Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 22.10.2014, Blaðsíða 11
° ° 11Eyjafréttir / Miðvikudagur 22. október 2014 Framhaldsskólinn :: Fyrirlestrar um hættu netsins :: Bæði fyrir forráðmenn og foreldra: Þeir sem eyða of miklum tíma á netinu missa áhuga á öllu :: Skiptir því höfuðmáli að foreldrar eigi gott samband við börnin sín :: Tali reglulega við þau og eyði með þeim tíma :: Öll umræða um að loka eða hætta ógagnleg og óskynsamleg Í næstu viku verða fyrirlestrar um hættur netsins. Þórir Ingvarsson, fjallar um málið út frá sjónarmiði lögreglumanns og hvernig netið og vandamál sem því tengjast birtast í starfi hans. Eyjólfur Örn Jónsson, sálfræðingur fjallar um ofnotkun netsins og hættur sem henni fylgja. Farið verður yfir hætt- urnar og hvernig best megi verjast þeim og jafnvel forðast þær. Börn og unglingar eru sérstaklega útsett fyrir þessum vandamálum og því mikilvægt að foreldrar skilji vandann og viti hvað best sé að gera í málinu. Þeir benda á að netið er komið til að vera og því þýði lítið að loka augunum fyrir því að þar geta leynst hættur eins og annarsstaðar. Börn séu ekki send út í umferðina án þess að hafa lært umferðarreglurnar en foreldrar opni oft heim netsins fyrir þeim án þess að skilja hann almennilega sjálf. Með réttri vitneskju og nálgun eigi allir að geta notið netsins og alls sem að það hefur upp á að bjóða án vandkvæða. Fræðsla fyrir forráðamenn verður klukkan 17.15 í sal FÍV þriðjudaginn 28. október og fræðslan fyrir nemendur verður 29. október í skólunum. „Nú til dags er fólk í netsambandi svo til allan sólahringinn og netið orðið að órjúfanlegum hluta lífs okkar flestra. Af þessum sökum hefur reynst frekar erfitt að greina hvað sé „hæfileg“ notkun,“ sagði Eyjólfur Örn þegar hann var spurður um hvað geti talist hæfileg notkun og þá eftir aldri og hvenær keyrir tölvunotkun úr hófi. „Upp hafa sprottið alls kyns viðmið í gegnum árin. Félag barnalækna í Bandaríkjunum mælir með að börn að 14 ára aldri eyði ekki meira en tveimur tímum á dag fyrir framan skjá en staðreyndin er að hjá flestum börnum eru þetta á bilinu fimm til sjö tímar. Samtök tæknifrömuða í Silicone Valley mæltu fyrir nokkrum árum með að fólk tæki sér eins dags pásu frá tækninni í viku hverri. Þegar að við skoðum fíkn eða ofnotkun, miða stofnanir við 38 tíma á viku eða hvenær einstaklingurinn byrjar að fórna hlutum úr lífi sínu til að geta verið í tölvunni. Þegar einstak­ lingur má ekki lengur vera að því að sinna athöfnum sem að ættu að skipta hann máli eins og vinnu, skóla, vinum, fjölskyldu, áhuga­ málum, svefni o.s.frv. Þá má segja að tölvunotkunin hafi keyrt fram úr hófi.“ Foreldrar fylgist vel með Ef hún keyrir úr hófi, hverju eiga foreldrar að leita eftir? „Foreldrar sem að hafa áhyggjur af börnunum sínum ættu að fylgjast með hvað börnin þeirra eru að sækja í á netinu og hvernig jafnvægið hjá þeim er. Þau ættu að fylgjast með áhugahvöt barna sinna en þegar að einstaklingur fer að eyða of miklum tíma á netinu missir hann gjarnan áhugann á öllu þar fyrir utan. Þarna skiptir því höfuðmáli að foreldrar eigi gott samband við börnin sín, tali reglu ­ lega við þau og eyði með þeim tíma. Þá getur verið gott að taka þátt í því sem að þau gera. Margir foreldrar eru virkir í lífi barna sinna þegar að það kemur að skipulögð­ um íþróttum en samverunni má ekki gleyma þegar að tölvunotkun­ inni kemur.“ Eru krakkar að leita að klámi og ofbeldi og í hvað miklu mæli? „Það eru að sjálfsögðu alltaf einhverjir sem að leita að klámi og ofbeldi og munu sjálfsagt áfram gera það um ókomna tíð,“ svaraði Eyjólfur Örn. „Spurningin er kannski ekki hverjir eða hversu margir sækja í þessa hluti heldur hvernig þessir hlutir eru matreiddir ofan í börnin okkar. Meðal karlkyns skjólstæðinga minna er klám og ofbeldi gjarnan sjálfsagðir hlutir og eitthvað sem tilheyrir daglegu lífi. Þeirra sýn á þessa hluti er gjarnan svolítið bjöguð og einkennist af sérkennilegum hugmyndum og tilfinningalegum doða. Þessu fylgir að svona efni verður sífellt grófara til að vekja viðbrögð. Rannsóknir hafa bent til að á netinu sé að finna meira en 240 milljón síður sem innihalda klámfengið efni af einhverjum toga og börnin okkar verða sífellt yngri þegar að þau upplifa klámfengið efni í fyrsta sinn.“ Orðið til á ótrúlega stuttum tíma Tölva er líka undratæki og það hlýtur að mega segja ýmislegt jákvætt um hana? „Tölvur eru án vafa undratæki og að margra mati markar netið hápunkt mannlegrar sköpunar. Við höfum búið til ótrúlega víðfeðmt og öflugt tæki sem hefur á gríðarlega stuttum tíma breytt heiminum sem við lifum í. Langflestar þessar breytingar eru til hins betra og hafa gert líf okkar betra á ótrúlega marga vegu. Fólk hefur alltaf óttast nýja tækni, þannig er til dæmis sagt að Sókrates hafi óttast áhrif ritmálsins á sagnahefðina og fyrir ekkert allt of löngu var álitið að sjónvarpið myndi eyðileggja heilu kynslóðir fólks. Þessar dómsdagsspár hafa ekki orðið að raunveruleika og þar er næsta víst að netið verði engin undantekning. Netið er komið til að vera og er því öll umræða um að loka eða hætta ógagnleg og óskynsamleg. Líkt og flest er samt hægt að mis ­ nota netið á ýmsa vegu og getur sú misnotkun haft alls kyns slæm áhrif á þá sem fyrir henni verða; of margir hamborgarar leiða til að mynda ekki til neins góðs þó að þeir geti verið góðir og jafnvel gagnlegir við og við. Það hversu víðfeðmt netið er gerir það að verkum að leiðirnar til að nota það bæði til góðs og ills eru ótrúlega margar. Foreldri sem ekki kann á umferðina mun eiga erfitt með að kenna börnunum sínum umferða­ reglurnar en það leikur enginn vafi á að þrátt fyrir að umferðin sé okkur flestum góð og gagnleg þurfum við að nálgast hana af varkárni og kunna ákveðnar reglur í tengslum við hana,“ sagði Eyjólfur Örn sem vonast til að sjá sem flesta á fyrirlestrunum. Höfðar hann einkum til forráðamanna nemenda. Út er komin bókin Nála­riddarasaga eftir Evu Þengilsóttur og ætlar höfundur að koma hingað til Eyja og lesa fyrir gesti í Eymundsson nk. laugardag kl 12:00. Eva er nátengd Eyjunum, en eiginmaður hennar er Eyjapeyinn Martin Eyjólfsson. Nála ­ riddarasaga fjallar um stúlkuna Nálu og hugumstóran riddara sem þeysir um heiminn á hestinum sínum fráa og berst við alla sem á vegi hans verða. Nála er fyrst og fremst ævintýri en fjallar í raun um það hvernig við kjósum að nota það sem við höfum eða fáum í hendur. Valið um gott og illt, stríð og frið og þau hlutverk sem við leikum stundum af því að við þekkjum ekki annað. Í umsögn Vigdísar Finnbogadóttur um bókina segir: „Ekkert er skemmtilegra en að skoða og lesa góðar barnabækur og hér er ein, fallegt listaverk sem byggir á íslenskum menningararfi. Þessi saga býr yfir miklum og margvíslegum boðskap: með ólíkri nálgun og lífsafstöðu getur það sem eyðir og grandar skapað frið og kærleika.“ Eymundsson á laugardag: Heitt súkkulaði og sögu- lestur Síðastliðinn miðvikudag fengu Framhaldsskólinn í Vestmanna­ eyjum og Grunnskólinnn í Vest­ mannaeyjum góða heimsókn frá Konfúsíusarstofnuninni Norður­ ljósum. Stofnunin færði skólunum myndarlegar bókagjafir en Konfúsí­ usarstofnunin Norðurljós var stofnuð árið 2008 með samstarf­ samningi Háskóla Íslands, Mennta­ málaráðuneytis Kína og Ningbo Háskóla. Tilgangur stofnunarinnar er að stuðla að aukinni fræðslu á meðal Íslendinga um tungu, menningu og samfélag Kína með námskeiðum, fyrirlestrum, ráðstefnum, kvikmyndasýningum og öðrum viðburðum. Stofnunin er kennd við kínverska heimspekinginn Konfúsíus og norðurljósin, sem þykja einkenna Ísland, en Konfúsíusarstofnanir eru starfræktar víða um heim. Konfúsíusarstofnunin í heimsókn hjá skólunum í Eyjum Frá afhendingu bókanna í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Kínverskukennarinn Yucheng Jia, Áslaug Tryggvadóttir, sérkennari FÍV, Helga Kolbeinsdóttir, skólameistari FÍV og Þorgerður Anna Björns- dóttir, starfsmaður Norðurljósa. Forritarar framtíðar- innar styrkja GRV :: Ætlað að efla tækni- og forrit- unarkennslu barna Grunnskóli Vestmannaeyja (GRV) fékk í gær afhentann, í höfuð­ stöðvum tölvuleikjafyrirtækisins CCP í Reykjavík, myndarlegan styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar. Þrír aðrir skólar hlutu styrk úr sjóðnum sem var upp á fjórar milljónir króna samtals en styrkirnir eru í formi tölvubúnaðar og þjálfunar kennara til forritunar­ kennslu fyrir nemendur. „Sjóðurinn Forritarar framtíðar­ innar hóf starfsemi sína í byrjun árs 2014 og er megin hlutverk sjóðsins að efla forritunar­ og tæknimenntun í grunn­ og framhaldsskólum landsins. Skólar og sveitarfélög geta sótt um styrki úr sjóðnum til að efla tæknikennslu og notkun á tækni í skólastarfi og fá til þess þjálfun og tækjabúnað, allt eftir þörfum hvers og eins. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr sjóðnum en fyrri úthlutunin fór fram 21. febrúar sl. Var þá úthlutað styrkjum að verðmæti fjórar milljónir króna. Samtals hefur því sjóðurinn úthlutað virði tæpra 8 milljóna króna í styrki til skóla á þessu ári,“ segir í fréttatilkynningu frá sjóðnum. Einar Örn Jónsson, sálfræðingur. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.