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. október 2014
hinsvegar útisvæði fyrir farþega og
herbergi með 8 kojum. Gert verður
ráð fyrir káetu fyrir áhöfn ferjunnar,
2 yrðu fastar en gert ráð fyrir að 4
geti nýst farþegum. Bíladekkið
verður tvískipt, og er reiknað með
að öðru megin verði fólksbílar og
hinumegin vörubílar. Ef aðeins
væru fólksbílar um borð verður
pláss fyrir 60 bíla. Er lengd akreina
í ferjunni 280 metrar þannig að
reiknað er með 4.67 metrum á bíl
að meðaltali. Uppganga af bíla
dekki á farþegadekk verður í
miðjunni. Jóhannes sagði að gott
rými yrði á bíladekkinu því gert
væri ráð fyrir að farþegar fari með
bílunum inná bíladekk. „Fljót lestun
og losun skipsins,
bæði bíla og
farþega væri einn af
grunnþáttunum, til
að ferjan geti siglt
sem flestar ferðir.“
Rafdrifið skip
Vélbúnaðurinn er
svokallað hybrid
diesel electric
system, sem nú er
mjög að ryðja sér til
rúms í ferjum.
Sagði Jóhannes að
sá búnaður hefði
mikla kosti umfram
hefðbundnar diesel
vélar. Með þessum
búnaði er hægt fá fullt afl á
skrúfurnar á örskotsstundu en diesel
vélar þurfa tíma til að ná fullum
snúningi. Aðalskrúfurnar verða
tvær, hvor um sig 1500 kW og
bógskrúfurnar einnig tvær 450 kW
hvor. Siglingahraðinn yrði 15
hnútar en heppilegasti hraðinn 13
hnútar. Það þýðir um 40 mínútna
siglingatíma milli Eyja og Land
eyjahafnar. Þá gat Jóhannes þess, að
aðsetur vélstjóranna yrði í brúnni
þegar siglt er, þeir yrðu skipstjóra
til aðstoðar ef þyrfti að halda.
Vélarrúmið væri meira og minna
sjálfvirkt.
3,5 metra
ölduhæð
Kom fram hjá Jóhannesi að ferjan
eigi að verða 64,68 metrar löng eða
um 5 metrum styttri Herjólfur og
breidd hennar verði 15,10 metrar
sem er tæplega einum metra mjórra
en núverandi Herjólfur. Tæki þessi
stærð mið af niðurstöðum prófana í
hermi. Mesta djúpristan verður 3
metrar en núverandi Herjólfur
ristir 4,2 metra en allt að 4,6
metrum á siglingu. Miðað er við að
ferjan geti siglt í 3,5 metra
ölduhæð. Kom fram á fundinum að
miðað við öldumælingar sem fyrir
liggja ættu ferðir að falla niður í
Landeyjahöfn 10 daga á ári og 30
daga á ári verði truflanir á áætlun
innan dagsins.
Spurningar úr sal
Lára Emilsdóttir kom með
fyrirspurn; þegar núverandi
Herjólfur kom var Vestmannaeying
um lofað 7 ferðum á dag. „Það
hefur ekki staðist, nú talar Jóhannes
um 8 ferðir, verður það?“ spurði
hún. – Þessu gat Jóhannes ekki
svarað, en sagði það möguleika,
ferjan gæti það, en aðrir yrðu að
svara fyrir ferðafjöldann.
Hjörtur Hermannssonar spurði um
muninn á vindfangi á núverandi
Herjólfi og þeirri ferju sem nú væri
verið að hanna. Jóhannes svaraði
því til að vindfangið væri mun
minna, reynt væri að hafa alla kanta
rúnnaða o.s.frv. og eins litla
vindmótstöðu eins og hægt er en
nefndi ekki neina prósentutölu né
flatarmál.
Páll Marvin Jónsson spurði um
rekstrarkostnað á nýju ferjunni.
Jóhannes sagði mikinn mun á
rekstrarkostnaði vegna minni
olíunotkunar. Svo væri spurning um
áhafnarfjöldann, en það kæmi í ljós.
Páll Guðmundsson spurði hver væri
þarfagreining vegna nýju ferjunnar.
Friðfinnur Skaftason sagði að
gerð hefði verið þarfgreining en
hann væri ekki með þær upplýs
ingar með sér. Aðalatriðið væri að
hægt yrði að halda upp samgöngum
allt árið og flutningsþörfinni væri
hægt að mæta með fleiri ferðum.
Hjörtur Hermannsson spurði hvort
gert væri ráð fyrir sérrými fyrir
flutninga á rusli frá Vestmanna
eyjum. Jóhannes svaraði því til að
svo væri ekki.
Stefán Sigurjónsson spurði hvort
ekki hefði komið til tals að hafa
tvístefnuskip. Jóhannes sagði að
slíkt skip hefði verið til umræða hjá
hópnum en þeir teldu það ekki
heppilegt. Tvístefnuskip þyrfti að
vera 5 til 8 metrum lengra til hafa
sömu flutningsgetu og einstefnu
skip. Þá þyrfti tvístefnuskip að
hálfsnúa sér bæði í
Vestmannaeyjahöfn
og Landeyjahöfn.
Hann sagði líka að
einstefnuskip
kláraði sig miklu
betur í miklum sjó.
Ellliði Vignisson
spurði tveggja
spurninga, hversu
mikið olíukostnað
urinn myndi lækka
með nýju ferjunni
og hinsvegar
hversu miklar
frátafir yrðu við
siglingar í
Landeyjahöfn.
Jóhannes sagðist
ekki hafa olíusparnaðinn á hreinu
en hann væri mikill. Varðandi
frátafirnar svaraði Sigurður Áss
Grétarsson þeirri spurningu og
sagði að miðað væri við að nýja
ferjan gæti siglt í 90% af tímanum,
núverandi Herjólfur væri að sigla í
ca 67% af tímanum. Reiknað er
með að falla myndu út 10 heilir
daga og það yrði röskun í 30 daga.
Guðmundur Þ.B. Ólafsson spurði
um öryggisbúnað ferjunnar. Jó
hannes sagði að sami búnaður yrði
á nýju ferjunni og notaður væri á
samskonar ferjum í dag. „Eldvarn
arveggir yrðu milli hólfa. Fjórir
björgunarbátar sem hver tekur 150
manns verða um borð, sem hægt er
að fara í innan úr ferjunni. Því til
viðbótar er einn hraðskreiður
björgunarbátur og björgunarbelti
fyrir alla. Þessi búnaður er sá er
bestur þykir.“
Arngrímur Magnússon spurði í ljósi
atburða dagsins (föstudagsins),
þegar veltiuggi á Herjólfi bilaði,
hvort nýja ferjan yrði með veltiugg
um eða veltitönkum.
Jóhannes sagði að ekki væri búið að
taka ákvörðun um hvor búnaðurinn
yrði valinn. „Frumteikning af
ferjunni væri með veltiuggum en
stýrihópurinn vildi frekar hafa
veltitanka, það væri einfaldari
búnaður. Góðir veltiuggar virka
90% en veltitankar 5060%. En
endanleg ákvörðun liggur ekki
fyrir“ sagði hann.
Fundarstjóri var Sigrún Sigurgeirs
dóttir og stýrði fundinum af
röggsemi. Hún gat þess að
stýrihópurinn og starfsmenn hans
hefðu ætlað að koma á fundinn með
Herjólfi úr Landeyjahöfn en þar
sem hann var með bilaða veltiugga,
fór Lóðsinn í Landeyjahöfn og sótti
hópinn.
Samgöngur hafa lengi verið
hitamál í Eyjum og margir verið
stóryrtir þegar um þær hefur verið
rætt, en fundarmenn voru kurteisir
og málefnalegir og vonandi er það
fyrirboði þess að Vestmannaeyingar
geti staðið saman um betri lausn á
samgöngumálum Eyjanna en nú er.
þótt sú lausn sem nú er í farvatniu
verði áreiðanlega ekki sú endan
lega.
Eins og sést er gert ráð fyrir
bílalyftu bakborðsmegin í skipinu
en stjórnborðsmegin verða
vagnar.Teikningar af fyrirhugaðri ferju.
Guðjón Sigtryggsson nýr útibús-
stjóri Skeljungs í Eyjum:
Spennandi og
fjölbreytt starf
:: Engar breytingar framundan,
áfram góð þjónusta og gott
vöruúrval
Guðjón Sigtryggsson tók á
dögunum við sem stöðvarstjóri
Skeljungs í Vestmannaeyjum en
Eiríkur Þorsteinsson lét af
störfum á sama tíma. „Nýja
starfið leggst mjög vel í mig. Ég
tek við góðu búi af Eiríki sem
hefur sinnt þessu starfi í nokkur
ár. Auðvitað eru þetta nýir
hlutir sem maður er að fást við í
dag en það er alltaf gaman að
gera eitthvað nýtt. Ég er með
flottan stráka með mér hjá
Skeljungi svo þetta getur ekki
klikkað,“ sagði Guðjón í samtali
við Eyjafréttir.
Guðjón tók formlega við starfinu 1.
október síðastliðinn en var fram að
því að koma sér inn í starfið.
Guðjón er jafnframt yngsti
stöðvarstjórinn hjá Skeljungi. „Eins
og við segjum í léttu gríni í
vinnunni, „yfirmaður með fimm
háskólagráður“. En það er bara
mjög gaman fyrir mig að fá þetta
traust frá Skeljungi.“
Hvað felst í starfinu?
„Mitt starf felst í því að sjá um
rekstur á útibúinu, afgreiða í
versluninni hérna inni á Eiði, sjá
um olíustöðina, hafa umsjón með
dreifingu á eldsneyti og þeim
vöruflokkum sem við höfum upp á
að bjóða. Svo kemur fyrir að ég
skelli mér í akstur sjálfur ef á þarf
að halda. Þannig að það er að
mörgu að hyggja og það gerir
starfið svo spennandi.“
Guðjón hefur verið hjá Skeljungi í
um þrjú ár en hann segir engar
stórvægilegar breytingar framundan
hjá Skeljungi í Vestmannaeyjum.
Þrír starfa nú í útibúinu, Guðjón,
Jón Helgi og Tryggvi. „Stór hluti
af okkar starfi er að sinna fiski
skipaflotanum en við erum í raun að
keyra vélaolíu, bensíni, díselolíu,
sápum og vörum út um alla eyju.
Þá sjáum við alfarið um að afgreiða
olíuskipin þegar þau koma til Eyja,“
sagði Guðjón og skoraði á Eyja
menn að kíkja við í verslunina inni
á Eiði. „Ég lofa því að þjónustan
verður til staðar og við gerum allt
það sem við getum til að kúnninn
fari hress og glaður út. Einnig vil
ég benda á að bensíndælan upp á
Orkustöð við Tvistinn er ný og
höfum við hafið sölu á vélaolíu þar.
Þannig að þeir sem eru á vinnu
vélum, geta nýtt sér hana og svo er
hún mun hraðari en gamla dælan.“
Eins og fram kemur hér að ofan, tekur Guðjón við af Eiríki Þorsteins-
syni hjá Skeljungi í Vestmannaeyjum. Í síðustu viku var haldið
kveðjuhóf með stjórnendum Skeljungs, helstu viðskiptavinum og
starfsmönnum þar sem Eiríki voru þökkuð góð störf í gegnum tíðina.
Ferjan á að geta flutt 390 farþega í ferð
sem er nánast sami farþegafjöldi og
núverandi Herjólfur flytur, utan dagana í
kringum Þjóðhátíðina en þá hefur fengist
undanþága hjá Samgöngustofu fyrir 525
farþega. Jóhannes sagði að miðað væri
við gott aðgengi allra farþega að komast
um borð og frá borði og komast um allt
skip án þess að þurfa að vera uppá
aðstoð komnir. Bæði væru góðir stigar
milli hæða og eins lyfta fyrir þá sem ekki
ganga sjálfir eða eiga erfitt um gang.
”
JúlíuS G. InGaSon
julius@eyjafrettir.is